Leita í fréttum mbl.is

Svo kemur uppúr dúrnum að fyrirmyndardrengurinn er svæsin lostahrókur

perr1Það á ekki að koma neinum hugsandi manni á óvart, þó hinn virðulegi drykkjaframleiðandi Gatorade hætti að moka péééníííngum í þann ljóngraða kvennajagara Tígur Woods. Enginn sómakær maður, hvað þá kona, vill ekki fyrir nokkurn mun koma nálægt þessum golfleikandi kynferðisbrjálæðingi.

Satt að segja hefur Tígur valdið mér, og heimsbyggðinni allri, hræðilegum vonbrigðum. Í mörg ár hélt ég að þessi prúði drengur væri einhver albesta fyrirmynd sem völ væri á, einkum ungu fólki, í heilbrigðu líferni, dugnaði, náttúruleysi, sem og allri framkomu; stundaði aðeins æfingar og keppni í golfi og dreymdi um golf á nóttinni, meðan jafnaldrar hans höfðu draumfarir sem gengu að flestu eða öllu leiti útá ástir, slagsmál og vín. En svo kemur uppúr dúrnum, að Tígur er er einhver hinn versti lostahrókur sem fólk hefur haft spurnir af; hann er sagður draga konur á hárinu og meðhöndla þær iðulega eins og galdranorn notar kúst til ferðalaga.

Í ljósi fryggðarfullra afreka Tígurs uppá síðkastið, er meir en skiljanlegt, að enginn vilji styðja þennann villing til slíkrar iðju með beinhörðum pééénííííngum, eða öðrum verðmætum hlutum. 


mbl.is Gatorade losar sig við Tiger Woods
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsileg hornkerling

fraSvo er að sjá, að hin samfylkingarlærða framsóknarsál, Guðmundur Steingrímsson, hafi hlotnast sú náð, að gegna embætti hornkerlingar Framsóknarflokksins, en það embætti vísar til, að sá sem því gegnir eigi yfirhúskarlsstöðu flokksins vísa. Þar með er viðbúið að slöttólfurinn Sígmúnd Davíð fái ekki að kemba hærurnar lengi, sem talsmaður Halldórs og Finns.

Þess má geta, að afi og faðir Gvendar Steingríms gengdu báðir embætti hornkerlingar á sínum tíma og uppskáru báðir yfirhúskarlsstöðu úr hendi sjálfrar Framsóknarmaddömunnar. En þar sem Maddaman er önduð verður Gvendur trúlega að taka við sínum framtíðarvegtyllum flokksins úr lúkunum á Halldóri Ásgríms og/eða Finni Ingólfssyni athafnaskáldi.


mbl.is Fundi fjárlaganefndar lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyndarpukrari fer af hjörunum

finnur2.jpgHann er sannarlega kyndugur dvergurinn, sem Halldóri Ásgrímssyni, Finni Ingólfs og Ólafi bónda á Miðhrauni, hugkvæmdist að gera að yfirhúskarli Framsóknarfjóssins. Auðvitað er dvergurinn Sígmúnd Davíð, aðeins leppur fyrir sér æðri menn, svo engin þarf að taka greyið alvarlega því hann er ekki fullmektugur talsmaður gömlu Maddömunnar, sem sögur herma að hafi andast leynilega í síðustu viku.

Nú er komið á daginn að Sígmúnd litli hefur tekið fullan þátt í leyndarpukrinu, sem hann hefur verið að gagnrýna uppá síðkastið. Allir leynipóstarnir og þöggunarsneplarnir hafa verið á sínum stað í möppu vesalings drengsins í marga mánuði, án þess að honum hafi þótt nokkuð athugavert við umræddra pappíra. En svo loks þegar leyniplögginn úr möppunni eru lekin útá netið, fer Sígmúnd framsókarleppur umsvifalaust af hjörunum með þeim hvalablæstri og bægslagangi, sem engan veginn fer svo sléttgreiddum unglingi.   


mbl.is Var kunnugt um bréfaskiptin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt vinstristjórninni að þakka

grénjirNúnú, fréttin af minni áhrifum kreppunnar hér á landi en við var búist, hlýtur að koma eins og fúl skvetta úr hlandkoppi framaní óaldarlýð Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og mola í leiðinni móðursýkislegan og mökkruglaðan málflutning þeirra.

Það dylst náttúrulega engum sæmilega sanngjörnum og vitibornum manni, að þessi ,,minni samdráttur" er einungis núverandi ríkisstjórn að þakka. Ekkert í þessa átt hefði verið mögulegt ef þjóðin hefði verið svo ólánssöm kjósa sönnu hrunaflokka, sem kenna sig við sjálfstæði og framsókn, yfir sig.


mbl.is Kreppan vægari en búist var við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðalgreindarvísitalan hækkaði um 50%

rev4Þegar Höskuldur Þórhallsson og Birgitta Jónsdóttir, sem sögð eru alþingismenn, skakklöppuðust á dyr af fundi fjárlaganefndar í morgun, hækkaði meðalgreindarvístalan við fundarborð nefndarinnar um heil 50% og sátu þó eftir nokkrir nefndarmenn með vægast sagt dapurlega lága greindarvísitölu.

Það fer að verða mjög aðkallandi, að þjóðin hætti að kjósa mjög heimska einstaklinga til að sinna löggjafarstörfum og ráðherraembættum. Ef fer sem horfir verður Alþingi Íslendinga bráðlega eitt alsherjar stórhlægilegt vitfirringahæli, ef það er þá þegar ekki orðið það. Þá er almælt, að aldrei hafi eins margir leiðinlegir, húmorslausir, þingmenn setið samtímis á Alþingi en einmitt nú. Þegar heimska og húmorsleysi fara saman með yfirgnæfandi hætti á einum vinnustað, er skamt að bíða endalokanna.

Ef Íslensku þjóðinni er í mun, að komast útúr vandamálum sínum, á hún að setja sósíalíska byltingu á dagskrá, ekki síðar en strax. Sósíalísk bylting er eina færa leiðin til að losa þjóðina við hinn gjörspillta kapítalisma og vandræðagemlinga hans.

rev8Upp með byltinguna, kæru félagar, og göngum milli bols og höfuðs á úrkynjaðri yfirstétt stjórnmálamanna, atvinnurekendavalds og fjársýsluglæpamanna !!!  


mbl.is Óvissa um samkomulagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða bordel verður vinsælast?

Það eina sem er spennandi við þessa loftslagsráðstefnu í Kaupmannahöfn, er í hvað bordel Íslensku fulltrúarnir fara oftast á meðan ráðstefnunni stendur. Einhversstaðar rakst ég á, að starfsstúlkur bordelanna í Höfn ætli að gera það frítt fyrir ráðstefnugesti, svo það er alltílagi fyrir okkar fólk að skvetta ærlega úr klaufunum, af því að spilling er ekki spilling fyrr en hún er farin kosta skattborgarana beinharða pééénínga ...
mbl.is Kveðst bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með Egil Helgason af RÚV

undFuss og svei, það koma nákvæmlega ekkert fram hjá þessum Rogeri Boyes, sem fjölmargir Íslendingar hafa ekki gert sér grein fyrir frá því löngu fyrir hrun. Þeir sem ekki hafa gert sér grein fyrir því sem Boyes var að mala, er sjúkt fólk í alvarlegri afneitun. Annars minnti Boyle einna mest á smjörlíkisklessu, svo ófrumlegur sem hann var í sjónvarpinu með Agla vini sínum.

Það er alveg dæmalaust hvað 101-geltinum Agli Helgasyni tekst að draga mikið af sjálfumglöðu undanrennuliði í þetta yfirborðskennda og útvatnaða silfur sitt. Reyndar er um of að tala um ,,mikið af sjálfumglöðu undanrennuliði" því satt best að segja er þetta mestu leyti sama fólkið upp aftur og aftur sem kemur í þáttinn, þá aðallega fólk sem einhverntímann hefur fengið þá hlálegu grillu í hausinn, að það sé svo undur gáfað, þrátt fyrir að hafa í hæsta lagi meðal gripsvit. En auðvitað draga gestirn dám af gestgjafanum, nema hvað.

Ég er kominn á þá skoðun, að RÚV ætti að afþakka starfsframlag Egils Helgasonar frá og með deginum í dag, þar eð stofnunin hefur sengin efni á að hafa fólk á fóðrum, sem engu skilar öðru en yfirborðsmennsku, froðu og kjaftæði. 


mbl.is Boyes: Of mikil áhersla á ál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt stökkbreytt tilfelli á Íslandi - sjúklingurinn líklega látinn

gryEins og greint var frá fyrir skömmu stökkbreyttist svínsflensuveiran þegar hún blandaðist framsóknarvírusnum illvíga í kroppi þeirrar karlægu dækju, Framsóknarmaddömunnar. Síðan upp komst um tilvikið, hefur Maddaman verið í strangri sóttkví í súrheysturni áföstum Framsóknarfjósinu. Nú hafa lausafregnir borist af því að sú gamla sé þegar dauð, enda hafa fjósdvergar hennar á þingi borið þess glögg merki síðustu daga, að þeir hafi tapað því litla sem fyrir var af glóru milli eyrna þeirra.  
mbl.is Ný tilfelli stökkbreytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimdallarar enn á ferð

heim2Ef mér skjöplast ekki því meir, þá hafa eru ungu karlmennin fjögur, sem fóru ránshendi um skóla í Reykjavík í nótt, af heimdellingategundinn alræmdu. Þessi grey hafa alist uppí þeirri vissu, að fátt sé göfugra en að ræna sameignum landsmanna, hvar og hvenær höndum verði yfir komið. Með því móti, telja heimdallarar, að þeir öðlist með tíð og tíma þá sæmd, að fá að leggjast á ríkisspenann og verða miklir menn, jafnvel alþingismenn og ráðherrar og tapa loks í forsetakosningum fyrir einhverjum skítugum kommúnista.

Sumir eru þeirrrar skoðunuar að heimdellinga beri að uppræta með öllum ráðum. Því er ég ekki sammála. Maður lógar ekki hundinum sínum þó hann bíti blaðberann við og við. Heimdellinga eigum við að varðveita eins og draugasögurnar okkar og jólasveinana, en ekki veitast að þeim, þó hvimleiðir séu, eins og vargfugli og dýrbítum.


mbl.is Brotist inn í tvo skóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þokkaleg frammistaða atarna

Það er þrifalegur andskoti, eða hitt þá heldur, ef það er rétt að Bandaríkjamenn hafi enga hugmynd um hvar fjölskylduvinur þeirra, Ósama bin Laden, er niðurkominn og hafi ekki vitað það í fjölda ára. Svona skítlega frammistaða er náttúrulega ekki boðleg umheiminum, hvað þá kaldastríðshrjáðum móhíkönum á Íslandi, sem hafa um áratugaskeið verið amrískari en allt sem amerískt er, svo sem sjá má á þjökuðum andlitssvip Björns okkar hérna Bjarnasonar.

En líklega er bölvaður þrjóturinn hann Ósami dauður fyrir löngu og sestur að í hymmnaríki með Allah vini sínum, Múhameð spámanni og Rónaldi Reagan. En þó má vera að kallskrattinn tóri einhversstaðar við íllt atlæti og og enn verri heilsu eins og Framsóknarmaddaman hér uppá hrundu Íslandi.


mbl.is Ekkert vitað um Bin Laden
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband