5.12.2009 | 21:59
Gaurinn sem giljar kvenpéníng vorn
Og Stúfur þorði ekki að fækka fötum í Jarðböðunum í Mývatnssveit!!! Nú þykir mér Bleik brugðið. Ég man þá tíð þegar Stúfur hljóp berrassaður um sveitir með stóran hóp af brjáluðum bændum á eftir sér, sem gjarnan vildu hafa höndur í hári Stúfs og hengja hann, því að í þeirra augum var þessi geðugi jólajúði algjört ódó og hjónadjöfull.
Og aldrei hefur Giljagaur verið smærri í sniðum en bróðir hans Stúfur, m.a.s. heldur stærri, ef eitthvað er. Kvensamari jólasveinn hefir aldrei verið uppi frá því jólasveinaöld hófst en einmitt hann Giljagaur. Eins og gefur að skilja, hafa húsfreyjur landsins alið Giljagaur fjöldann allann af börnum, sem öll eiga það sameiginlegt, að vera rangt feðruð, því engin kona hefur, fram að þessu, viljað kenna þessum frjósama og kynsæla jólasveini krakka. Hinsvegar vefst ekki fyrir glöggum mönnum að þekkja afkvæmi Giljagaurs frá öðru fólki. Hinir fróðu menn uppástanda, að synir og dætur Giljagaurs hafi leikið ófá stórhlutverk í októberhruninu fræga á Íslandi í fyrra. -Á ávöxtunum skulu þér þekkja hinar örgu kúlulánagrýlur og þá útsmognu æseifböðla: Allt er það hyski meira eða minna undan gaunum sem giljar kvenpéníng vorn, sagði einn virtasti og frómasti ættfræðingur landsins við mig á dögunum.
![]() |
Jólasveinar fóru í Jarðböðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.12.2009 | 20:52
Merkar heiðurspersónur í fylkingarbrjósti
Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson, Valgerður Swerriz, Siv Friðleifs, Björn Ingi, Ólafur bóndi á Miðhrauni, Sigurður Einarsson, Alfreð Þorsteinsson, Sígmúndör Kögunar, Framsóknarflokkurinn.
Ekki þarf að orðlengja til hvers refirnir eru skornir þegar ofantalda heiðurspersónur eru annarsvegar. Að minnsta kosti verð ég ekki sérlega upprifinn yfir blaðrinu í Kögunarstráknum, svo mikið er víst. Það er nefnilega full ástæða til að taka ekki mark á einu einasta orði, sem fram gengur af munni slíkra leppalúða.
![]() |
Gagnrýnir viðbrögð Steingríms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.12.2009 | 20:17
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
Það verður varla héraðsbrestur þó fyrbærið Varnarmálastofnun verði lögð niður með manni og mús. Því sannast sagna hefur sjalda verið hróflað upp jafn tilganslausri skítakompu.
Hitt er aftur lakara, að aðild Íslands að glæpasamtökunum NATO eigi ekki að fara sömu leið þetta óskabarn Björns Bjarnasonar kaldastríðshöfðingja. Það hefur alla tíð verið Íslensku þjóðinni til óbætanlegrar skammar og háðungar, að vera hluti af félgsskap verstu stríðsfanta og glæpamanna á Vesturlöndum.
Það er léleg ,,vinstrisjórn" sem ekki hefur döngun í sér að segja upp NATO-vistinni, fyrst morðingjaherinn Bandaríski hafði vit á að hunskast héðan af landi brott af fyrra bragði.
![]() |
Varnarmálastofnun lögð niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.12.2009 | 17:20
Birgitta plumar sig með frjálshyggjukálfunum
Mikið ósköp tekur blessunin hún Birgitta sig vel út með fulltrúum auðvaldssamtakanna sem tókst að bylta þjóðinni á svartakaf ofan hyldýpi frjálshyggjufensins, enda varla við öðru að búast. Svo er að sjá, að þrjótarnir sem voru óhæfir í huga Birgittu fyrir nokkrum mánuðum séu allt í einu orðnir hæfir og rúmlega það, jafnvel þótt þeir kunni ekki að skammast sín.
Ef allt væri með felldu og alls réttlætis gætt, ættu heilaleysingjarnir sem kusu Sjáfstæðis- og Framsóknarflokkinn, auk slangurs af illa innréttuðum kratakindum, að borga Icesave-reikninginn með húð og hári. Í því ljósi væri eðlilegt að vísa þessu holdgetna afkvæmi Sjálfstæðisflokksins frá Alþingi.
![]() |
Krefjast þess að Icesave verði vísað frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2009 | 14:12
Hreyfingarhratið í lið með kúlulána- og hrunalýðnum
Mikið þó djöfull held ég Birgitta Jónsdóttir og Þór Sarí taki sig vel út með sameiginlegum hrunadansflokki Íhalds og Framsóknar á blaðamannafundinum á eftir. Það er ekki annað en stórhlægilegt, að sjá Hreyfingarhratið stilla sér upp með Bjarna Ben, Torgerði K., Sígmúndi David, Siv Friðleifs og fleiri hrunaköppum.
Illa trúi ég að fólk hafi kosið Borgaraheyfinguna s.l. vor til að væntanlegir þingmenn hennar legðust í ástarsamband við myrkustu sókudólgana að efnahagshruninu og ástandi mála í dag. Það verður að segjast eins og er, að skítseiðisháttur þessa fáránlega þingflokks er með slíkum endemum, að það á sér enga hliðstæðu í sögu Alþingis.
![]() |
Stjórnarandstaðan boðar blaðamannafund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2009 | 10:42
Blygðunarkenndin er sár eftir klámkallinn úr Eyjum
Það var vel af sér vikið hjá Árna Þór, að taka í taumana og húðskamma Árna Johnsen fyrst karlskepnan var farin að riðlast á þingheimi með klámi og sjálfsagt einhverjum öðrum ljótum munnsöfnuði. Að leyfa sér að hafa yfir grófar klámsögur, af köllum og kellíngum í Meðallandinu, um hánótt í viðurvist kvenna, er náttúrulega ekkert annað en kynferðisleg áreitni af verstu tegund. Mér er til efs, að blessað kvenfólkið, sem mátti sitja undir klámvaðli Árna, verði búið að ná sér á blygðunarkenndinni fyrir áramót eftir kræsingarnar sem eftirlæti Eyjamanna frussaði vægðarlaust framani þær.
En hvernig Árna karlinum Johnsen tókst að koma sér í þvílíkan klámsagnaham í miðri Icesaveumræðu, er áreiðanlega mörgum hulin ráðgáta, enda ekki nema á valdi færustu freudista í sálvísindum að botna í slíkum ódæmum.
Og hvar í fjandanum ætli Johnsen hafi lært svona voðalegan talsmáta? Ég vona að það hafi að minnsta kosti ekki verið á Snæfellsnesi.
![]() |
Íslenskt mál en ekki heypokaloðmullu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.12.2009 | 07:25
Sjúklingar reyna að græða á barninu sínu
Þær ætla að verða margar andvökunæturnar hjá sjálfstæðis- og framsóknarmönnunum yfir blessuðu barninu sínu honum Icesave, en sá yndislegi drengur er sem kunnugt er holdgetið afkvæmi umræddra flokka. Og nú skal talað og talað og malað og malað um Icesave dag og nótt til að freista þess, að græða dulítið á honum í pólitískt og jafnvel kjaft ríkisstjórnina í hel, ef vel tekst til. Ekki kann ég að skilgreina út í hörgul nýtilkomna sálsýki meðlima Sjálfstæðis- og Framsóknarsamtakana, en þó má ljóst vera, að þarna er á ferðinni yfirþyrmandi fæðingarþunglyndi ásamt heiftarlegri grindargliðnun eftir meðgöngu og fæðingu Icesave.
Hinsvegar þykir mér afar undarlegt, svo ekki sé meira sagt, að forseti Alþingis skuli ekki læsa þingheim inni í fundarsal Alþingis og láta stjórnarandstöðuna romsa uppúr sér icesave-móralnum í einni striklotu og hleypa þeim hvorki í mat né á klósettið fyrr en umræðunni lýkur.
Það er nefnilega þannig með bastarðinn Icesave Sjálfstísogframsóknarson, að hvað sem maður kann að vera á móti honum og hvað sem manni finnst tilvera hans óþægileg, þá komumst við aldrei hjá að borga meðlagið af honum fyrir Bjarna Ben, Torgerði Katrínu, Sígmúnd Davíð, Siv Friðleifs og þeirra safnaðarlimi.
![]() |
Fundi frestað á sjötta tímanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.12.2009 | 19:56
Glataðar sálir - Heiladautt fólk
Að 48% landsmanna séu reiðubúnir að greiða erkihrunaflokkunum atkvæði sitt, ef kosið væri nú, ber þjóðinni ekki fagurt vitni. Það bendir einfaldlega til mikils heiladofa og enn minni sálarþroska, að vilja glæpasamtök á borð við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn við stjórnvölinn aftur. Hvað þurfa þessi óhrjálegu samtök að gera þjóðinni mikið til miska til að kjósendur átti sig á villu síns vega? Áttar fólk sig ekki á, að fyrrnefnd samtök hafa í engu viðurkennt ábyrgð sína á þeirri stöðu sem nú er uppi og því síður sýnt nokkur merki iðrunar vegna gjörða sinna?
Forhertar, siðlausar og valdasjúkar glæpaklíkur, hvort heldur þær kenna sig við sjálfstæði eða framsókn, á að útloka frá pólitískum afskiptum, starfsemi þeirra á fortakslaust að banna með lögum. Aðeins glataðar sálir og heilalaust fólk kýs þessháttar ófögnuð til valda.
![]() |
Litlar breytingar á fylgi flokka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.12.2009 | 17:22
Ófyrirgefanlegar villur
Það er aldeilis ekkert nýtt, að menn lendi á öðrum stað en þeim sem ætlað var í upphafi. Og engann þarf að undra þó útlenskir kapteinar rugli saman hundsrössum eins og Reyðarafirði og Reykjavík.
Eitt sinn lenti Kolbeinn okkar Kolbeinsson í því að hafna á öðrum stað en hann ætlaði sér. Hann hafði tekið þátt í glöðu samsæti hjá vinfólki sínu þar sem ýmislegt krassandi sveif yfir vötnum. Síðla nætur lagði hann fótgangandi af stað þeim til sín, þar sem frú Ingveldur beið hans með barefli í hönd.
En í stað þess að stefna í austurátt, til heimilis síns, hélt Kolbeinn rakleitt í vestur. Undir morgun skreið hann innum glugga, sem hann hélt að væri stofuglugginn heima hjá honum. Ekki var hann fyrr lentur á meintu stofugólfi, en karlmaður nokkur stóð yfir honum með græðgislegt fýsnarglott á vör. Skipti engum togum, að maður þessi tók Kolbein heldur en ekki sér til leiks á hreint svívirðilegan hátt.
Um hádegisbil birtist svo Kolbeinn við sitt rétta heimili, hræðilega illa til reika, í öfugum buxunum, skyrtulaus og hafði týnt öðrum skónum. Mjög var hann heilsuveill eftir þessa meinlegu vegvillu, gat t.d. ekki setið í hálfan mánuð á eftir og var mjög undarlegur til höfuðsins eftir barefli frú Ingveldar, sem tók villu mans síns mjög óstinnt upp. Og sannaðist þar hið fornkveðna, að ýmsar villur eru Guði ekki þóknanlegar þó aðrir taki þeim fagnandi.
![]() |
Ætlaði til Reyðarfjarðar en stefndi á Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2009 | 16:00
Sannleikurinn um kanarífarana
Samkvæmt bestu fáanlegu heimildum, er ekki alskostar rétt, að dekrað hefi verið við hinn svakalega 100 manna hóp Íslendinga, sem ferðamálayfirvöld á Kanarí buðu til eyjanna. Sannleikurinn er sá, og það hefur komið fram áður, að hundraðmenningarnir höguðu sér með þeim hætti, að meint dekur var að mestu framkvæmt af lögregluþjónum og fangavörðum. ,,Dekrinu" lauk svo með því, að ferðamálayfirvöldin á Kanaríeyjum fengu nóg af þessum boðsgestum sínum, smöluðu þeim saman í flugvél og sendu þá til síns heima í morgun. Það lendir síðan á sömu ferðamálayfirvöldum, að greiða fyrir tjónið sem hundraðmenningarnir frömdu á knæpum og strípibúllum þar ytra með hömlulausum ölvunartiltekum sínum.
![]() |
Dekurferð til Kanaríeyja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.5.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1546261
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 52
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007