1.11.2009 | 20:27
Þegar Jón L. skreið innum glugga einbýlishúss
Best gæti ég trúað að umræddur köttur á þakinu hafi verið á kvennafari ásamt húsbónda sínum. Sennilega hefur bölvuðu fressinu tekist að smjúga inn kátrar læðu þar í húsinu, en eigendur læðunnar komið að þegar hæst stóð í stönginni og fleygt blessuðu dýrinu út á þak.
En hvað um eiganda fressins hefur orðið má fjandinn vita. Annaðhvort hefur hann hrapað ofan af þakinu og farið í klessu bak við hús (ég veit ekki til að búið sé að leita að honum þar) eða hann hefur komist innum opinn glugga og farið að gamna sér með þeirri eða þeim sem þar voru fyrir. Annað eins hefur nú gerst.
Jón leðurböllur komst eitt sinn í krappan við svona aðstæður. Hann skreið innum glugga á stóru einbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu og lenti þar í klónum á harðskeyttum hjónum, sem voru með höfuð sín bókstaflega fleytifull af ógeðslegum hugsunum. Þarna var Jóni leðurbelli haldið í vægast sagt öfuguggalegri ánauð í hálfan mánuð. Þegar karlanginn slapp úr prísundinn og gat vafrað heim til sín, allur skakkur og skældur, höfðu hans nánustu talið hann af; héldu að nú hefði hann loksins farið sér blessunarlega að voða í annarlegu ástandi.
![]() |
Bílvelta og köttur í vanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2009 | 18:44
Viðurstyggilegt draugamor að Háleitisbraut 1.
Ég er að velta fyrir mér hvort þessir dönsku særingamenn geti ekki kveðið niður subbuleg stjórnmálasamtök eins og Sjálfstæðisflokkinn. Ef þeir treysta sér til slíkra verka er ekki eftir neinu að bíða með að fá þá hingað til lands og koma hinni alræmdu dónahreyfingu, Sjálfstæðisflokknum, fyrir á góðum stað eins og hverju öðru draugamori sem óþrifnaður stafar af. Það er ekki minnsti vafi á að íslensku þjóðinni stafar veruleg hætta af títtnefndum Sjálfstæðisflokki. Í skoðanakönnun, sem gerð var á dögunum, sögðust 33% þeirra sem afstöðu tóku vera reiðubúnir til að láta Sjálfstæðisflokkinn leggja landið í rúst eins ferðina enn.
Svo þarf af umhverfisástæðum að fara með jarðýtu á Framsóknarfjósið og jafna það við jörðu.
![]() |
Nóg að gera hjá dönskum særingamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.11.2009 | 16:02
Við verðum að skipta um þjóðskipulag - annað er óásættanlegt
Ekki kemur það á óvart, að þjóðin hafi litlar mætur og lítið traust á Alþjóðagjaldeyrissjónum og ESB. Þessi niðurstaða í könnum Capacent Gallup segir okkur líka að meirihluti þjóðarinnar hefur örgustu skömm á kapítalismanum, en sem kunnugt er, eru Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og ESB meðal gildustu stoða heimskapítalismans. Í ljósi þessa, ætti ríkisstjórnin auðvitað að afnema kapítalískt þjóðskipulag á Íslandi og taka þess í stað ákveðna stefnu í til sósíalisma í anda Karls Marx og Friðriks Engels.
Þegar búið verður að taka upp róttækan sósíalisma hér á landi getum við loks farið að halda því fram að við búum í siðuðu samfélagi þar sem sameign á framleiðslutækjum og auðlindum, ásmat jöfnuði, sitja í fyrirrúmi.
![]() |
Treysta ekki AGS og ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2009 | 14:18
Lilja Mósesdóttir er Snæfellingur eins og ég
Það kom vel fram í máli Lilju í Silfrinu hverskonar skítaselskapur Sjálfstæðisflokkurinn er. Þessi óhugnarlegu samtök virðast svífast einskis, ef sjónhverfingar þeirra kunna að slá ryki í augu almennings. Að er mjög nauðsynlegt að fólk fari að átta sig á af hvað kalíberi í óheiðarleik og stigamennsku Sjálfstæðisflokkurinn raunverulega er. Það er fyrir löngu mál til komið að Sjálfstæðisflokkurinn verði kveðinn niður í eitt skipti fyrir öll og þannig búið um hnútana að hann geti með engu móti gengið aftur; svo slæmur sem hann var í lifanda lífi þá má gera ráð fyrir honum enn verri sem afturgöngu.
Um Lilju Mósesdóttur er það að segja, að þar fer mjög vaxandi stjórnmálamaður, afburða vel greind, jarðbundin, sjálfstæð og heiðarleg, enda er hún Snæfellingur eins og ég.
![]() |
Getur ekki samþykkt Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.11.2009 | 12:14
Íslensku mafíósana á að vista í Tálknanum
Fyrst að lögregluyfirvöld í Napólí er svo gott sem búin að uppræta sjálfstæðisflokkinn Camorra, er lögregluyfirvöldum á Íslandi ekkert að vanbúnaði að láta til skarar skríða gegn okkar mafísamtökum. Það væri mjög freistandi að taka alla íslensku mafíósana fasta og vista þá, ásamt villtu sauðfé, í fjallinu Tálkna, milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar.
Tálkninn er afar vel í sveit settur sem geymsla fyrir forherta óbótamenn, því sjófarendur geta dundað sig við að skjóta á illþýðið í klettunum á meðan þeir sigla framhjá. Þannig myndu hinir íslensku Salvatorar, Pasqualar og Carmínar týna tölunni, öllum til ánægju, og bera beinin í grjóturðinni í fjörunni fyrir neðan hamrabeltin.
![]() |
Mafíuforingjar handteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.10.2009 | 23:33
Í Napólí heitir Sjálfstæðisflokkurinn Camorra
Það er gleðilegt til að vita, að lögregluyfirvöld á Ítalíu séu ekkert að gera gælur við foringja sjálfstæðisflokksins Camorra í Napólí. Samkvæmt frétt mbl.is grip lögleglan sjálfstæðisforkólfinn Salvador Russó glóðvolgan í hænsnakofa þar sem hann var að elta hænurnar eins og blóðþyrstur minkur.
Mikill mannsbragur væri af, ef íslensk yfirvöld tækju nú loppurnar úr vösunum og létu til skarar skríða gegn sálufélögum Salvartore frá Napólí á Íslandi. Þeir gætu vel króað þessa þrekkjúða af við ýmsar geðugar aðstæður, t.d. í hesthúsum, oní lestum mikilla kvótajagta, undir grindum í fjárhúsum, svínastíum að ógleymdum hænsnakofum, fyrir utan hina og aðra ákjósanlega staði sem skammarkvikindin kunna að taka uppá að fela sig. Í þessum efnum mættu embættismennirnir taka svokallaða Tálknaaðferð til fyrimyndar, en þar er átt við leiftursókn vestfirska smala á hendur villifé í fjallinu Tálkna þar vestra. Sá verður þó munurinn, að engar síður verða opnaðar á Facebook til stuðnings Camorraflokksins íslenska eins og gert var til verndar hinum Tálknfirsku villisauðum.
![]() |
Mafíuforingi handtekinn í Napólí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2009 | 21:59
Óstýrilát kynlífslæti íslensks gítarleikara
Það hefur svo sem verið lengi vitað að Mick Jagger væri góður kvennamaður, enda með stórt hjarta og stóran munn. Þessi náttúrulegi eiginleiki listamannsins hefur fram til þessa verið talinn honum til tekna fram til þessa, þannig að kjaftavaðall ,,aðstoðarkonunnar" missir heldur en ekki marks. Og ansi er ég hræddur um að blessaðri dúfunni hafi þótt talsverð upphefð af því að fá að afgreiða giljagaurinn Mick þegar honum langaði í góðan skrans, mitt í önnum dagsins - eða í hverju hélt stelpugarmurinn að starf ,,aðstoðarkonu" Rolling Stones væri fólgið?
Og það þarf ekki Mick Jagger og Rolling Stones til að bráðgáfaðar og duglegar konur á besta aldri missi niðrum sig bæði pils og nærbuxur. Sá eðla tónsnillingur, Jón Glámur gítarleikari, rammíslenskur að ætt og uppruna, sogaði á sínum tíma, þegar frægð hans var mest, kvenfólk að sér eins og haugsuga. Ekki ein einasta kvensa milli tektar og tvítugs gat talist kona meðal kvenna ef hún hafði ekki átt í óstýrilátum kynlífslátum með gítarleikaranum geðþekka Jóni Glámi. Svo gerðist sá merki atburður, þegar Jón Glámur var nýorðinn 31. árs, að hann uppgötvaði að hann væri samkynhneigður og þar með var öll kvensemi af hans hálfu úr sögunni. En mikið andskoti grétu margar frómar stúlkur þegar gítarleikarinn mikli þaut fyrirvaralaust útúr skápnum með buxurnar á hælunum og úti var ævintýri.
![]() |
Hluti af starfinu að sofa hjá Jagger |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.10.2009 | 20:43
Svo hörmulega absúrd, að engu er líkt
Það er þokkalegt afspurnar fyrir íslendinga, að 33% landsmanna séu reiðubúnir að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, þ.e. kyssa kvalara sinn á mitt rassgatið með lafandi tungu. Ég þykist vita, að fólk í útlöndum tekur svona ónáttúru óstinnt upp, ferðast ekki til Íslands, fjárfestir ekki á Íslandi og vísar öllum íslendingum fyrirvaralaust útaf hótelum, gistiheimilum og leiguíbúðum á meðan ástandið er með þessum hætti í heilabúum þessarar forhertu þjóðar. Að 33% atkvæðisbærra manna þrái ekkert heitar en að langskuggalegustu samtök allrar íslandssögunnar komist til valda á ný eftir að hafa lagt þjóðfélagið í rúst, er svo hörmulega absúrd, að engu er líkt. Nær væri að 100% þjóðarinnar krefðust þess að starfsemi Sjálfstæðisflokksins verði bönnuð með lögum um aldur og ævi,frá eilífð til eilífðar.
En svona meðal annarra orða: Hvað ætli sé í heilabúum þessara 33%? -Ekki er það heili, svo mikið er víst.
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.10.2009 | 22:32
Þeim mun hefnast fyrir háðungina
Helvítis náhundar eru þessir bölvaðir danir alltaf í garð okkar íslendinga. Er virkilega ekki nóg fyrir þá að horfa uppá íslensku þjóðina liggja spriklandi í forarsvaðinu, eftir frjálshyggjuleg bolabrögð Sjálfstæðisflokksins, svo þeir þeir fari nú ekki að bæta um betur og núa salti í sárin með því að veðlauna decodekónginn Kára Stefánssons fyrir eitthvað sem þeir af kalhæðni sinni kalla ,,framúrskarandi árangur!" Þessi makalausu verðlaun ku vera kennd við löngudauðan auðvaldsbelg, Anders Jahre að nafni, sem græddist fé á skefjalausu arðráni af vinnu fátækra verkamanna. Ja, geðslegt atarna, eða hitt þá heldur!
Þetta axarskaft danskra spaugara verður geymt en ekki gleymt. Sá dagur kemur að þessum þorpurum hefnist fyrir skítaskapinn og það harkarlega. Gömlum nýlendukúgurum ferst ekki að gera grín að fyrrum undirsátum danakonungs með því að veita þeim verðlau í háðungarskyni.
![]() |
Kári fær verðlaun fyrir rannsóknir í læknavísindum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.10.2009 | 19:18
Mannúðleg skothríð með hljóðdeyfi

![]() |
Rjúpnaskyttuleit á fyrsta degi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Meðan ábyrgir leiðtogar fagna í Moskvu flaðra krataeigirnar u...
- Einelti gegn útgerðarmanni og eitthvað fleira
- Það er hamingja vor og lán að eiga ígildi kóngs
- Þá hefir frú Sæland fallið á léttasta prófi allra prófa. Aumi...
- Renturnar á Hjáleigunni
- Nýfrjálshyggjubyltingin étur börnin sín
- Litaforsetar nútímans á Íslandi og í Bandaríkjunum
- Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu
- Hrunistar, afturgöngur og krataeðlisauðvaldsstúss út um móa o...
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.5.): 95
- Sl. sólarhring: 175
- Sl. viku: 1755
- Frá upphafi: 1548040
Annað
- Innlit í dag: 68
- Innlit sl. viku: 1532
- Gestir í dag: 67
- IP-tölur í dag: 65
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007