30.10.2009 | 15:32
Álversórana í Helguvík á að slá af nú þegar
![]() |
Góð tíðindi fyrir Reykjanesbæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.10.2009 | 13:50
Ég þekkti Jonna poppara ágætlega í gamla daga
Honum hefði verið nær, bölvuðu apparatinu honum Jonna, að vera ekki árum saman á hvolfi í útlöndum, sér og sínu fólki til ævarandi skammar. Svo ætlast þessi mannaumingi til, loksins þegar hann slysast heim með aungulinn í rassgatinu, að allt sé eins og það var þegar hann hvarf að heiman. Auðvitað var sönggyðjan mikla, sem hann var í tygjum við þegar hann hvarf af landi brott, komin uppí hjá öðrum þegar Jonna bar aftur að garði.
Annars þekkti ég Jonna poppara ágætlega í gamla daga. Þá var þetta alræmdur hasshaus, ákavítisbelgur og sjálfstæðismaður sem samdi lög og texta sem voru andskotann ekkert skárri en hjá Bubb Morteins. Einlægt var hann ósmekklega klæddur og það var alvöru skítalykta af honum. En eitt mátti þó Jonni eiga þrátt fyrir að vera í föstu sambandi við sönggyðjuna: hann var á þeim árum yfirnáttúrulega kvensamur; hann reyndi bókstaflega við allt kvenkyns, allt uppí eldgamlar kerlingar, en í þeim aldursflokki varð honum, merkilegt nokk, langbest ágengt. Einusinni rotaði kona nokkur Jonna á dansleik í Þórskaffi með því að dangla handtöskunni sinni í hausinn á honum; sú gamla var nefnilega með fulla Wyborovaflösku í töskunni og höggið þar af leiðandi býsna þungt. Þegar Jonni garmurinn rankaði aftur við sér var hann svo ruglaður í ríminu að hann fór að reyna við togarasjómann, veðurbarinn og svolalegann, sem var að skemmta sér þarna. Skipti engum togum að sjóarinn tók Jonna undir handlegg sér, strunsaði með hann útúr Þórskaffi og veitti honum þvílíka kennslu í kynferðisathöfnum í næsta ruslatunnuporti, að Jonni sá sig tilneyddann að stinga af til útlanda þar sem hann hélt sig næstu árin.
Svona var nú það.
![]() |
Tilveran á hvolfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.10.2009 | 21:01
Ærði eldri borgara með öskrum og óhljóðum
Ég hélt í einfeldni minn, að það væri yfrið nóg að vera gamall og vistaður inni á elliheimili, rambandi daginn langann á grafarbakkanum og bíða þess að detta ofaní og finna moldina gusast yfir sig, svo ekki væri verið að auka á óþægindi ellinnar með því að láta Kristján Jóhannsson veina eins og stunginn grís yfir gamlingjunum. En í dag varð sá óhrjálegi atburður á dvalarheimilinu Grund, að nefdum Kristjáni var hleypt þar inn, bersýnilega í þeim tilgangi að hrella íbúana með óhljóðum af verstu tegund. Ég geri ráð fyrir að mikil skelfing hafi gripið um sig hjá hinu roskna fólki ,sem neyðist til að búa á Grund fyrir ellisakir, líkust þeirri ofsahræðslu sem verður þegar loftárásir eru gerðar á stórborgir erlendis.
Eftir að Krisján akureyringur hafði öskrað sig rámann og farinn að froðufella og gamla fólkið allt flúið inn til sín eða útá götu, hringdi einn öldungurinn í son sinn og skipaði honum að koma strax með gömlu haglabyssuna sína; hann ætlaði að vera viðbúinn og taka til sinna ráða næst þegar einhver öskurapinn gerði sig líklegan til að terroríséra á elliheimilinu.
Nú verðum við að vona, að Krisján Jóhannsson verði ekki fenginn til að reka upp hljóð yfir saklausu sauðfé í fjárhúsi eða hrossastóði í haga, það gæti haft mjög slæmar afleiðingar, enda myndi þessháttar tiltæki varða við lög um verndun dýra. Því miður eru engin slík lög til um eldri borgara á dvalarheimilum, sem sýnir betur en flest annað hvaða virðingar gamalt fólk nýtur af hálfu löggjafans.
![]() |
Söngskemmtun sjónvarpað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.10.2009 | 15:55
Ráðleggingar til síra Sigríðar
![]() |
Prestur fær dæmdar bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2009 | 10:23
Menningarleg niðurlæging
Ef það er rétt að íslendingar hafi étið 4000 McDónaldshamborgara á dag síðustu dagana, ber það þjóðinni sorglega sögu um hnignun, niðurlægingu og tilfinnanlegan skort á mannsæmandi menningu. Þessi ósköp eru svo sem í fullu samræmi við dæmalausa skoðanakönnun, þar sem fólk var spurt hverjum það treysti best til að leiða Ísland útúr martröð kreppunnar. Í stað þess að 90% þjóðarinnar teldi Steingrím J. best til þess arna fallinn, eins og eðlilegt hefði verið, nefndu 24, eitthvað % aðspurðra gamlan skrjóð, sem búið er að leggja og stendur númeralaus á hinu pólitíska bílaplani.
Ég veit ekki hvernig þetta endar með íslendinga ef þeir fara ekki að sjá að sér og hverfi frá vitleysu sinna vega.
![]() |
Allt brjálað að gera hjá McDonald's |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2009 | 21:06
Óráðshjal Össurar á leið í heimsmetabók
Svo hátt er Össur Skarphéðinsson ævinlega uppi, að mér er til efs að hann hafi nokkru sinni snert jörðina. Og það það virðist vera gáll á kalli þarna útí í Stokkhólmi. Nú ætlar hann að setja margfalt heimsmet í inngöngu í ESB. Það virðist ekki hvarfla að þessum hrútleiðinlega kjaftaaski að ESB-gönhlaup Samfylkingarinnar verði stöðvað með háum hvelli þegar þjóðin fær að kjósa um aðild að sambandinu. Það er ekki nema vona að finnska Stubbnum hafi ofboðið glamrið í Össuri og telji að það eigi best heima í kaflanum um óráðshjal í heimsmetabók Guinness.
![]() |
Á methraða inn í ESB? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.10.2009 | 19:09
Afar þýðingarmikil sérþjónusta
Hvaða sérþjónusta ætli það sé, sem síra Gunnari eldklerki Björnssyni, er falið að inna af hendi fyrir blessaðann byskubinn okkar? Mér sýnist á öllu að þar sé um verulega dularfullt embætti að ræða, sem gefur vel í aðra hönd fyrst síra Gunnar fúlasaði við 20 milljónum fyrir að gera ekki neitt. Nú, nafnbótin ,,sérþjónustuprestur" er svo sem ekkert slor, burtséð frá innihaldi hennar, heldur virðingarverð staða sem aðeins útvöldum gefst kostur á. Ég geri mér í hugarlund að svona sérþjónusta felist í að færa byskubnum kaffi og messuvín þegar hann er þyrstur, þurka af borðinu hjá honum og pússa skóna hans. Þá er ekki ólíklegt að síra Gunnar fái að lesa upp tölvupósta og SMS-skeyti fyrir hans heilagleika og hlaupa útí sjoppu eftir vindlum fyrir hann.
Svo segja mér fróðir menn og ólygnir, að sérþjónusta af þessu tagi sé afar þýðingarmikil og skipti bókstaflega sköpum fyrir allt kirkjuhald og boðun kenninga Jesú Krists. Það má því búast við kraftaverkum á kraftaverk ofan af embættislegu samstarfi síra Gunnars og byskubsins, og því ber að fagna.
![]() |
Gunnari boðinn starfslokasamningur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2009 | 18:20
Hahahahaha ... með tremma eftir stöðugleikafylliríið
Það er engu líkara en blessaður atvinnulífsverkalýðsforstjórinn Vilhjálmurgylfi hafi loks uppgötvað í svefnrofunum í morgun að ríkisstjórnin hafi sagt honum og stöðugleikasáttmálanum hans að fara til fjandans eða lengra í gærkvöldi. Ekki er að efa að það geti verið full hráslagalegt að vakna upp með andfælum eftir óralangt stöðugleikafyllirí. Það er víst allt annað en gaman ganga í gegnum deleríum tremens og önnur óhrjáleg fráhvarfseinkenni eftir þessháttar jörvagleði.
Það verður fróðlegt að sjá til Vilhjálmsgylfa þegar hann þegar hann flytur verkalýðnum barátturæðu á næsta 1. maí. Síðast var karlskepnan bauluð niður þegar hann lét til sín taka á þeim vettvangi. Næst má búast við að hann verði borinn niður og kastað útí Reykjavíkurtjörn. Það væri góður endir á farsælum verkalýðsforstjóraferli hjá Vilhjálmigylfa og sérlega vel við hæfi.
![]() |
Yfirlýsingin kom ASÍ á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2009 | 15:22
Fullyrðing Jesú Krists


![]() |
Vill taka upp þakkargjörðardag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.10.2009 | 14:12
Það vona ég að Guð gefi
Það vona ég að Guð gefi að kannabisræktunin, sem lögreglan stöðvaði í gær, hafi ekki verið til húsa að Háaleitisbrsut 1. En þeir sem þar búverka hafa víst nóg á sinni könnu þó svo þeir séu ekki gripnir glóðvolgir við að hlúa að 70 maríjúnaplöntum.
Ég verð að viðurkenna að við lestur fréttarinnar um kannabisbúskap í húsi í Háaleitishverfinu varð ég sleginn ægilegum óhug og hugsaði sem svo: Á nú að bjarga sér útúr ógöngunum með vímuefnasölu? Hvað taka menn ekki til bragðs þegar skuldir, og jafnvel handrukkarar, sverfa að? Ég frétti af einum afar frjálshuga manni sem seldi ömmu sína til að bjarga sér fram að næstu mánaðarmótum. Því miður fékkst skammarlega lágt verð fyrir ömmuna, þ.e. 85 þúsund íslenskar krónur. Þess ber þó að geta að amman var orðin fullra 79 ára gömul, en mjög svo er ótryggt hvað svo gamalt fólk endist svo gagn sé af.
En ég ítreka enn og aftur, að ég vona að Guð gefi að umrædd kannabisræktun í Háaleitishverfinu hafi ekki verið til húsa að Háaleitisbraut 1.
![]() |
Hald lagt á kannabisplöntur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Meðan ábyrgir leiðtogar fagna í Moskvu flaðra krataeigirnar u...
- Einelti gegn útgerðarmanni og eitthvað fleira
- Það er hamingja vor og lán að eiga ígildi kóngs
- Þá hefir frú Sæland fallið á léttasta prófi allra prófa. Aumi...
- Renturnar á Hjáleigunni
- Nýfrjálshyggjubyltingin étur börnin sín
- Litaforsetar nútímans á Íslandi og í Bandaríkjunum
- Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu
- Hrunistar, afturgöngur og krataeðlisauðvaldsstúss út um móa o...
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.5.): 115
- Sl. sólarhring: 182
- Sl. viku: 1775
- Frá upphafi: 1548060
Annað
- Innlit í dag: 88
- Innlit sl. viku: 1552
- Gestir í dag: 87
- IP-tölur í dag: 85
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007