6.12.2020 | 12:57
Nú fór herra G. Zógga alveg með sig og verður að segja sig til skógar
Hvort er betra að farsóttin skilji eftir ,,ákveðin sár" eða ,,óákveðin sár"? Þessu verður hagspekingurinn atarna að svara elligar veður hann dæmdur ómerkur og ekki í húsum hæfur og allra síst kirkjugræfur. Karlkjökrið getur svo sem reynt að gjöra bragarbót, en vér getum lofað honum strax, að þesskonar tilfæringar munu allar fara í handaskolum hjá honum og út um læri og maga alla virka daga. Þetta er alveg eins og þegar vitfirringur hleypur út í kviksyndi og situr þar fastur, en fólkið stendur á bakkanum og hlær að honum.
Eftir þetta vindspark herra G. Zógga er honum nauðugur einn kostur, sem sé að segja sig til skógar, gjörast skógargangsmaður og fara huldu höfði með fjöld óvina á hælunum. Gott ráð væri hjá herra G. Zógga, að fela sig upp til hlíða fram yfir jól og slást svo í hóp jólasveinanna, þegar þeir ráfa til sín, og gjörast jólasveinn. Grýla mun eflaust vígja gemlinginn formlega til jólasveins upp úr áramótunum og láta hann sofa hjá sér fram yfir þorra. Eftir það mun herra G. Zógga hlotnast það ótrúlega lán að fá, eins og aðrir nýjólasveinar, að klappa og kyssa Jólakettinum og liggja hjá honum á nóttinni.
Það er náttúrulega sorglegra en tárum taki að verða vitni að enn einu óráðsfálminu hjá hagfræðilærðum greyjum. Það er ekki nóg að tileinka sér gáfumanntal um ,,péníngastefnunefnd" og aðra fordild í þeim dúr, ef sá er brúkar þessháttar hjal kann ekki muninn á ,,ákveðnu" og ,,óákveðnu". Af heimskupörum af því tagi leiðir ekkert annað en ógæfa á hæsta stigi. Það er því best fyrir hr. Zógga að gyrða sig undir eins og í brók og drífa sig út og láta hríðina geyma sig þar til hann kemst með jólasveinum upp í óbyggðir.
![]() |
Farsóttin mun skilja eftir ákveðin sár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2020 | 22:32
Þá Yrsa Þöll lækningastúdent storkaði örlögunum með ferlegu framferði
Já, framferði E. Gúðmúndsen, doktórs í lýta- og inflúenzulækningum, er ekkert einsdæmi hér, ef út í það er farið. Samtímis dr. Gottfreði Gottfreðssyni lækni var konan Yrsa Þöll Brunnfelth, ættuð af Vestfjörðum. Á síðasta ári í læknadeildinni, undir vor, og þau áttu að útskrifast örfáum vikum seinna, gjörðist Yrsa Þöll svo stórtennt að hún gleypti í sig bólusóttarvírus, því henni var í mun að sanna að bólusóttin, sem sagt var að hefði gjört nær alla íslensku þjóðina útdauða, væri eins og hvur önnur þvættingsfirra.
Fám dögum síðar var læknaneminn Yrsa Þöll orðin eins og útspörkuð svínastía í framan af bólum og búkurinn var svo viðbjóðslegur að hinir læknastúdentarnir gubbuðu, magnstola af viðbjóði, og sögðu eitthvað ljótt um hana hvurjir við aðra. Gottfreð Gottfreðsson var þar viðstaddur og gubbaði hann mest og drakk mörg glös af sóttvarnarkogara á eftir til forðast smit. Nú, það var skipaður rannsóknarréttur til að komast að því hvað væri að Yrsu Þöll. Og þegar réttarlæknannir komust að hinu sanna, fluttu þeir bólusóttarsjúklinginn upp til sveit og komu honum fyrir í djúpri súheyisgryfju, sem bændur voru löngu hættir að nota, og þar fékk Yrsa Þöll að afplána sóttkvíareinangrun meðan bólurnar voru að hjaðna.
Þegar Yrsa Þöll hafði náð sér af bólusóttinni og önnur atvik lágu fyrir, þókti ekki annað forsvaranlegt en að koma henni fyrir á vitfirringahælinu, því augljóst var að manneskjan var brjáluð og vís með að hrinda af stað hættulegum farsóttum ef hún gengi laus. Svo fékk hún leyfi af hælinu og fór til Kaupmannahafnar, skömmu síðar braust út miltisbrandsfaraldur í Danmörku, sem varð bæði þarlendum mönnum og nautgripum að fjörtjóni. Af framansögðu ætti sumum að skiljast, að ekki er við hæfi að storka örlögunum í formi kóvíðs nítjánda.
![]() |
Beint á mótmæli daginn eftir heimkomu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Djöfull er hörmulegt að sjá hvurnig þetta leiðindalið skautar frá hjá þeirri staðreynd að það var frú Ingveldur sem fann upp píkuæfingarnar að sterkari píku. En burtséð frá því, þá notaði frú Ingveldur eiginmann sinn, Kolbein Kolbeinsson, til að þróa og sannreyna æfingarnar uns kallauminginn fékk bullandi legsig og hellti sér yfir frú Ingveldi með nautslegum sóðamunnsöfnuði, en frú Ingveldur svaraði honum með því að kalla hann bölvaða láfu og sló með flötum lófa á botninn á karlinum, nægilega fast til að hann fékk óbragð í munninn sem entist langt fram eftir degi til að japla á.
Það eru auðvitað þrjátíu ár síðan frú Ingveldur uppgötvaði grindarbotninn, fyrst manna og kvenna í heiminum, og fékk fljótlega einkaleyfi á henni. Uppgötvun sinni fylgdi frú Ingveldur eftir með metsölubókinni ,,Láfan mín og láfan þín - æfingar fyrir fullorðna", sem síðan hefir verið biflía láfuunnenda, bæði nær og fjær. Já, þannig var það og er. Af þessum sökum er hjartaskerandi að sjá bráðunga og efnilega frauku valsa fram á sjónarsviðið og halda því fram að hún hafi fundið píkuna upp og allar þær góðu æfingar sem gjöra píku að sannri píku.
Þessi ósköp fara áreiðanlega fyrir rétt, Landsrétt, enda er ekkert gamanmál að taka patent, sem er eign frú Ingveldar, ekkert gamanmál. Og þar eð um er að ræða grindarbotn og heimsfrægar æfingar á láfunni, sem frú Ingveldur neyddi mann sinn með harðri hendi að æfa og tileinka sér þar til hann stóð á þambi, þá má reikna með að þurfi að endurskipa Landsrétt með tilliti til þess að núverandi dómarar þar á bæ eru allir tengdir málsaðilum á einn og annan hátt. Það held ég verði þrifalegur andskoti fyrir dómsmálaráðherra og sérlegan aðstoðarmann hennar og ráðgjafa, Stjörnusýslumanninn Stones, að þefa uppi nýja dómara í Landsrétt, sem einnig hafa yfirgripsmikla þekkingu á píkum, láfum og grindarbotnum.
Meðfylgjandi mynd er af frú Ingveldi og lögmanni hennar.
![]() |
Fáðu sterkari píku með Píkusporti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2020 | 22:35
Frægur feitisklepri í rotþró auðvaldssamfélagsins. Er það eftirsóknarvert hlutskipti?
Hvaða ómenni ætli það hafi verið sem göbbuðu veslings barnið til að glamra hjá kjaftaskjóðunum hjá Sameinuðu þjóðunum? Svo gapir þetta grey framan í glottandi smettin á þeim hjá Sameinuðu þjóðunum og kvakar, reynir að tala tungum um eitthvert kjaftæði sem henni hefir verið sagt að tala um. Hún veit ekki, þessi smjörlíkisskörungur að jafnrétti þýðir annað og meira en innantómur og einskisverður kynjametingur á Íslandi. Að minnsta kosti talaði hún ekki um óréttlætið, ójöfnuðinn og glæpina í heiminum, sem eru svo stórir að fólk sem alist hefir upp í bómullarkassa á háskólalóðinni hefir ekki getu til að sjá þá og skilja.
En auðvitað geta allir, sem lyst hafa á, gluggaskrautast og leikið sig einhverskonar bölvuð skoffín og prumphænsni framan í lostugt trýnið á hinum kapítalíska heimi, sem telur sig auðvitað eiga meirihluta hlutabréfa í Sameinuðu þjóðunum. Hitt er svo alvarlegra mál, að það, að etja einfeldningum og fíflum á forað forheimskunnar í heiminum, er mikið óhæfuverk sem ólíklegt er að nokkur geti fyrirgefið, allra síst Guð.
Það eru döpur eftirmæli, líklega þau döprustu og auvirðilegustu sem hægt er að hugsa sér, að hafa verið eins og feitisklepri í rotþró auðvaldssamfélagsins og flotið um rænulaus til lokadags. Auðvita reyna allar ærlegar persónur að komast hjá slíku hlutskipti. En sumum er bara ekki viðbjargandi, þeim er ekki sjálfrátt, bugast fyrir hégómanum og kjósa fremur að vera þekktur klepri í soranum en óþekkt og af hjarta hógvær manneskja á æðra sviði mannheima.
![]() |
Alltaf tími fyrir jafnrétti kynjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki höfum vér neina vissu fyrir hvaðan úr veröldinni hinn frægi málsháttur ,,oft veltir dópaður ökumaður lítilli hlussu" er ættaður. Nú, böndin berast að útlöndum, því ekki búum vér Íslendingar til óþverra málshætti til að niðurlægja, smána og uppnefna samborgara okkar. Hjá háskólanum fengum vér þær upplýsingar, að fyrrgreindur málsháttur hafi á sínum tíma borist til landsins með illmennum á vöruflutningaskipi eða togara eða öðru fiskiskipi, sem hafði verið í fisksöluerindum erlendis.
Auðvitað verður að leita að þrælnum, eða þrælunum, smygluðu þessum meinlega og illkvittna málshætti til landsins, og láta þá taka út sína refsingu. Kunnugir telja að viss hætta sé á, að teknu tilliti til aldurs málsháttarins, að einhver þrælmennanna sé nú þegar dauður, jafnvel allir, og verði því ekki sóktir til saka hér í heimi, en með aðstoð sálrænna miðla megi hafa höndur á hári þessara misyndismanna þókt dauðir séu.
Hér verður aungvum getgátum að því leitt hvur sé dópaði ökumaðurinn, sem málshátturinn beinist að, eða hvur sé sú hlussa sem valt um koll. Og ef einhverjum þykir sóma sínum best borgið með því að hnýsast eftir hvur séu eiturlyfjabílstjórinn og hlussan, þá gjörir sá hinn sami það upp á eigin spýtur og tekur afleiðingunum.
![]() |
Dópaður bílstjóri og Mannréttindadómstóllinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2020 | 18:14
Góða fólkið ræðst á okkar besta mann
Það er eftir öðru hjá hinu vonda fólki, að ráðast að okkar bestmann, sjálfum Stjörnusýslumanninum Stones, og leiða hann fyrir rétt eins og hvurn annan stórglæpamann. Og hvur skal svo tilgangurinn vera með slíkum aðförum? Það má Guð einn vita, eða Fjandinn eftir atvikum, en grunurinn beinist ósjálfrátt að minnimáttarkennd og veikluðu sálarlífi góða fólksins, sem liggur á koma Stjörnusýslumanninum í dýflissuna til langrar afplánunar fyrir eitthvað sem aunginn maður veit.
Undanfarið hefir Störnusýslumaðurinn Stones mátt þola það straff af hinu opinbera að hýrast í gapastokk í einu horni dómsmálaráðuneytisins og horfa þaðan upp á litla ráðherrann bera liti og krem í andlitið á sjálfri sér svo strákunum lítist nú á hana. Þetta er auðvitað hryllileg meðferð á einum vammlausum Stjörnusýslumanni með aldeilis óflekkað orðspor og mannorð, og orð eins og mannréttindabrot og glæpur gegn mannkyni koma upp í hugann. Og nýlega réði ráðuneytið óþokkalegan fjósamann að norðan til að stunda hr stones í horninu og sína honum í leiðinni áþreyfanlegan vott þess hvaða hug hið opinbera hefur til hans.
Sagan segir að Stjörnusýslumaðurinn Stones sé búinn að fá nóg af góða fólkinu og ætli að yfirgefa það við fyrsta tækifæri með því að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum. Þar næst mun hann ganga til liðs við flokk Pírata og í þriðja lagi ætlar Stjörnusýslumaðurinn í framboð til Alþingis fyrir þann flokk. Það gefur augaleið, að leiðveisla Stjörnusýslumannsins Stones við Pírata, er einhver mesti búhnykkur sem einum stjórnmálaflokki getur hlotnast. Þegar hr. Stones verður kominn á þing og orðinn ráðherra fyrir Pírata er óhætt fyrir góða fólkið í Sjálfstæðisflokknum að fara að rifja upp bænirnar sínar þar eð aungvar líkur eru til að hr. Stones, þá orðinn dómsmálaráðherra, hlífi því fólki hið minnsta.
![]() |
Ólafur Helgi með réttarstöðu sakbornings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2020 | 22:49
Eru náttúrulausar kérlíngabækur og steingeldir glæpareyfarar eitthvað til að verðlauna?
Nú er heldur farinn að þynnast þrettándinn hjá bókaþjóðinni miklu, sem kveðst vera mesta bókaþjóð í heimi og þókt víðar væri leitað. Í raun og veru hefði ekki átt að tilnefna neina bók til verðlauna, svo lélegar þessar skræður nú eru. Mestmegnis eru þetta náttúrulausar kérlíngabækur, sumar með vott af harðlífi, og einkum skrifaðar til að fóðra stórbilaða athyglissýki þessara svokölluðu höfunda. Svona er nú komið fyrir bókaþjóðinni miklu.
Ástandið í höfundarmálum á Íslandi er orðið með þeim hætti, að hér finnst ekkert skáld undir sextíu og fimm ára aldri. Og framleiðslan! Jésús minn góður Guð á Hymmnum hátt! Mest eru þetta steingeldar og þurrundnar glæpareyfarasögur, allar gerðar eftir sömu uppskriftinni, svo andlausar og illa skrifaðar, að fólk sem glæpist á að lesa eitthvað af þessu helvíti grettir sig og fussar og kastar þeim hálflesnum undir pottinn, það er að segja þeir sem búa svo vel að hafa hlóðir í eldhúsinu, hinir fleyja skruddunum bara út um næsta glugga.
Með sama áframhaldi munu Íslendingar verða innan fárra að algerðu athlægi á alþjóðavettvangi og til þess tekið að hin merka bókaþjóð, sem samdi Íslendingasögurnar, Sturlungu, Ævisögu séra Árna, og Íslandsklukkuna, hafi orðið fémínískum ruglbókmenntum, glæpareyfararusli og sjálfumglaðri afturúrkreistingakynslóð að bráð. Hnignun og stórbrotin úrkynjun íslenskra bókmennta og lista verður eflaust rannsökuð þegar fram líða stundir og trúlega munu þá koma upp úr kafinu ýmislegt sem mun gjöra nútímaúrkynjunaraðallinn frægan af endemum í bókmenntasögunni.
![]() |
Fimmtán bækur tilnefndar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.12.2020 kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.12.2020 | 15:42
Sökudólgunum verður vissulega eytt og frökenin fær milljarðir
Það er það minnsta sem veslings konan getur gert er að draga ríkið og fjölmiðla eins og dauðaseka flækingshunda fyrir dóm og fá þeim eytt. Einkum ætti fröken Anna Aurora að draga þessi eiturkvikindi fyrir eftirlætisdómstól frú Andersen og þeirra í Sjálfstæðisflokknum, Landsrétt, því sá dómur er rétt skipaður og hefir áreiðanlega blessum Drotins Sjálfstæðisflokksins yfir sér.
Vissulega leiða allar líkur til þess, að Landsréttur dæmi ríkið og helvítis fjölmiðlana til dauða og væri það auðvitað vel. Hinsvegar er vandasamt verk að leiða ríki og fjölmiðla fyrir aftökusveit, því vitað er að venjuleg vopn bíta illa á þær skepnur. Sennilegt má því telja að sökudólgarnir verði færðir fyrir uppáhalds dómsstig hans Gjeirs okkar hérna Haaardý, sem sé Landsdóm, en Landsdómur hefir vísast í fórum sínum verkfæri sem duga þá aflífa skal ríki og fjölmiðla.
Sjálf getur Anna Aurora reiknað með að fá svakalega summu úr ríkissjóði í bætur vegna óhugnanlegs framferðis ríkisins í hennar garð; það ku vera milljarðir á milljarðir ofan sem falla munu fröken Önnu Auroru í skaut, ef allt fer eftir áætlun bestu manna. Svo verðum við sjálf að reyna að ráða eitthvað framúr málum þegar ríkið verður dautt og búið að kæfa fjölmiðlana í eitt skipti fyrir öll eins og rottur í skólpfötu. En öll eru þessi mál nú sem stendur í undur góðum og blessunarríkum farvegi.
![]() |
Bakvörðurinn ætlar í mál við ríkið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2020 | 18:57
Svik meirihlutans eru þeirrar gerðar að ekki verður við unað lengur
Hvur andskotinn er nú um að vera í meirihluta borgarstjórnarinnar í Reykjavík? Hvað varð um hugmyndir og loforð meirihlutans um að breyta Reykjarvíkurtjörn í sundlaug með vatnsorgeli og líkneskju af berrassaðri hafmeyju, eða sjófrú, húkandi uppi á steini? Nei, það á auðvitað að svíkja það eins og annað. Við munum sko vel eftir því þegar Dagur og Holuhjallur vóðu út á tjarnarbakkann, örskammt frá ráðhúsnefnunni ljótu, og höfðu Líf og pírata- og viðreisnarskjóðurnar í eftirdragi og sóru við Guð Almáttugan að breyta bölvuðum tjarnardrullupollinum í stærstu og fullkomnustu sundlaug í heimi.
En nú hefir þetta lið gengið bak orða sinna varðandi Tjörnina en þykjast þess í stað ætla að steypa upp þrjár vatnsþrær og kalla þær sundlaugar. Sem betur fer er þó ekki allur hugur úr steikarameirihlutanum í Reykjavík, því nú lofa eignirnar ,,hjólaborg á heimsmælikvarða"! Hvar ætli sú ,,hjólaborg" eigi að vera? Ekki verður hún í veðravítinu Reykjavík, svo mikið er víst. En Reykjavíkurtjörn verður ekki stærsta sundlaug í heimi á næsta ári með vatnsorgeli og berrassaðri sjófrauku, sem er við að krókna í hel alein uppi á steini.
Nú leggjum vér til að meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur verði aflagður, hann leystur upp og meðlimir hans klénir sendir í útlegð þangað sem fullvíst er að þeir geri ekki neitt af sér. Og frá ófrýnilegum óásetjanlegum borgarstjórnarmeirihluta bregðum vér oss suður á Bessastaði, en þar situr dólgur sem gaf út heilbrigðisvottorð á umsvif frú S.Á. Andersen, sem Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu dæmdi í morgun sem algerða og svínslega óhæfu. Nú þurfum vér, held ég, að eiga orð við kurfinn á Bessastöðum og byggja honum út af hinum fornfræga stað á Álftanesi og leyfa honum að slást í för með afsettum borgarstjórnarmeirihluta, frú Andersen, Áslaugu Örnu, og afganginum af Sjálfstæðisflokknum.
![]() |
Þrjár nýjar sundlaugar rísa og jafnmargir skólar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2020 | 14:49
Að þeim sækja eiturtungur
Hvað er það sem veldur telpukorninu Áslaugu Örnu vonbrigðum? Ekki ætlaðist hún þó til þess að Yfirdeild Mannréttindadóms Evrópu dæmdi rangt í frú Andersenmálum? Ekki trúum vér því. Eða stafa vonbrigðin af því að Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi skuli ekki skipa dómara í Yfirréttinn? Nægir ekki fyrir þennan ekkisinns Sjálfstæðisflokk að skipa alla dómara á Íslandi frá knattspyrnudómurum upp í hæstaréttardómara? En eftir vill særir meðferð Yfirréttarins á frú Andersen telpukornið Áslaugu Örnu? Litlum stúlkum líkar víst illa að horfa upp á sér eldri maddömur flengdar eins og óknyttabörn.
En svona fór nú fyrir aumingja frú S.Á. Andersen og nú er hún orðin fræg út um alla Evrópu fyrir að skipa eingöngu vini sína úr Flokknum í dómarasæti. Þvílíkt bölvað óréttlæti! Og fyrir þetta lítilræði ætla ógeð Íslands að gjöra frú Andersen brottræka, helst úr landi, sverta hana og svívirða með viðbjóðslegu orðfæri, útskúfa henni og eyðileggja hana í hvívetna.
Hvað er hægt að gjöra við eiturtungurnar svo þær þagni. Frú S.Á. Andersen þarf sinn frið og sína friðhelgi fyrir óðu fólki. Góður maður, - mjög góður maður, já, - laumaði að mér, að þegar eiturtungum er fargað, þá sé best að hafa yfir að ráða miklu magni skordýraeiturs og jafn mikið eða helst meira af kóðvíðs nítjánda vírusum, slíkt mundi yfirleitt nægja til að lækka rostann í eiturtungunum, lama þær og afmá. Já og jájá.
![]() |
Niðurstaðan veldur vonbrigðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.9.): 21
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 110
- Frá upphafi: 1553978
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 99
- Gestir í dag: 19
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007