Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Myrkrahöfðinginn mengaði þau með sínu djöfullegu innræti

djö2Vissulega eru fréttirnar af börnunum á Selfossi hræðilegar og morgunljóst að þar er ekki allt með felldu og ekki allt sem sýnist í fljótu bragði. Þegar börn taka upp á að haga sér einlægt eins og helvítisungar má ganga að því vísu að þá sé Sathan þar innan seilingar. Til eru margar sögur af börnum, sem Myrkrahöfðinginn mengaði með sínu djöfullega innræti, meðal annars með því að gróðursetja púka í börnunum. 

Kringum nítjánhundruð og sjötíu kom fram á sjónarsviðið forhertur barnaglæpaflokkur sem sveifst einskis og framdi voveifleg myrkraverk hvað ofan í annað svo öllu nærumhverfinu lá við sturlun. Fyrsta vísbendingin um að eitthvað óvenjulegt væri í aðsigi var þegar heimilisköttur Sigurgríms og Bínu kom einn daginn skottlaus heim; rófan á blessuðu dýrinu hafði verið hoggin af, líklega með exi. Tveimur dögum síðar fannst Kormákur sjómaður örendur bak við hús ofan við höfnina með gat eftir byssukúlu á hnakkanum. Þegar að var gáð sást greinilega að Kormákur hafði verið staddur úti á miðri götu, á leið til skips, þegar hann var myrtur, en síðan höfðu ódæðismennirnir dregið hann bak við hús. Ekki var öllu lokið með þessum tveimur glæpaverkum, síður en svo. Nú riðu yfir hinn friðsæla bæ, Stað, hvur glæpabrotsjórinn öðrum verri svo að við lá stórfelldum mannflótta, því allir voru skelfingu losnir nema glæpajurtirnar sjálfar.

aftakaEina nóttina stóð myndarlegt einbýlishús í björtu báli og fórust þar orðlög sæmdarhjón; síðar kom fram að þetta hús hafði orðið fyrir valinu af hálfu brennumanna vegna þess að húsbóndinn þar hét Njáll. Önnur hroðaleg hervirki, sem of langt mál er upp að telja í lítilfjörlegum bloggpistli, voru unnin á Stað um þessar mundir og lá nú íbúum vitfirringu, því aungin skýring fannst lengi vel á glæpunum. Svo, fyrir tilstuðlan athugulla og gáfaðra manna, komst upp um bófaflokk, sem valdur var að voðaverkunum. Glæpamannahópur þessi, saman stóð af einum bekk skólabana í Barna og unglingaskóla Staðs og mátti með sanni sjá að Sathan hafði tekið sér bólfestu í brjóstum þeirra. Allur var bekkurinn atarna handtekinn og sendur beina boðleið vestur í Breiðuvík til afdjöflunar. Síðar var kennari barnanna tekinn fastur og situr víst inni enn þann dag í dag. Eftir þetta fækkaði barnaglæpaverkum á Stað verulega.   


mbl.is Dreifa ofbeldismyndböndum á TikTok og Instagram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa þeir virkilega skæruliðadeild í góðgjörðafirmanu?

Grýla1Er það virkilegt að Samherji hafi hvorki meira né minna en skæruliðadeild í sínu rómaða góðgjörðafyrirtæki? Ef svo er, þá væri upplagt að fá að vita hvur skæruliðaforinginn er og hvurjir vinna með honum á skæruliðadeildinni. Eru til dæmis hann Stenngrimur okkar hérna Johoð og hann Stjáni Möller að störfum á deildinni? Hefir deildin marga skítadreifara og rógsvélar í drift? Er lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra tengdur sjálfstæðisflokknum, eða jafnvel í Sjálfstæðisflokknum eins og Vigfús heitinn Jónsson Þingeyingasýslumaður?

Og hvað ætli lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra geri við þorparana ef þeir nást? Eftir vill fela þeir sig svo vel, að kalla verður eftir liðsinni Hálfdáns Varðstjóra til hafa upp á þeim? Það væri vissulega laglegt. Hræddur er ég um að Hálfdán Varðstjóri gæfi þessum eftirlýstu óknyttapiltum aungin grið ef honum væri falið að hafa í höndur í hári þeirra; sennilega mundi hann byrja á að fletta þá klæðum og flengja þá dálaglega, hvurn með öðrum, síðan tæki hann sér ugglaust smá-vinnuhlé og hugsa til með framhaldið. 

rusl2Svo er að sjá hvar drengstaularnir kjósa sér felustað. Ólíklegt er að þeir hafi nokkurn slíkan sem bragð er af. Vel má vera að þeir reyni að dyljast undir sorpi í ruslatunnum, en Hálfdáni Varðstjóra mundi ekki muna um að svæla þá upp úr tunnunum með eldi, eða fylla þær með vatni svo drengjunum lægi við drukknun þannig að þeir hæfu sig á kreik. Svo fer varðsveit norðanmanna með sakamennina með sér norður og lokar þá inni í kaldri geymslu eða hjalli og þar væru þeir sveltir og barðir þar þeir þeir mundu meðganga greiðlega glæpi sína gegn skæruliðadeildinni. 


mbl.is Lögreglan boðar blaðamenn í yfirheyrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn hefir hann á sínum snærum röggsama embættismenn, sem betur fer

ingv39.jpgOho-ho-ho-ho-ho ... Svo Sjálfstæðisflokksskröggurinn, sem þeir segja háskólarektor, setti hægri bífuna svona asskoti settlega í endaþarmssvæðið á siðanefndinni þannig að hún hrökk út um gluggann í háskólanum og brotnaði í mél á stéttinni fyrir neðan. Mikil ósköp er ég búinn að hlæja að þessari kostulegu frétt af háskólarektornum og siðanefndinni, oho-ho-ho-ho! Og sagði ekki skáldið eitthvað á þessa leið í ljóðaljóði sínu: ,,Skólarektor er Skrattinn, þú veist, með skósíðan hala, klaufir og horn.! Oho-ho-ho-ho-ho!

Á öðrum vígstöðvum siðsemdar og siðbóta Sjálfstæðisflokksins hefir leynilögreglumaður að norðan verið sendur suður til að rannsaka íll umtal götustráka um tiltekna skæruliðasveit. Slíkt er þetta afrek þeirra fyrir norðan land að það minnir á fátt annað en þegar Bjarni sýslumaður Halldórsson á Þingeyrum reið suður til Bessastaða og stefndi óvini sínum, sem hafði leyft sér að geispa golunni, og las honum stefnuna þar sem hann lá dauður í gröf sinni. Þetta er svo skuggalegur og ótrúlegur atburður að fara verður aftur til ársins 1783 þegar sýslumaður Þingeyinga sturlaðist og hljóp óður í Eyjafjarðará og öslaði eftir henni fulla hálfa bæjarleið.

rass2En ósiðlegar siðanefndir verður að slá af umsvifalaust þegar uppvíst verður um siðleysi hennar. Og um óforskammaða götustráka, sem fara illum orðum um virðulega bústólpa landsins, er það að segja, að best væri að hegna þessháttar dólgum með bannfæringu og útskúfum og loks að gjöra þá landræka ef þeir láta ekki skipast, eins og gert var við Fræða-Gísla, sem forsmáði altarissakramenntin og vanrækti náðarmeðulin. Það gleður oss meir en orð fá lýst í þessu sambandi, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur enn á sínum snærum röggsama embættismenn, ekki síður en á átjándu öldinni, sem bera gæfu til að taka harkalega á vonsku og ósiðum illa artaðra skrílmenna.   


mbl.is Siðanefnd Háskólans segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elliær jafníngsmaður lurðast heim

drunk2Jafníngsmaður var rekinn með skít og skömm úr ríkisstjórn fyrir spillingu, hann var í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum sem aldrei hefir kallað neitt ömmu sína þegar spilling er í boði. Með skófar á afturendanum var jafníngsmaðurinn verðlaunaður með sendiherrajobbi; við þann hégóma lurðaðist hann þangað til núna nýverið. Elliær er jafníngsmaðurinn sendur til síns heima, með frímerki á rassagatinu, og fór strax í prófkjör hjá Uppskafningaflokknum og gersigraði. Þar er nú ekki meiri metnaðurinn þar á bæ.

Umræddur jafníngsmaður er úr Hafnarfirði. Þaðan er líka hrunskrjóðurinn Á. Matthíesen, þann náunga stóð til að draga á halanum fyrir Landsdóm. Annar jafníngsmaður, sá var með sendiherrajafníngnum í ríxstjórn þegar Hrunferlinu var ýtt úr vör, barg Matthiesen frá hlekkjum Landsdóms og verðlaunaði hann með feikn góðu jobbi á Ítalíu. Fleiri Hrunvörgum var bjargað Landsdómi og varð verulegur kurr meðal dómara út af þeirri uppákomu því þeir höfðu fullan hug á verðlauna Hrunarana með hjóli og steglu, en það var vinsælt úrræði hér fyrr meir þegar þorparar voru straffaðir. Það er af Hrunferlinu að segja, að það hófst með samlagi jafníngsmanna og íhaldsmanna árið 1991 og lauk með Stór-Hruni sömu aðila haustið 2008. Í millitíðinni starfaði systurflokkur jafnínganna, þeir úr Framsóknarfjósinu, að undirbúningi Hrunsins og var orðstír þeirra mikill.

hrútur2Nú hefir jafníngsmaðurinn skilað sér heim, elliær og karlægur, en þó ekki svo að hann gæti ekki sigrað með yfirburðum í prófkjöri uppskafningajafníngsins í Hafnarfirði. Og ef vér þekkjum Hafnfirðinga rétt, sem vér gerum, þá munu þeir ekki fúlsa við að fá einn maríneraðan frumkvöðul Hrunferlisins fyrir bæjarstjóra hjá sér, en flytja íhaldskérluna, sem undafarið hefir bæjarstjórnað Hafnfirðinum, hreppaflutningi austur í Landbrot eða norður til hans Indriða bónda að Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp og fá henni starfa þar viða að stinga undan grindum í fjárhúsum Indriða. ( Það skal skýrt tekið fram, til að fyrirbyggja allan misskilning, að Indriði bóndi í Skjaldfönn er ekkert í ætt við Indriða Handreð og því síður á hann ættir að rekja saman við konuskjátu Handreðsins, Máríu Borgargagn, því Indriði í Skjaldfönn er heiðvirður maður. Þér að segja.)  


mbl.is Sér færi á stórsigri jafnaðarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú fer að syrta í álinn hjá jómfrú Snædal, Höllu og skuggaböldrunum

xvg3Nú, það er mjög þekkt einkenni pestargemlinga að þeir finna alls ekki skítafnykinn af sjálfum sér. Þetta er heldur hvimleitt, því þeir er fyrir ólyktinni verða og eru of seinir að taka fyrir nefið, fá andarteppu af drullinu og verða helbláir í framan. Í dag var það efrimillistéttarfémínístinn, jómfrú Drífa Snædal, kom upp um sig í beinni sjónvarpsútsendingu, hvar hún viðurkenndi að finna ekki lykt af eiturgufunum sem stíga látlaust upp í verkalýðshreyfingunni og á ASÍ kontórnum. En svona er að vera samdauna vondri lykt, eiturstybbu, og háborgaralegri spillingu. Þá verður að koma fram, að þókt jómfrú Snædal finni ekki spillingaróþefinn af sjálfri sér, Höllu Gunnarsdóttur, Katrínu Jakobsdóttur, VG og gamla draugamorinu í verkalýðshreyfingunni, þá finna aðrir þessa ógnarpest og svíður undan í nasir og augu.

Þegar jómfrú Snædal og hennar vinskapur í efrimillistéttarfémínísmanum bera fyrir sig að þær skilji ekki Ragnar Þór, Sólveigu Önnu, Skaga-Villa og Aðalstein á Húsavík og þvertaka fyrir eitraða menningu innan verkalýðshreyfingarinnar, þá er næsta víst að hún er að verja eitthvað óhugnanlegt, sem heldur til í skúmaskotum og skuggakimum og hún hefir hag af að þykjast ekki kannast við. Enda skilur jómfrú Snædal ekki verkalýð og hefir víst aldregi dýft kræklunum á sér í kalt vatn, enn sem komið er, hvað þá sett upp gúmhanska og blóðgað og slægt þorskfiska í frosti og vosbúð. 

En nú syrtir heldur en ekki í álinn fyrir jómfrú Snædal, Höllu, Katrínu, VG, HF og íhaldskrataframsóknina. Það er nefnilega ekki ein báran stök, því þegar einn brimskaflinn rís er annar vís. Í næstu viku verður Sólveig Anna Jónsdóttir endurkjörin formaður Eflingar og þá er hætta á fyrir jómfrú Snædal, að Sólveig gjöri strax bandalag við Ragnar í VR, Skaga-Villa, Aðalstein og nokkra fleiri, sem þýðir að þá mun þetta fólk hafa meirihluta verkalýðshreyfingarinnar á bak við sig og hefja þegar í stað langþráða hreingerningu innan vébanda verkafólks og sópa út öllum leiðindaskepnum, sem legið hafa á spena hreyfingarinnar og notið velvildar atvinnurekenda, auðvalds, arðræningja og svindilbraskara. Þá verður gaman að lifa Katrín mín og kus kus. 


mbl.is Áttar sig ekki á eitruðum kúltúr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá heyrði hann rödd af himnum sem sagði

vélSvona fer Samfylkingin með sína bestu menn. Það er henni líkt. Þar skríður elítan sem ein blóðþyrst gleraugnaslanga aftan að efnilegum frambjóðendum og höggur þá miskunarlaust niður með eiturtönnum sínum. Og þá er hinn illa séði frambjóðandi liggur óvígur í blóði sínu kallar elítan skítseiði sín til og býður þeim að kasta af sér vatni yfrum hinn fallna og gjöra stykki sín á hann. Þegar athöfninni er lokið hverfur elítan til síns heima, glöð í bragði, og étur steik í tilefni dagsins og sýpur á dýrum vínum með. Þetta kallar maður nú innanflokksmenningu sem bragð er af!

Eitt sinn hugðist slitin erfiðisvinnumaður taka þátt í prófkjöri hjá Samfylkingunni. Allt sitt líf hafði hann verið sannur félagshyggjumaður, jafnaðarmaður, sósíalist og sameignarsinni. Því miður fór að lít út fyrir að þessum náunga ætlaði að verða vel ágengt í prófkjörinu og það hljóp skrekkur í elítuna, ekki síst efrimillistéttarfémínístana sem þókti sér ógnað af einni hrjóstrugri karlskepnu. Þá var rógsvélin sókt og hún sett í gang og stigin í botn. Að fáum dögum liðnum var hættan af erfiðismanninum liðin hjá, hann lá einn í drullusvaðinu, útmakaður leðju, sóti og kólígérlum, - og algerlega ærulaus. Og elíta Samfylkingarinnar fór heiðursgöngu framhjá rógsvélinni og klappaði henni á kollinn og sagði: ,,Þessi vél er okkar eigin framleiðsla sem við höfum velþóknun á.

Einhverjir óþekktir Samverjar, sagðir nokkuð miskunnsamir, áttu leið hjá og sáu erfiðisvinnumanninn við dauðans dyr í leðjusvelgnum, veiddu hann upp, struku eðjuna af honum og settu hann í heitt sturtubað. Þegar karlanginn var loks kominn til sjálfs sín eftir meðferð elítunnar og miskunnarverk Samverjanna, fór hann að hugsa um hvernig á því gæti staðið að hann, heiðvirður maðurinn, væri í augum umheimsins allt í einu orðinn svívirðilegur og stórbrenglaður kynferðisglæpamaður, þjófur, hórkarl, eitursjúklingur og geðbilaður morðingi. Þá heyrði hann rödd af himnum, sem sagði: Meðan elítum stjórnmálaflokka og verkalýðshreyfingar helst uppi að hafa rógsvélar og skrímslavarðsveitir innan sinna vébanda er auðvaldinu og heimsvaldasinnu óhætt.


mbl.is Með ólíkindum að þetta hafi verið niðurstaðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í bakgarði vorum liggur óvinurinn í leyni

bóndiÞað er alltaf sama uppskriftin að undirbúningi stríðsglæpa hjá hjá hinum vestrænu heimsvaldasinnum. Vér erum öll sem eitt farin að þekkja þennan bragðúldna drullubakstur úr auðvaldsbrauðgerð USA, ESB og NATO. Um það þurfum vér ekki að ræða. Hinsvegar ættum vér Íslendingar að líta oss nær, því í bakgarði vorum liggur óvinurinn í leyni og bíður eftir hentugu tækifæri til að hremma oss og innlima. Ef vér höldum eigi vöku vorri verðum vér flattir út, étnir og gjörðir að hlekkjaþrælum í barbaríinu þi Thorshavn og Foglafirði.

Hvurnig er það, kæru landar, hafið þér ekki veitt framferði nágranna okkar, Færeyinga, athygli? Er ef til vill virkilegt, að það hafa farið fram hjá yður að áminnstir nágrannar vorir hafa verið að draga saman lið á landamærum þjóðar vorrar og þeirra? Nei, þér hafið ekki tekið eftir því. Það var yður líkt. Ef þér skoðuðu nýjustu gerviknattarmyndir af Færeyjum, þá mundu þér fá að sjá hvernig þessir svokölluðu nágrannar vorir hafa dregið saman vopnabyrgðir að ströndinni, þeirri sem sem snýr að oss. Heykvíslar, kindabyssur, dínamíttúpur tonnum, bogar, örvar, hakar og fjósaskóflur, hafa Færeyingar dregið fram á bjargbrúnir og ota nú að oss heldur ófriðlega. Þeir ætla auðsjánlega að læðast að oss eins og þjófur að nóttu og vinna oss eins og refakytta tófugreni.

Ef vér bregðumst eigi við þessu óviðfelldna vopnaskaki óvinarins eru endalok vor skammt undan, því Færíngar eru vísir með að ferja heri sína í lestum loðnuskipa sinna upp að Íslandsströndum og gjöra oss innrás að næturþeli. Og þá er út um allt, vér föllum allir. Þess vegna verum vér að vera fyrri til og senda Færeyingum viðeigandi glaðning, fyrst með flugflota vorum og fylgja síðan fast eftir með varðskipum og landgönguher. Svo tökum vér Færeyjar herskildi, gjörum heri þeirra óvirka og vængstýfum þá eins og hvurja aðra grimma hænsnfugla, sem setið hafa á launráðum við oss.


mbl.is Ný gögn: Rússar gætu gert innrás á næstu dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo mörg voru þau orð

xb7Jahh, déskotinn sjálfur! Vér vissum að hann væri slæmur, meira að segja mjög slæmur, og svo sem allt í lagi með það. En að hann væri framsóknarmaður, það datt oss ekki í hug. En svo skríður hann kolkrímaður undan skítugum pilsum gömlu géðbiluðu Framsóknarmaddömunnar og ætlar í framboði í Reykjavík fyrir þennan líka siðvillta og lönguglataða flokks, sem lengi hefir verið hýsill fyrir allrahanda auðvaldsóþverra, spillingu og glæpi. Vér sem héldum að Einsi Þorsteinsson væri bara lítill og heilaþveginn stuttbuxnastúfur úr Heimdalli vökum svo upp einn morguninn við það að þetta þá forhertur giljagaur úr Framsóknarfjósinu. Þetta er eins og vér hefðum fengið að ósekju og fyrirvaralaust dramm úr fleytifullum hlandkoppi framan í oss.

Nú herma fregnir aftur á móti að Einsa hafi þókt vistin góð undir skáluðum og hlandrökum pilsum Framsóknarmaddömunnar, og sú gamla hafi látið hafa eftir sér að strákurinn hafi reynst henni hinn vænsti tilberi og einhver hinn ágætasti í seinni tíð. Þó minnist gamla Maddaman Finns Ingólfssonar og hans Alfredós heitins með söknuði; ,,það voru nú drengir" sagði kerling við blaðamann og dæsti af unaði.

En það hefir margt sérkennilega sérkennilegt skreiðst undan pilsgopa Framsóknarmaddömunnar, sumt kostulegt en annað af ætthvísl skuggabaldra og tilberasnakka. Flest er þetta rammfalskur óaldarlýður, þefjandi af skólpræsum burgeisanna á Höfuðbóli Íhaldsins. Sennilega átti þjóðskáldið við þennan líka hroðalega mannsöfnuð er það orkti eftirfarandi vögguvísu:
  
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
myrða okkur líka einhvern veginn,
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að af mörgum þeirra væri skjátan flegin. (B.G.)


mbl.is Íhugar alvarlega að gefa kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðlaus sauðnaut sem skitu og migu í heyið vekja óhugnaðrhroll

x39Þá hafið þið það. Ef þið hafið ekki verið sannfærð um að Svandís væri ekki stuðningskona kvótakerfisins í sjávarútvegi og samherji Samherjanna, eins og Stenngrimur Johoð og Álfheiður, þá ætti þessi afstaða hennar að sýna ykkur hreint og klárt hver hún er. Heldur þú, Svandís Svavarsdóttir, að flokkurinn sem þú og fleiri sölsuðuð undir ykkur og stáluð frá sósíalistum, hafi verið stofnaður til að þjónusta forherta sægreifa og burgeisastéttina yfirleitt?

Hafi einhverju sinni verið fólk í stjórnmálum á Íslandi sem ætti að skammast sín, þá eru það hinar stórsérkennilegu persónur sem komust yfir VG og halda þeim flokki úti fyrir sjálft sig og auðvaldið á Íslandi. En því miður kann þetta lið ekki að blygðast sín fremur en siðlaus sauðnaut sem brotið hafa sér leið inn í hlöðuna og skitið og mígið þar allt út. Engin vopn eru til sem bíta á þessi forhertu endemi, sem una sér best við rúllettuhjól kapítalismans í leit að lofi brugeisanna. Það eina sem hugsanlega mundi ganga frá svona dóti væri að kjósendur mundu sparka þeim öfugum út af Alþingi eins og skítugum flækingshundum.

x29Bara það eitt, að meintur ,,formaður" VG (eða HF, eins og flokksnafnið er skammstafað í dag)skuli hafa vogað sér að glenna sig eins og trúðfífl framan í foringja morðhundafélagsins NATO er þess eðlis, að óhugnaðarhrollur fer um okkur eldri sósíalistana. Við verðum samt að láta okkur það lynda, að siðlaus ófyrirleitin viðrini gefi okkur með framferði sínu fyrirlitningarmerki með löngutöng og láti sem þau viti ekki hverjir gerðu VG að þeim flokki sem hann varð, en það voru ekki Álfheiður, Svandísarslektið eða undanrennuungarnir með Katrínu og Gettubeturkálfana í fararbroddi.


mbl.is Styður ekki frumvarp um strandveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wíllúm er aunginn stjórnmálamaður, hann er aðeins halaklipptur framsóknarseppi

dog5Þrátt fyrir að vera ráðherra er Wíllúm aunginn stjórnmálamaður, hann er einungis halakipptur framsóknarmaður og vesæll snattseppi gömlu geðbiluðu Framsóknarmaddömunnar. Auðvitað er slíkum vandræðiapilti fjandans sama um hvort péníngasjúkir auðvaldsperrar sölsi heilbrigiskerfið undir sig og eyðileggi það með áróðri lygum og skefjalausri græðgi. Einkennilegra er að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki fyrir löngu hafa innlimað Framsóknarfjósið, ekið Framsóknarfjóshaugnum á sín tún og lógað gömlu Framsóknarmaddömunni eins og hvurjum öðrum illa örtuðum urðarketti.

Allt var þetta svo sem fyrir séð og líklega telja stórbændurnir í Valhöllu betra og skemmtilegra að leyfa Framsóknarstrumpunum að hokra við sína gölnu Maddömu á hjáleigunni í túnfæti Íhaldsins til að gjöra niðurlægingu þeirra enn stærri og augljósari. Við hliðina á Framsóknarhjáleigunni er svo þurrabúð Kratalinganna, þessara líka þefillu aðdáenda auðvaldsins, ESB og NATO; ekki eru það minni gerpi en óvinafögnuðurinn í Framsóknarfjósinu, seiseinei og ojbara.

En svo er það hinn úrkynjaði villulýður VG. Það er nú meiri fjandans söfnuðurinn. Halda þessar skepnur virkilega að ég og fleiri hafi stofnað Vinstrihreyfinguna grænt framboð undir þær til að stunda auðvaldsþjónustu, nýfrjálshyggju, niðurlægjandi NATO dekur og skemmdarverkastarfsemi á opinberu heilbrigðiskerfi og öðrum mikilvægum samfélagsverkfærum í almannaeign? Var það kannski erindi ykkar, Katrín, Stenngrimur, Álfheiður og Swandeesýfjölskylda, að stela þessum ógæfusama flokki frá okkur sósíalistum til að geta notað hann til að sleikja ykkur upp við aðalinn, ríka fólkið, arðræningjana og burgeisastéttina yfirleitt? Af hverju genguð þið ekki bara beint í Sjálfstæðisflokkinn og fóruð að snobbhænsnast þar eins og drukknir græðgisseggir?  


mbl.is Skiptir ekki máli hvort sé einkarekin eða opinber
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband