Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ákvað að afglæpavæða barneign bónda síns

fundur3Þegar frú Ingveldur hætti að lúskra á Kolbeini eiginmanni sínum, eftir að hún komst að því Kolbeinn ætti barn á laun, gerði hún það einungis í skaðminnkunarskyni, því hún vissi vel að ef hún lemdi hann meira þá mundi hann bara slasast meira af hennar völdum. Og eftir dálitla umhugsun ákvað frú Ingveldur að afglæpavæða barneign bónda síns, því annars væri hann vís með að fjölga börnum með hórdómi.

Nú má segja, að í dag sé frú Ingveldur vitrasta kona á Íslandi, jafnframt mestur höfðingi hvað varðar gestrisni og góð ráð. Síðustu vikur hefir hún unnið hörðum höndum að því að auka fylgi Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum og hefir orðið vel ágengt. Enda segir hún að hægt sé að selja hroðalega illa útlítandi vöru, bakteríufulla og eitraða við háu verði sé hún aðeins reidd fram í huggulegum umbúðum. 

fundur5Í kveld verður hringborðsneysla að heimili frú Ingveldar og Kolbeins, enda hefir Sjálfstæðisflokkurinn gefið það út að kóvíðið sé búið og hafi aldrei verið til, en lyfjaframleiðendur séu búnar að fá sinn stórgróða af kóvíðnum í bili og allir ánægðir. Við hringboðið verða skaðminnkuð efni á boðstólum, svo sem eins og kókaín frá Kólumbíu, kannabis frá Afganistan og romm, whiskey og koníak frá Stórabretlandi og Frans. Umræðuefni kvöldsins eru málefni Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í víðum skilningi, hugmyndum um skipan framboðslista þessara flokka kastað fram til áframhaldandi mótunnar. Enn fremur verða lögð á ráðin með stórárás flokkanna á heilbrigðiskerfið, þar sem markmiðið er að vinna kerfið af almenningi í landinu og fela það samherjum og gifturíka kaupfélagsstjóranum fyrir norðan land. Þetta verður það sem kallað er notaleg kveldsamvera góðra samherherja með keimlík áhugamál. Á milli atriða mun Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur skríða undir borðinu og góða og kitla sitjandi gesti millum fótanna og geta sér til um hver sé hver o.s.frv.


mbl.is Læknafélagið mótfallið afglæpavæðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunverulegir og heiðarlegir verkalýðssinnar og sósíalistar

rev8_1162252.jpgEf einhverjir eru raunverulegir og heiðarlegir sósíalistar og verkalýðssinnar á Íslandi eru það félagi Þorvaldur og félagi Vésteinn og aðrir sem hafa einhverja tengingu við Alþýðufylkinguna. Þessvegna hvet ég verkafólk og verkalýðssinna til að gera ferð sína á Ingólfstorg í dag til að sýna þeim samstöðu.

Á meðan Þorvaldur og Vésteinn boða alþýðuna til fundar við sig undir beru lofti, sitja pótintátar, sem ætla sér að gera út á verkalýð og sósíalisma, og þykir gaman að sleikja sér upp við alþýðu og verkafólk á fyrst maí, inni í stofuhita fyrir framan myndavélar og hátalara eins og mala upp einhverja meira eða minna innantómar og á köflum heimskulegar ræður um aumingja fátæka fólkið, sem það þó ekki þekkir. Þetta er hörmuleg og grátbrosleg elíta, sem sem Gonnsi Smári hefir kallað til í ,,sjónvarpsþátt" fyrir hádegi þann 1. maí 2021. Um leið er enn fínni launamannaelíta mætt til skrafs á Rás 1. Ég veit svo sem ekki hvort verkafólk er að hlusta á þessar elítur núna, en eitt er víst, að þetta settlega lið, sem leggur mikið upp úr að tala gáfumannlega að hætti háskólaspekinga, kemur aldrei til með ógna kapítalistunum og kapítalismanum með margfyrirséðu gaggi sínu, sem oft á tíðum líkist öfundargaggi keipakrakka sem heimtar meira sælgæti og meira dót.

x36Hinn 1. maí í dag, árið 2021, í skugga kóðvíðsfarsóttarinna, ætti verkafólk og öreigar að skoða í hugskot sitt og kanna hvort ekki sé tímabært að taka núverandi verkalýðshreyfingu og flokka sem þykjast vera afkomendur hennar í ærlega lúsahreinsun. Sósíalískur verkalýður verður að losa sig við öll sníkjudýr, loddara, lukkuriddara, flugumenn auðvaldsþjóðskipulagsins ef hann á að geta byggt sig upp sem alþýðuhreyfingu, allt annað er dæmt til að mistakast. Ég verð í huganum með félögum mínum, þeim Þorvaldi og Vésteini, á Ingólfstorgi á eftir.   


mbl.is Boða til fundar á Ingólfstorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég held þau ættu að huga að sosialistaflokknum sem þau stukku frá

verkoÞetta er þá svona alvarlegt að bæði Bandaríkja-Solla og Amríku-Viddi þurftu bæði að halda á kröfunni um óháða rannsókn í salinn. Jú, þær geta verið þungar þessar kröfur, jafnvel tveggja manna tak. Hinsvegar hefir þeim greyjunum alveg yfirsést að þau búa í þjófasamfélagi, eða öllu heldur þjófafélagi, þar sem ekkert hefir upp á sig að klaga eða kæra. Það væri nær fyrir þau að huga örlítið að sosialistaflokknum, sem þau byrjuðu að búa til en hlupu svo frá þegar þau hrepptu happdrættisvinninginn í Eflingu fyrir tilstilli óstofnaðs sosialistaflokks. Það er margt í mörgu, vinir mínir, og sumt helst til torskilið og vitlaust.

Já, aumingja sosialistaflokkurinn sem Bandaríkja-Solla og Amríku-Viddi skildu eftir í reiðileysi hjá Gonnsa Smára, Þór Saaarý og Kattrina Bald, hefir ekki átt sjö dagana sæla. Um hann hefir hálfvitlaust fólk gengið eins og hvurn annan hundakofa og vitfirringahæli og með þennan vesaling ætlar það í alþingiskosningar. Eins og ekki sé nóg af framsóknarkrataeðlisflokkum fyrir í þinginu. 

Í dag varð ég fyrir því óláni að fara yfir stefnu og málefnaflokka sosialistaflokksins. Eftir þann lestur féllust mér höndur, því annan eins samsetning hefi ég ekki lengi lagt í að stauta mig fram úr. Væri umrædd lesning samin af tólf ára bekk í stjórnmálaleik hefði ég látið mér fátt um finnast. En því miður er hin sosialiska stefna niður skráð af fullorðnu fólki, flestu með háskólagráður, sem þykist vilja láta taka mark á sér. Ó nei, krakkar mínir, svona lagað gengur ekki. Slembislánarnir sem orktu upp þessar sérkennilegu sosialistarímur féllu á sínu prófi með 0,9 (núll komma níu) og nú verður Gonnsi Smári að ræsa alla sína tvöþúsund og eitthvað sosialista út og láta setja saman stefnu sem boðleg er sósíalískum flokki, þ.e. sósíalíska stefnuskrá en ekki borgaralegt drullumak eins og þetta sem er á blaði hjá Sósíalistaflokki Íslands á heimasíðu hans.  


mbl.is Krefst óháðrar rannsóknar á Init
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er dauð, gjaldþrota og fer innan skamms á uppboð

refsing2Loksins er þetta að verða búið. Brátt verður Reykjavík lýst gjaldþrota og fer á uppboð. Þetta hefir svo sem verið yfirvofandi lengi, sjúklingnum hefir hrakað jafnt og þétt og nú er hann kominn á líknardeild til að þiggja andlátsaðstoð. Já, drengir mínir, það vinnur aunginn sitt dauðastríð, allra síst Reykjavík. Mest verður þó gaman að sjá hvað þeir skrifa í dánarvottorðið. Flestir eru á því að þar muni standa: ,,Myrtur af sínum eigin kláðagemlingur." Og svo fá óráðsíuslyttin sem unnu á höfuðborginni að ganga lausir eins og hvurt annað hefðarfólk.

Dagur nokkur Béé, sem kvað hafa læknispróf, og farið hefir fyrir tilraunapyntingum á Reykjavíkurborg, er nú farinn að reyna að fegra sinn hlut og kjánanna sem hafa styrkt hann, með því að bera á borð að Reykjavík hafi fengið kóvíð nítjánda og sé nú sem óðast að drepast úr þeim sjúkdómi í öndunarvél. En það kemur fyrir lítið hjá Deginum að fría sig ábyrgð á andláti Reykjavíkur, það vita hvort eð er allir hvurjir lögðu til hennar með píníngartólum uns ekki varð aftur snúið.

Nú kemur það í hlut Samherjanna, Mogga, Sjálfstæðisflokksins, Kaupfélagsstjórans á Sauðárkróki, Kópavogs, Seltjarnarness, Garðahrepps og Mosfellssveitar að kaupa afskræmt og sundurlimað líkið af Reykjavík á uppboði. Þannig fór að lokum fyrir arfleyfð Ingólfs Arnarsonar, sem var þó aldrei til. Í dag tjóar ekki fyrir kláðagemlingana í ráðhúsinu í Reykjavík að mjókka götur, afnema bílastæði, bruðla á Óðinstogi og í bragganum í Nauthólsvík. Það mun heldur ekki duga fyrir gemlingana að ulla framan í Íhalds-Mörtu, þótt slæm sé, eða brúka stólpakjaft við Vigdísi. Reykjavík er dauð og fingraliprir samherjar eru þegar byrjaðir að róta í rústunum. 


mbl.is Staðan 15 milljörðum verri en áætlað var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hnáta sem fer fyrir ofstækis og öfgasamtökum öskrar fyrir peningageðsjúklingana

grenjRétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefir, af fullkomlega óskiljanlegum orsökum, barist fyrir því að sleppa kóvíð nítjánda óheftum og nýfrjálsum á landsmenn, þá eru þessi skuggalegu samtök á höttunum eftir því að ná heilbrigðiskerfinu af almenningi, alþýðunni í landinu, og færa það samherjum og sótröftum; það kalla viðrinin heilbrigt einkaframtak, heilbrigða samkeppni og heilbrigðan fjárfestingarkost. Það versta við atriðin í heilbrigðu upptalningunni er, að þessir heilbrigðisórar nýfrjálshyggjugeðsjúklinga og auðvaldssvína er fyrst og fremst birtingarmynd samfélagslegrar geðveiki, sem er blátt áfram hættuleg.

Til að mæla með niðurbroti heilbirgiskerfis okkar og fyrirhuguðum þjófanaði á því er að þessu sinni fengin dulítil hnáta með ,,virðulegt" ættarnafn; Mathiesem, eða eitthvað soleiðis; máski skyld sama Mathiesen og stóð að frægum Hrunríkisstjórnum fyrir 2009 og til stóð að færa fyrir Landsdóm með Haaardý karlinum. Þeim Nýfrjálshyggju-Mathiesen var bjargað fyrir horn af Össuri Skarphéðinssyni og verðlaunaður með góðu jobbi suðrá Ítalíu og hefir nú verið verðlaunaður með öðru góðu jobbi hjá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. 

Nú er semsagt telpuhnátu att fram á foraðið til að krefjast einkavæðingar á heilbrigðiskerfinu, sjúkrahúsunum og sjúklingunum ásamt öllu er því ágæta gróðabralli viðkemur. Fyrir utan samherja, hrunvalda og annan forhertan braskaralýð, þá eru það péníngalæknarnir slefandi sem standa að því að ýta stúlkunni með ,,virðulega" ættarnafnið út í drulluvilpuna til að æpa upp kröfuna um einkavæðingu heilbrigðisins. Sú stutta er að vísu ,,formaður ungra sjálfstæðismanna" sem eru öfgasamtök ungliða á mála hjá Sjálfstæðisflokknum. Það verður verkefni allra ærlegra kjósenda á Íslandi að koma í veg fyrir slík ofstækisfélög, sem og móðurflokkur þeirra, skipulögðu samtökin sem kalla sig Sjálfstæðisflokk, verði lengur við völd eftir næstu kosningar.


mbl.is Einkaframtak nauðsynlegt í heilbrigðisgeiranum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkja-Solveig í búbblunni og okurhjónin á Alftanesi

ing15Já, hún Bandaríkja-Solveig í búbblunni skjótti heldr en ekki fast á Bessastaðaslektið, en Eflingar-búbblu-kvendið ber á þau á Bessastöðum að þau séu gráðug okurhjón og þar með til skammar þjóðinni. Hvað hefði gjörst, vinir mínir, ef Solveig, þessi víðkunna tilfinningavera, hefði þurft að flytja búferlum þegar hún gjörðist Eflingarforkona, af því sú kvöð fylgdi embættinu að slík forkona byggi í forkonuíbúð Eflingar? Hefði tilfinningaveran leigt sína eigin einkabúbblu einhverjum fyrir svo gott sem ekki neitt, eða hefði hún farið Gwöðnaforsetaleiðina og fengið sárafátækt fólk til leigja af sér við okurupphæð, sem hefði lagt fátæku hjónin endanlega í ræsið ásamt börnum þeirra?

Það væri vissulega geðug staða að sjá einn búbblaðan kvenfélagsrekanda standa sig vel í tryllingslegu gróðabraski og innheimta kannski hart nær þrjúhundruð þúsund krónur á mánuði af vesælum leigutaka ofan á hin geysiháu laun sem búbblan, sem eitt sinn var prolla, hver fjandinn sem það nú er, fær hjá kvenfélaginu Eflingu í Reykjavík. En borgarastéttin er söm við sig og ekki hefir hún batnað til muna eftir að hún tók efrimillistéttarfémínísmann í þjónustu sína.

róa2En okrarahjónin á Bessastöðum verður að taka úr umferð, það held ég sé hvurjum manni ljóst. Best væri að fá bátseigandi Álftnesing til að skjóta þessum aðkomuhjónum yfir Skerjafjörðinn og upp á Seltjarnarnes, þaðan er stutt fyrir þau að fara fótgangandi heim í okuríbúðina sína. Þar mun þeim dreyma vel. En náttúrlega verða þau fyrst að ryðja leigjendunum út. En þar eð nú er vor í lofti ætti ekki að væsa um þessa leigjendafjölskyldu þótt hún þurfi kannski að gista fáeinar nætur undir beru lofti og það besta við þá tilhögun er að fyrir vikið þurfa þau ekki að borga okurleigu.


mbl.is Skýtur fast á forsetahjónin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsjónaeldur hins hugsjónasljóasta mun aldrei brenna eitt eða neitt

gildra1Þetta er með því besta sem heyrst hefur lengi, oho-ho-ho-hooojjj! ,,Í mér brennur ennþá hugsjónaeldur", segir veslings pappakassinn, einhver hugsjónasljóasti lukkuriddari Íslands og það jafnvel þótt Kattrin Kobba, sú afvelta Lilja Rafney og Óli Góði séu meðtalin.

Fyrir síðustu alþingiskosningar kom hinn heiti hugsjónaeldur K.Ó. Propps skýrt fram þegar hann sór við kviðskegg Stenngrims spámanns, frammi fyrir fullorðnum erfiðisvinnumanni fyrir utan bensínstöð, að hann mundi aldrei aldrei aldrei, ekki fremur en önnur þingmenni VG, samþykkja ríkisstjórnarsamstarf VG við Sjálfstæðisflokkinn. Daginn eftir kosningar sveik herra K.Ó. Proppur heit sitt við alþýðuna og kjagaði furðu léttstígur, ásamt hinum smámennunum í þingflokki VG, beinustu leið inn í Valhöllu og sóru Sjálfstæðisflokknum hollustu sína. - Ja, það var þó hugsjónaeldurinn atarna, sagði kerlingin við snyrtiborðið í saltfiskvinnslunni þegar hún frétti af ferðalagi Proppsins og vina hans inn á stofugólf Sjálfstæðisflokksins.

Og undir kveld í dag skellti Bjarni Jónsson Lilju Rafneyju flatri í drullusvaðið, felldi hann hana á skessubragði. Næst eru félagsmenn VG í Reykjavík vísir til að taka í hnakkadrömbin á Kattrinu Kobbó, Swandeesý og frú St. Pálsson og sturta þeim ofan í næsta tiltækan gám við Sorpu. Nú, hugsjónamaðurinn ægilegi, sem brennur og brennur, og slökkt var í um daginn á Suðurlandi, er nú blessunarlega afturgenginn í Reykjavík og bíður þess eins að fá að fylgja með í gáminn ásamt Kattrinu og þeim. 


mbl.is „Í mér brennur ennþá hugsjónaeldur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ein báran rís er önnur vís, sú er reynslan af rafleikum

reiðarslagVið upphaf rafrunksins á Íslandi varð fljótt ljóst að það mundi enda með ósköpum. Það leið heldur ekki á löngu þar til fyrsta óhappið, - ja, eða öllu heldur fyrsta slysið, - átti sér stað. Það hún Soffía heitin, hún fannst látin á klósettskálinni heima hjá sér, skálin sótug að innan en tólið hálfbrunnið á botninum. Á rannsóknarstofunni komust þeir að því að það hafði orðið skammhlaup, þéttingar gefið sig og rafurstraumur á við eldingu, fremur litla að vísu, losnaði úr læðingi og því fór sem fór.

Næsta slys varð þegar stautur með rautt ljós á endanum fuðraði upp við notkun og gekk hér um bil frá konu á Vesturlandi. Það skal tekið fram að eftir þetta hefir hún ekki verið við karlmann kennd, konu ekki heldur, og hatar upp frá þessu allar tækninýungar. Hún er bundin við hjólastól síðan, kérlíngarfjandinn, og ill viðureignar. Ekki var þriflegri atburðurinn sem sagt var að hent hefði manninn á Hvammstanga. Þeim góða manni hafði af ókunnri ástæðu áskotnast verkfæri, hjálpartæki svokallað, sem hann bar varfærnislega að þjóhnöppum sínum. Svo varð sprenging.

En svo einkennilegt sem það er, þá hefir rafrunkið ekki lagst af á Íslandi þrátt fyrir ítrekuð slys og dauðsföll af völdum þess. Fjandinn einn getur vitað hvað þessu andskotans fólki gengur til þegar það virðir að vettugi alvarleg áföll og hræðilega reynslu fólks sem hefir örkumlast og jafnvel dáið af rafmagnsrunki og gjört sér eilíflega til skammar fyrir losta sakir og öfuguggahátt. Samt hefir frú Ingveldur aldrei fallið fyrir rafrunksfreistingunni og látið svo um mælt, að frekar muni hún brúka girðingarstaur en þetta helvítis rafmagnsdrasl, sem hafði næstum riðið Kolbeini eiginmanni hennar að fullu.  


mbl.is 400 manna rafíþróttamóti fram haldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var kastað út á skottinu en reynir strax að smygla sér inn aftur

kickÞeir sem ekki kunna að skammast sín láta ekki deigan síga þótt búið sé að henda þeim út á skottinu einusinni. Slíkir melrakkar ramba bara að næsta húsi og reyna lauma sér þar inn þrátt fyrir að augljóst sé hverjum vitbornum manni að enginn vilji sjá innandyra hjá sér. En herra K.Ó. Proppur gjörir sér aungva grein fyrir hvað sómir sér því hann heldur hann sé það vel innundir hjá stærstu hluthöfum VG að honum verði tryggt gott sæti á framboðslista. Að vísu er hr. Proppur gjörsamlega hugsjónalaus og liðónýtur til stjórnmála, þannig að hann passa svo sem ágætlega inn hinn háborgaralega undanrennusöfnuð sem haslað hefur sér völl í skjóli Stenngrims, Álfheiðar og Svavarsfjölskyldunnar, en kjósendur margir hverjir kunna bara ekkert að meta spjátrunga af þessu tagi. 

En að vandræðaskáldinu og Sjálfstæðisflokkssleikjaranum hr. Proppi slepptum, þá gjörðu frú Ingveldur og Kolbeinn eiginmaður hennar sér lítið fyrir og þverbrutu allar sóttvarnarreglur og fylltu hús sitt af frammáfólki í gjærkveldi. Þar hafði fólk um hönd sterkt áfengi, einnig hvítt og rautt og graðhestabjórsull ásamt hvítu dufti á spegilfægðum silfurbakka. Og þar sem eðli samkvæma af þessu kalíberi er gjarnan á þann veg að samkvæmisgestum verður þegar á líður mjök oft mál að drýgja hór geta þau orðið nokkuð söguleg. Í nótt gjörði til dæmist Brynjar Vondalykt hosur sínar grænar fyrir kvenbelg úr Framsóknarflokki Kolbeins Kolbeinssonar og tókst að lokka hana með sér fram í bílskúr, en þar vóru þá fyrir Máría Borgargagn og ónefnd glimmertuðra úr Valhöllu og var ekki annað að sjá að færi afar vel á með þeim.

Þegar kvenbelgurinn úr Framsókn, sem Vondalyktin hafði fullan hug á að spenna þarna á bílskúrsgólfinu, sá á athafnir þeirra er fyrir voru fyllist hún hræsnisfullri vandlætingu og spurði samferðarmann sinn hvaða eiginlega helvískar hórdómsskækjur þetta væru sem lægju þar saman berrassaðar úti í horni eins og skepnur. Brynjari Vondulykt varð auðvitað tregt tungu að hræra því honum þókti viðhorf verðandi lagskonu sinnar ískyggilegt og ófélagslegt. Því var það að hann felldi kvenbelginn framsóknaríska á leggjarbragði og kom hún niður við hlið þeirra Máríu Borgargagns og fylgdi Brynjar fallinu eftir af slíkri einurð, að hann var kominn með buxurnar niðrum sig um leið og hann lenti ofan á lagskonu sinni, en Borgargagnir og hennar samkvæmisdama tóku blítt á móti þeim og þjónuðu þeim alveg. 


mbl.is Færir sig til baka og gefur kost á sér í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saklaust fólk heima í stofu fór stanslaust hjá sér meðan á fíflalátunum stóð

x36Hún er búin að vera og það svo rækilega að ekki tekur fyrir hana að hreinsa úr buxunum. Fundur hina misheppnuðu fyrirmenna í Hörpu í dag framkallaði einn allsherjar kjána- og bjánahroll, því þeir er sátu heima í stofu og horfðu og hlustuðu á öll þau firn og býsn, sem ríkisstjórn Ísland bauð upp á, fóru stanslaust hjá sér meðan á fíflalátunum stóð. Fyrir það fyrsta brá flestum í brún þegar Bjarniben hóf ,,fundinn" einn á sviðinu og talaði á þann hátt að öllum átti að skiljast að hann hefði nú öll völd; hann var meira að segja svo geggjaður að hann lét sér ekki muna um að tala um einhverjar óábyrgar persónur sem létu sig hafa að brjóta sóttvarnarlög! Hann er víst lofsamlega búinn að gleyma trallinu í Ásmundarsal á Þolláksmessukvöld fyrir tæpum fjórum mánuðum síðan og hefðu átt að varða, ef allt væri með felldu, brottrekstur úr ríkisstjórninni.

Og ekki vantaði að ráðherrarnir, sem voru sýndir á fundinum, töluðu fjálglega um hertar reglur, sem þó líta út eins og illa heppnaðar sjónhverfingar framkvæmdar af langdrukknum töfrakarli. Málæði af þeim toga sem ráðherranefnurnar brúkuðu á landsmenn í dag kallaði sá mikli meistari Þórbergur Þórðarson ,,ruglandi" og nefndi sérstaklega, að stjórnmálamenn og póletiskir kjaftaskúmar notuðu ,,ruglandi" á vísvitandi hátt til að þyrla upp ryki í blekkingarskyni, eða með öðrum orðum: Ljúga að kjósendum og leika sér að þjóðinni. Að þurfa að horfa upp á svona heimskupör og óskammfeilni af hálfu æðsta ráðs stjórnsýslunnar á Íslandi er þess eðlis að manni fallast hendur af undrun og gremju.

Nú ætti öllum að vera orðið ljóst, að það er sjakalahjörð Sjálfstæðisflokksins sem ræður för varðandi sóttvarnir vegna kóvíðs nítjánda. Biluðustu nýfrjálshyggjuböðlarnir, sem því miður eiga sér líka talsmenn á Alþingi og í ríkisstjórn, virðast vera í sérstöku átaki við að koma því til leiðar að kóvíðsveirunni verði sleppt lausri og óhindraðri á landslýð. Hlutverk stjórnmálamanna annarra flokka virðist vera að berjast með þumalputtunum gegn því að hálfri þjóðinni verði misþyrmt með hinni frjálsu kóvíðsveiru nýfrjálshyggjupervertanna. Samt er Sjálfstæðisflokkurinn aðeins rétt rúmlega tuttugu prósent flokkur og ræður öllu sem honum sýsnist. Og að sjá Katrínu ,,forsætisráðherra" gera sig opinberlega að fífli með ótrúlegum fettum og brettum, skóluðu handapati og fyrirvaralausum skítaglottum hér og þar, bara til að þjónusta Sjálfstæðisflokkinn, nýfrjálshyggjuskemmdavargana þar, Engeyingana, Samherjana og bankaræningjana úr Hruninu Sjálfstæðisflokksins, er hreint skelfilegt fyrir venjulegt fólk og nánast óbærilegt fyrir heiðarlega sósíalista, sem öðrum fremur stofnuðu VG fyrir tuttugu árum, þó svo þeim hafi verið bolað þaðan út af valdasjúkum flokkseigendum og efrimillistéttarfémínístum og einhverju undanrennurusli sem flokkseigendur höfðu á sínum snærum. 


mbl.is „Algjörlega vilji löggjafans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband