Leita í fréttum mbl.is

Saklaust fólk heima í stofu fór stanslaust hjá sér međan á fíflalátunum stóđ

x36Hún er búin ađ vera og ţađ svo rćkilega ađ ekki tekur fyrir hana ađ hreinsa úr buxunum. Fundur hina misheppnuđu fyrirmenna í Hörpu í dag framkallađi einn allsherjar kjána- og bjánahroll, ţví ţeir er sátu heima í stofu og horfđu og hlustuđu á öll ţau firn og býsn, sem ríkisstjórn Ísland bauđ upp á, fóru stanslaust hjá sér međan á fíflalátunum stóđ. Fyrir ţađ fyrsta brá flestum í brún ţegar Bjarniben hóf ,,fundinn" einn á sviđinu og talađi á ţann hátt ađ öllum átti ađ skiljast ađ hann hefđi nú öll völd; hann var meira ađ segja svo geggjađur ađ hann lét sér ekki muna um ađ tala um einhverjar óábyrgar persónur sem létu sig hafa ađ brjóta sóttvarnarlög! Hann er víst lofsamlega búinn ađ gleyma trallinu í Ásmundarsal á Ţolláksmessukvöld fyrir tćpum fjórum mánuđum síđan og hefđu átt ađ varđa, ef allt vćri međ felldu, brottrekstur úr ríkisstjórninni.

Og ekki vantađi ađ ráđherrarnir, sem voru sýndir á fundinum, töluđu fjálglega um hertar reglur, sem ţó líta út eins og illa heppnađar sjónhverfingar framkvćmdar af langdrukknum töfrakarli. Málćđi af ţeim toga sem ráđherranefnurnar brúkuđu á landsmenn í dag kallađi sá mikli meistari Ţórbergur Ţórđarson ,,ruglandi" og nefndi sérstaklega, ađ stjórnmálamenn og póletiskir kjaftaskúmar notuđu ,,ruglandi" á vísvitandi hátt til ađ ţyrla upp ryki í blekkingarskyni, eđa međ öđrum orđum: Ljúga ađ kjósendum og leika sér ađ ţjóđinni. Ađ ţurfa ađ horfa upp á svona heimskupör og óskammfeilni af hálfu ćđsta ráđs stjórnsýslunnar á Íslandi er ţess eđlis ađ manni fallast hendur af undrun og gremju.

Nú ćtti öllum ađ vera orđiđ ljóst, ađ ţađ er sjakalahjörđ Sjálfstćđisflokksins sem rćđur för varđandi sóttvarnir vegna kóvíđs nítjánda. Biluđustu nýfrjálshyggjuböđlarnir, sem ţví miđur eiga sér líka talsmenn á Alţingi og í ríkisstjórn, virđast vera í sérstöku átaki viđ ađ koma ţví til leiđar ađ kóvíđsveirunni verđi sleppt lausri og óhindrađri á landslýđ. Hlutverk stjórnmálamanna annarra flokka virđist vera ađ berjast međ ţumalputtunum gegn ţví ađ hálfri ţjóđinni verđi misţyrmt međ hinni frjálsu kóvíđsveiru nýfrjálshyggjupervertanna. Samt er Sjálfstćđisflokkurinn ađeins rétt rúmlega tuttugu prósent flokkur og rćđur öllu sem honum sýsnist. Og ađ sjá Katrínu ,,forsćtisráđherra" gera sig opinberlega ađ fífli međ ótrúlegum fettum og brettum, skóluđu handapati og fyrirvaralausum skítaglottum hér og ţar, bara til ađ ţjónusta Sjálfstćđisflokkinn, nýfrjálshyggjuskemmdavargana ţar, Engeyingana, Samherjana og bankarćningjana úr Hruninu Sjálfstćđisflokksins, er hreint skelfilegt fyrir venjulegt fólk og nánast óbćrilegt fyrir heiđarlega sósíalista, sem öđrum fremur stofnuđu VG fyrir tuttugu árum, ţó svo ţeim hafi veriđ bolađ ţađan út af valdasjúkum flokkseigendum og efrimillistéttarfémínístum og einhverju undanrennurusli sem flokkseigendur höfđu á sínum snćrum. 


mbl.is „Algjörlega vilji löggjafans“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband