Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vonlitlar tilraunir frú Ingveldar að kenna Brynjari nytsama hægðamarkþjálfun

fullurJá, hún Kristín Þórs hefir verið í læri hjá frú Ingveldi og numið af henni kynlífsmarksækni og mun brátt útskrifast sem dodoþjálfari. Frú Ingveldur er afar stolt og hreykin af nemanda sínum, Kristínu Þórs, og telur að kaflaskil verði í íslensku kynlífi eftir að hún fer að praktíséra það er hún hefir numið. 

Undanfarið hefir frú Ingveldur verið að kenna Brynjari Vondulykt til að verða salernis- og hægðamarkþjálfi, en það hefir nú gengið sona og sona, skohh. Brynjar er náttúrulega alræmdur sóði, öfuguggi og skítakarl og ætti því að vera í lofa lagið að nema hægðamarkþjálfun, en því er aldeilis ekki að heilsa, því Vondalyktin er treggáfuð á köflum og óheiðarleg við námið. Því hefir frú Ingveldur ítrekað hýtt kvikindið með drullusokknum og klósettburstanum, en án árangurs. Og nú er hún farin að sjá eftir að hafa ekki lagt Brynjar Vondulykt inn í sláturhúsið í haust; það hefði þá andskotakornið verið hægt að nota hann í kjötfars og þurrka afganginn af karlhelvítinu og mylja saman við pakkasúpur. Með því móti hefði Vondalyktin að leiðarlokum gjört mönnum dulítið gagn.

Sem kunnugt er var móðir Brynjars Vondulyktar frú Sigurveig Dræsa, ill kona og fláráð. Þegar hún andaðist, södd lífdaga, var hræið af kerlu brúkað í gæludýrafóður, með heldur sorglegum árangri. Hundarnir og kettirnir sem átu þennan mat drápust allir með óhljóðum; sjúkdómseinkennin hófust með geðveiki, dýrin urðu stjörf og tryllt, svo steyptust þau út í graftarbólum, holdsveiki og sýflis og steindrápust, sem betur fer, að lokum með hræðilegum öskrum og neyðarópum. Svona var nú gamla Sigurveig Dræsa, móðir Brynjars Vondulyktar, eitruð saklausum dýrum.

Meðfylgjandi mynd tók frú Ingveldur af Brynjari Vondulykt við lok síðasta tíma hans í markþjálfununni.


mbl.is Það á að taka út „normið“ í kynlífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kóvíðsnakkið orðið þreytandi og því breytum vér um umræðuefni og bjóðum yður fémínisma

ingv10_1127545.jpgFemínísmi er afkáralegt tilbrigði borgarastéttarinnar og gegnheilt stuðningsverkfæri við viðhald og virkjun kapítalísks þjóðskipulags. Fémínísminn hefir til dæmis þénast vel við að afvegaleiða og eyðileggja stjórnmálaflokka, sem í byrjun áttu að vera vinstrisinnaðir, jafnvel sósialískir, að upplagi; að því leyti hefir hann virkað eins og ópíum á fólkið.

Í eina tíð höfðum við Kvennalistann, sem um tíma naut nokkurs fylgis, en kafnaði svo í eigin skítalykt, innflokkserjum og almennu tilgagnsleysi. Því vakti það nokkra furðu að þetta femíníska lík skuli hafa veri endurlífgað og gert að hluthafa í Samfylkingunni við stofnun hennar. Og víst er um það að fémínísminn á þeim bæ þakkaði endurlífgunina að sínum hætti með eyðileggingarstarfsemi.

Sama varð uppi á teningnum hjá Vinstri grænum, sem upphaflega átti að verða róttækur vinstrisósíalískur flokkur með sterkar áherslur á náttúrvernd í víðasta skilningi. Það liðu ekki nema örfá ár frá stofnum VG þar til VG var formlega gerður að ,,fémínískum flokki", en sósíalismi gerður að bannorði í þeim húsum, sem og stéttarbarátta, - meira að segja umhverfismálin urðu hornreka þar. Nú stendur fyrirbrigðið VG frammi fyrir því að vera einungis fémínískur, tækifærisinnaður miðhægriflokkur, rúinn trausti allra vinstrisinna og umhverfisverndarsinna.

Fyrir skemmstu reyndu Gunnar Smári útrásarvíkingur, ásamt hrafli af hálfvitlausu liði í hundrað og einum (101) Reykjavík, að stofna sósíalistaflokk. En viti menn, áður en tekist hafði að stofna umræddan sósíalistaflokk spratt þar fram hópur fémínísta, sem þegar tók til óspilltra málanna við klofningsiðju, öfga og ofstopa. ,,Sósíalíska fémínísta" minnir mig þessir poletisku kjánar og klofningspésar kalli sig. Þar með held ég að tilraun Gunnars Smára með stofnun Sósíalistaflokks Íslands hafi runnið út í sandinn á heldur lúðalegan hátt.

En hvernig stendur á að fémínístarnir hafa ekki haslað sér völl í Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum og Miðflokknum með sama hætti og þeir hafa gert í Samfylkingu, VG og hinum andvana fædda sosialistaflokki Gunnars Smára? Fémínísminn er poletik borgarastéttarinnar, ekki síst háskólamenntaðrar efrimillistéttar og skartgripahringlandi yfirstéttar auðvaldsþjóðskipulagsins og þar á þetta óféti að halda sig.


mbl.is Ný bylgja eins og landsleikurinn við Ungverjaland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar auðnuleysingjar fjármagnsins fjölga ferðum til spákerlinga og galdrakarla

x17Þegar auðnuleysingjar borgarastéttarinnar verða uggandi um sinn hag fara þeir til spákerlinga og galdrakarla og láta þau spá fyrir sig um horfurnar, annaðhvort í kaffibolla eða spil. Spádómsfólkið kveður upp sinn dóm, sem ætíð er á þá leið að þeir sem pöntuðu spádóminn gleðjast við og kasta fúlgum fjár á spámennin. Svo fer sem fer.

Á vissum tímum fer ferðum hinna auvirðilegu borgarastéttarimba mjök fjölgandi á fund spámanna, sem spá eins og djöfulóðir eintómum péníngum, arðgreiðslum, hagvexti á hagvöxt ofan þar til lýðurinn stendur á þambi af góðærisvæntingum og góðærislosta. Þegar þar er komið er vanalega stutt í hrunið. En þegar hrunið ríður yfir, er því að sjálfsögðu velt umsvifalaust yfir á alþýðuna og hún látin borga herkostnaðinn af hruninu og spámönnunum.

gjh.jpgAllt er þetta víst gott og blessað og eins gott fyrir alþýðuna að láta höndur standa fram úr ermum og vinna eins og geggjuð upp í hrunið svo borgarastéttin geti sofið róleg á nóttinni. Sérstaklega þykir krataeðlissjúklingunum, sem eru órjúfanlegur hluti borgarastéttarinnar, jafn gott á verkalýð og fátæklingahelvítin að vinna fyrir töpum og hrakförum burgeisanna og kaupahéðnanna og sægreifanna. Fyrir nokkrum dögum tróð upp einn bröndóttur vindbelgur úr söfnuði krataeðlissjúklinga og hótaði helsta flokki borgarastéttarinnar að taka hann ekki með í næstu ríkisstjórn. Þetta er auðvitað meir en hláleg upphrópun hjá krataeðlisvesalingnum, því það skiptir nákvæmlega aungvu máli hvort Sjálfstæðisflokkurinn verður í næstu ríkisstjórn eða ekki; aunginn af hinum flokkunum hefir á prjónunum, fremur en Sjálfstæðisflokkurinn, að breyta þjóðskipulaginu, og af þeirra hálfu skal áfram keyrt á kapítalismanum, hvað sem tautar og raular. 


mbl.is S&P reikn­ar með efnahagsbata á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elíaza Stredd, Félag kvenna í móðurlífinu og þáttur frú Ingveldar í lífi félagsins

ing25Félag kvenna í móðurlífinu hefir starfað í rúma átta áratugi á Íslandi og enn er aungvann bilbug að finna á konunum sem eiga veg og vanda að félaginu. Sem kunnugt er, þá er Félag kvenna í móðurlífinu undirdeild í Félagi kvenna í atvinnulífinu, sem aftur er undirdeild í Sjálfstæðisflokknum. Nú, frú Ingveldur hefir verið forseti kvenna í móðurlífinu í stinn þrjátíu ár og allan þann tíma hefir Máría Borgargagn verið hennar varaforseti, þrátt fyrir að Máría hafi alla tíð verið stæk framsóknarkerla og alin upp á Maddömumjólk frá blautu barnsbeini.

Frú Ingveldur hefir í nafni Félags kvenna í móðurlífinu og sem forseti þess stundað víðáttumiklar móðurlífsrannsóknir og þá sérstaklega á varaforsetanum, Máríu Borgargagni. Á einu skeiði ferils síns hóf frú Ingveldur móðurlífsrannsóknir á Brynjari Vonudulykt. Það þóktu mjög merkilegar rannsóknir, þrátt fyrir ríkisstyrki af skornum skammti á þeim tíma. Niðurstaða rannsókanna var augljós eftir að hún birtist opinberlega, en þar sannaðist að mjög djúpt væri á móðulífi í kviði Brynjars Vondulyktar, en þeim mun meira fannst af nýrnasteinum og öðrum keimlíkum óþverra í belgnum á karldjöflinum.

ing12Í dag minntist frú Ingveldur þess þegar Elíaza Stredd kom til landsins og hélt magnaðan fyrirlestur hjá Félagi kvenna í móðurlífinu. Elíaza kom beint frá Rússlandi, en þar hafði hún legið hlekkjuð í Síberíu samkvæmt skipun frá Jósefi Stalín sjálfum, sem einhverjum þókti næsta kyndugt, því um þær mundir hafði Stalín karlinn legið í gröf sinni í rúma þrjá áratugi. Þegar þetta misræmi var borið upp við morgunblaðslærða forkólfa Sjálfstæðisflokksins sögðu þeir ýmist að helvítið hann Stalín hefði verið lifandi á níunda áratugnum og historían um að hann hefði látist upp úr nítjánhundruð og fimmtíu hefði verið lýgi eins og allt annað hjá Rússum, eða þeir fullyrtu glaðhlakkalega að Stalín hefði auðvitað gengið aftur og haldið áfram að ráðskast með allt í Rússlandi áratugum saman allt þar til hann fór að drekka upp á hvurn dag í gegnum Bórís nokkurn Jeltsín og linnti ekki látum fyrr en Bórís drapst úr brennivínsslagi, en þá var líka allt farið til andskotans í Rússlandi, bytingin fyrir bí og aðvífandi glæpamenn og stórþjófar komnir á vettvang til að stela öllu steini léttara af rússneskri alþýðu. Því er við að bæta, að orðið ,stredderí" á rót sína að rekja til Elíözu Stredd, en dagana sem hún var stödd hér á landi fór vægast sagt mikið fyrir henni á öldurhúsum og hotélum Reykjavíkurborgar. 


mbl.is Eliza kynnti viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ódulinn og ofstækisfullur nýfrjálshyggjuáróður frá villimönnum í OECD

auð4Það er ekki á þá logið, helvíska nýfrjálshyggjuperrana, að þeir vilji af alefli stuðla að því eyðileggja samfélög, sem hafa mátt þola búsifjar af nýfrjálshyggjugeðbiluninni, ennþá meira, og færa þau helst sem næst fullkominni villimennsku, ringulreið og brjálæði. Til að undirstrika geggjun frjálshyggjurugludallanna, senda þeir einhvern Angel, sem lítur út eins og hættulegur glæpamaður á mynd, á okkur og láta hann drulla yfir okkur ósiðuðum nýfrjálshyggjuórum í nafni OECD.

Þegar litið er yfir þennan ódulda nýfrjálshyggjuáróður frá ,,Efnahags- og framfarastofnuninni" OECD, er fljótsagt, að ekki hefir verið gusað framan í okkur annarri eins reginheimsku í langan tíma. Ofstækið, ofstopinn og fjandskapurinn í boðskap OECD er augljós, enda engin tilraun til að fela eitt né neitt í þeim efnum. Það minnsta sem íslensk stjórnvöld geta gert, er að krefjast þess að OEDC biðji okkur fyrirgefningar á óþverranum sem þessi sérkennilegu samtök létu herra Angel bera á borð fyrir okkur.

Og hvaða endemis giljagaurar og leppalúðar eru það sem settu þennan nýfrjálshyggjuóhugnað OECD saman? Getur til dæmis verið íslenskir nýfrjálshyggjustagkálfar hafi komið að þessum bræðingi? Öðru eins er svo sem auðvelt að trúa upp á þá vesalinga, svo gersamlega firrtir og geggjaðir sem þeir eru. Einhvern tíma var sagt, að nýfrjálshyggjan væri pípuhattur fasismans, það má til sanns vegar færa þegar haft er í huga að upp úr tryllingslegum rassaköstum nýfrjálshyggjunnar hefir sprottið ófétislegur fasismi, sem riðið hefir húsum víðsvegar um hinn vestræna auðvaldsheim. Gegn þessum hættulegu óværum, nýfrjálshyggjunni og fasismanum, verður siðað fólk í okkar heimshluta að bregðast á afgerandi hátt eins og um hættulega farsótt sé að ræða, - mun hættulegri en kóvíð nítjándi er og er hann þó verulega slæmur.    


mbl.is Vill afnema löggildingu bakara hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og nú bíður frændgarðurinn hans Malkólms spennt eftir því að hann verði léttari

full5Það komst víst einhver ljótur þrjótur í Malkólm Miðjustjörnu og gerði sér lítið fyrir og gjörði honum barn í kvið, með öðrum orðum: ódámurinn barnaði Malkólm Miðjustjörnu, sem má nú lúta þeim örlögum að rogast um með framsettan maga. Dólgurinn sem gjörði Malkólm svona óléttan er auðvitað á bak og burt og aunginn veit hvaðan hann kom né hvert hann fór eftir voðaverkið á Malkólmi. Þeir haga sér alltaf svona þessir landafjandar sem skilja eftir sig óléttur og börn hvar sem þeir bera niður í það og það skiptið.

En í nærsamfélagi Malkólms Miðjustjörnu bíða frændur hans og frænkur, vinir og kunningjar, eftir því hvurnig Malkólmi muni ganga við að verða léttari og þá ekki síður hvurs kyns afkvæmið verður. Sumir, þeir framúrstefnulegustu, eru strax farnir að spá því að Malkólm gangi með pan intersexúal hán, sem með tíð og tíma verði mannkynsfrelsari á hinum efstu dögum. Aðrir eru ekki eins bjartsýnir og telja drengurinn gangi vafalaust með kryppling, einhverskonar loðinn Óla Apakött, sem eigi eftir að spilla samfélaginu með sóðalegu orðbragði og glæpum.

Vér Íslendingar megum hrósa happi að hafa ekki þennan déskotans Malkólm Miðjustjörnu á meðal vor, nóg er samt af afturfótafiðrildum og gýrfeitismerum meðal oss svo ekki bætist í það safn Malkólm og væntanlegur erfingi hans. Eitt sinn, fyrir langalöngu, barst hingað til lands með erlendu fraktskipi óþokki nokkur sem varð eftir þegar skip lagði í haf. Um leið og hið útlenska skip, sem hét Josefina Mæersk, var horfið sjónum tók hin vonda eftirlegukind til óspilltra málanna. Hann gjörðist umsvifalaust hjónadjöfull, leitaði á smápilta og hafði ekkert fallegt í huga, hellti spurningastúlkur augafullar og notfærði sér ástand þeirra. Ef einhverjum varð á að reyna að stemma stigu við atferli þessa ógeðfellda afstyrmis, þá dró það þegar í stað upp flugbeittan hníf og hótaði illu einu og skaut hnífnum í brjóstið á andstæðingi sínum, ef hann var ekki nógu fljótur að hörfa undan og leggja á flótta. Ófremdarástandinu, sem skapaðist kringum þennan óboðna gest, slotaði ekki fyrr en Hálfdán Varðstjóri skarst í leikinn og lógaði kvikindinu í húsasundi niður við sjó.


mbl.is Eldri bróðir Malcolms á líka von á barni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útfararorð síra Baldvins yfir bersyndugum þorpara

síra BaldÞegar hann gekk í Sjálfstæðisflokkinn var teningunum kastað og ekki aftur snúið upp úr því. Frá og með þeim degi gekk hann hnarreistur hinn breiða veg sem liggur til glötunar. Já, þeir sem leiðast inn á glæpabrautina finna fyrir því hve sú leið er rennislétt og örugg og hve miklu hún skilar í aðra hönd. Svo tekur við holóttur slóði með hættulegum beygjum, blindhæðum og loks sigling inn í svartaþoku með tilheyrandi hafvillum. Þegar þar er komið er fátt annað eftir en að heyra hurðina að fangaklefanum glymja að hælum sér.

Sá aumi bróðir vor, er hér liggur milli fjögurra fjala, nýtti sína hérvistardaga við leik á markaðstorgi græðginnar þar sem aunginn vinnur annað en eilífa brennisteinsvist hjá Djöflinum í Helvíti. Og þókt freistast sé til að hafa yfir honum Guðs orð að leiðarlokum, þá koma þau ekki í veg fyrir hin óhjákvæmilegu örlög; Djöfullinn hefir nú þegar haft sálu hins burtsofnaða bróður með sér til Helvítis og pínslirnar eru þegar hafnar af fullri einurð,- því í Helvíti svíkjast undirdjöflar og púkar ekki undan merkjum þá böðulsstarf með kvalaöskrum og óhljóðum eru í boði. Í þessa djöfullegu gjá hefir vor fyrrum bróðir og viðhlægjandi hafnað og upp úr henni á hann ekki afturkvæmt.

Ekki stendur til, vinir mínir, að husla þann dauða, sem hér liggur, í kirkjugarði. Það er af og frá. Þann raft drögum vér út á víðavang og urðum hann þar innan um skrokka af hrossum, hundum og tilberum og leyfum foglum himins að kukka þar vild sína oná og allt um kring. Og að þessu sögðu fel ég Fjandanum formlega þann ólánsgrip, er vér geymum í kassa þessum fyrir framan oss, og megi allar vondar vættir hrína á ódáminn um aldur og eilífð. Fjarlægið svo þennan bannfærða fjanda frá augliti mínu og Drottins Allsherjar.


mbl.is Neitaði sök en játaði svo – 343 milljóna sekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hafa dverga og smákonur fyrir fífl til að geta hlegið að þeim ásamt heiminum öllum

x29Það er í tísku hjá auðvaldinu um þessar mundir að láta dverga, helst lítilfjörlegar smákonur, setja samkundur hjá sér. Fyrir nokkru síðan voru þeir hjá NATÓ að tralla með hana Katrínu okkar og léku sér að láta hana vera samkvæmisfíflið í NATÓ-messunni og gera sér ærlega til skammar fyrir framan augu heimsbyggðarinnar.

Í dag var Katrínu enn att fram á foraðið og látin opna Heimsþing auðvaldskerlinga. Aumast er að sjá, að Katrín ræfillinn virðist ekki gera sér grein fyrir að hún er leiksoppur auðvaldsins og auðvaldinu þykir óstjórnlega gaman að hafa hana fyrir endemis trúðfífl. Það er nú meira hvað auðvaldinu finnst virkilega skemmtilegt að niðurlægja nývinstrisinnana, nýsosialistana, og láta þá gjöra lítið úr sér fyrir allar augum. Ófrýnileg dæmi um það eru asnaleg frumhlaup Katrínar Jakk og vitringsins Stenngrims Johoð og sosialsíða Gunnars Smára útrásarvíkings, svo ekki sé minnst á blábjánavígi krataeðlisins Samfylkinguna.

Enn hefir heimurinn ekki gleymt uppákomunni þegar Grýla, móðir Jólasveinanna, jagaði einn samfylkingarunga og matbjó hann fyrir börnin sín. Skipti engum togum, að Jólasveinarnir skitu allir í buxurnar af samfylkingarkássunni og vóru næstum dánir og ekkert barn fékk nokkurn skapaðan hlut í skóinn það árið. En mikið ósköp þykir þingmönnum erkiauðvaldsins gaman að gjöra stólpagrín að Katrínu og hæðast að henni á bak og etja henni, alltaf jafn sauðheimskri, fram á foraðið til gjöra sér til skammar og fara í taugarnar á gömlu, raunverulegu sósíalkommúnistunum, sem góðu heilli eru enn til þrátt fyrir allt. 


mbl.is Katrín opnaði heimsþingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórglæpir breiðast út, - húsleit í höfuðstöðvunum skilaði engu

rat1Einhvern tíma hefði mátt ganga að því vísu, að umræddir rummungar í Kópavogi væru útsendarar Sjálfstæðisflokksins, því þar á bæ er menn gírugir við að auðga sig á annarra manna fjármunum. En í þetta skipti skilaði leit rannsóknarlögreglunnar í fórum Sjálfstæðisflokksins blátt áfram aungvu og æi höfuðstöðvum Flokksins við Bolholt í Reykjavík fannst ekkert nema hrafl úr innbroti í sjoppu, sem framið var í lok ágúst síðastliðins. Satt að segja lá við að gæfist upp í leit að glæpamönnunum, því að þeir er ,,stela öllu steini léttara, eins og sagt er í fréttinni, finnast alltaf innan vébanda Sjálfstæðisflokksins. En nú var ekki því að heilsa.

En þá datt einum rannsóknarlögreglumanninum, en sá maður hefir yfirnáttúrulegan sagnaranda, að leita hófana hjá Viðreisn og Miðflokknum. Og sjá: Undir handarjaðri Miðjúnga og Viðreisnar fannst allt það er Kópavogsbúar söknuðu af eigum sínum. Sigmundur Davíð var fyrstur manna tekinn fastur og færður í umsjá Hálfdáns Varðstjóra; þar á eftir vóru Thorgerður Kattharin og Banzi Braskari lokuð af í dýflissunni.

Að síðustu fór sveit á vegum Hálfdáns Varðstjóra að Klaustri þeirra Miðjúnga og varð þar strax bardagi, því munkarnir í klaustrinu veittu harða mótspyrnu, enda vel gegnsósa í messuvíni og öðrum sakaramenntum. Harðastur var samt Beggó, en honum tókst áður en yfir lauk, að steinrota þrjá lögregluþjóna. Er þar var komið, bar að Hálfdán Varðstjóra sjálfan, og lét hann verða sitt fyrsta verk á vettvangi að seilast til hreðja Beggós og taka hann hreðjataki. Má segja að með komu Hálfdáns hafi orrustunni lokið, því Hálfdán Varðstjóri sleppti ekki því taki er hafði náð á Beggó karlinum, heldur bar hann ýlfrandi og gólandi um borð í brynvagn sinn og lagði hann þar í járn. Að sjálfsögðu þykir lögreglunni miður að fleiri en Sjálfstæðisflokksmenn einir séu viðriðnir stórþjófnaði og vítaverða glæpi og telur að eitthvað hafa farið alvarlega úskeiðis. Að því verður samt að hyggja, í þessu sambandi, að eftir höfðinu dansa limirnir, og skylt er skeggið hökunni þá fjallað er um eðli og athafnir Sjálfstæðisflokksmanna annars vegar og Miðjúnga og Viðreisnarpoppara hins vegar.  


mbl.is Lögreglan hafði hendur í hári stórtækra þjófa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ernir eru óbetranlegar óvættir og ekki er bölvaður Jólakötturinn þeim neitt skárri

xd4.jpgDjöfullegir fuglar ernir, grimmir og stórhættulegir. Hér fyrrmeir þegar foreldrar gættu ekki barna sinna eins og tíðkast í dag, kom þráfaldlega fyrir að ernir komu aðvífandi og hremmdu börn sem voru að leik á hlaðinu heima eða úti á túni meðan fullorðna fólkið var við heyskap eða önnur störf, og flugu með þau burt. Í einni hroðalegri sögu af einu slíku tilviki flaug örninn með fimmvetra dreng upp í fjallsufsar, hvar hann hafi sér hreiður með ungum. Þeir er eftir sátu á bænum mundu alla ævi eftir hljóðunum í drengnum þegar örninn var slíta hann sundur í ungana. Það vóru hryllilegar stundir. Á þriðja degi heyrist ekkert meir ofan úr klettum annað er murrið í múkkanum og stöku kuldahlátrar í svartbaknum. En arnarungarnir stálpuðust hratt og gjörðust fljótt óvægin óféti sem móðir þeirra. Því gjöri ég að tillögu minni, að örninn í Húsdýragarðinum verði leiddur að höggstokknum í fyrramálið og hogginn án nokkurs hiks af honum hausinn. 

Þá er og þess að geta, að össufjandi fór að gjöra sig heimakomna að býli Ólafs bónda. Þetta var mikill fugl, fimur á væng og með öllu óseðjandi. Um vorið tók assan í það minnsta átta lömb traustataki af Ólafi bónda og nýborinn kálf drap hún og hafði í brott með sér í tveimur ferðum; assan reif sem sé kálfinn í tvennt því henni þókti  hann heldur þungur til flugs til að fara með hann í einni ferð. En svo lék assa af sér og það heldur illa. Hún hugðist nefnilega grípa hinn landsfræga fjárhund Ólafs bónda, hann Snata, og tæta hann ofan í börn sín grimm og svöng í hreiðrinu. Jú jú, illyrmið flaug undur létt niður við jörð með þýðum vængjatökum og kom aftan að Snata þar sem hann lá á hlaðinu og var að hugsa. En í þann mund sem assa ætlaði að læsa klónum í bráðina og hafa hana viðstöðulaust á brott stökk Snati eldsnöggt upp og náði koma tanngörðum sínum á háls hennar og beit.

catJá, vinir mínir, nær og fjær, það er ástæða til að vera á varðbergi þar sem örn er nær og rétt að hafa ekki um hönd fleipur og þvætting um þann fugl. Og það eru vissulega fleiri hættur sem a steðja á Íslandi, ekki síst á jólaföstunni þegar ægilegustu forynjur fara á stjá. Jólakötturinn er óskaplegt dæmi um hamslaust villudýr sem veður um sveitir og etur menn, einkum börn, óþekk börn. Það er ekki lengra síðan en í fyrra, að Jólakötturinn veiddi dreng austur á Héraði og át hann á staðnum. En það var nú ekkert miðað við uslann sem kvikindið gjörði á jólatrésskemmtun norður í Húnavatnssýslum fyrir fimm árum. Þar lét hann ekki við sitja að graðga í sig óþekka krakka, heldur hakkaði hann í sig tvær konur, aðra á besta aldri, hina afgamla, seiga og bragðvonda. Það var ekki laust við að kisi drægi kviðinn dulítið eftir jörðinni þegar hann laumaði sér á brott eftir allt átið.  


mbl.is Síbrotaörn færður í húsdýragarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband