Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
8.11.2020 | 19:18
Sosíalistinn Biden og fúleggin í 101 Reykjavík
Ofan á aðra harmleiki er allt útbíað í kóvíði nítjánda baktéríuvírusum í Hvíta húsinu. Þetta er orðið þessháttar pestabæli að sóttvarnaryfirvöld þar í landi eru komnir á fremsta hlunn með að kveikja í kofanum og brenna hann til ösku. Á síðustu dögum Trumbs skríða starfsmenn hans dauðveikir um gólf og vita ekki sitt rjúkandi ráð fremur er rottur og mýs sem hafa verið ruglaðar til helvítis með hátíðnihljóðum.
Þetta er allt voðalegt og bölvað og óhamingjan lekur af öllum veggjum hins hvíta húss. Bráðum verður Trumb sjálfur borinn út í böndum, varanlega geggjaður og galinn af kóðvíðum nítjánda. Þeir segja hann verði ekki hengdur, en innan um fólk fær hann ekki að valsa meir. Það er komið nóg af slíkum munaði vestra. Einn úr starfsliði forsetans fékk kóvíðinn nítjánda í rassboruna og sturlaðist; það veit aunginn hvað varð um þann dreng í raun og veru.
En mest er þó hlægilegt þegar íslensk trúðsfífl tala um Joe Biden sem vinstrimann, sosialist, og Démókrataflokkinn sem sosialistaflokk. Ekki er öll vitleysan eins, en þetta er þó með því alheimskulegasta sem 101 sosibullikollurnar í Reykjavík og á Akureyri hafa látið frá sér. Sannleikurinn er ólygnastur og hann segir að Biden sé trúlega þó nokkuð hægrisinnaðri en Trumb. En það er aulunum í 101 Reykjavík fyrirmunað að sjá. Að þessi fúlegg á hinum hrjóstruga poletiska akri skuli láta hafa eftir sér lofræður um stríðsæsingagamlingjann og framsóknartítuna Biden og kynna hann til leiks sem ægilega heilsteyptan sósíalista ber ömurlegt vitni um firringu og andlega örbirgð þessara vesalinga.
![]() |
Fleiri kórónuveirusmit í Hvíta húsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2020 | 17:05
Nú eru þeir farnir að jarðstinga látið fólk í stað þess að jarðsyngja það og hefir sá siður breiðst ört út
Auðvitað getur hann, karlanginn, sannað kosningasvindl, hvað annað? Það er ljótt að fara illa með öldunga og Trumb (orðið ,,Trumb" borið hér fram með norðlenskum framburði), auminginn sá arni hefir aldeilis fengið umfram aðra, að kenna á illmennsku landa sinna í garð gamalmenna. Nú blasir aðeins eitt við Trumb, og það er það, að gjörast örvasa og leggjast í kör þar til góðgjarnt fólk fer með skjátuna af honum í garðinn.
En vér höfum víst gleymt einu og það aungvu smáatriði. Já. Það er að Trumbs bíður legstaður, utangarðs að vísu, en legstaður þó. Það stendur víst til að vindþurrka þrjótinn og þá hann verður orðinn nógu þurr og glerharður á að reka hann niður í jörðina með sleggju. Það kalla þeir að jarðstinga hinn framliðna. Og þar eð athöfnin verður utangarðs verða aungvir sálmar sungnir yfir karli, aungvar bænir hafðar um hönd, og aunginn prestlærður maður látinn vappa umhverfis jarðstungustaðinn, þeim látna til hrellingar.
Í einu prófastsdæmi hérlendis hafa utangarðsembættanir verið hafnar til vegs og virðingar á nýjan leik. Þegar síra Baldvin tók við brauði í Gemlufallaprestakalli sá hann fljótt, að sumt fólk var þess eðlis að ekki sómdi sér að bera það í guðshúss til yfirsöngs eftir að það var dautt og enn síður væri við hæfi að koma því fyrir í vígðri mold innan um burtsofnaðar, sannkristnar sæmdarmanneskjur, sem máttu um sína hérvistardaga ekki vamm sitt vita. Því var það, að síra Baldvin aftók með öllu að jarðsyngja hyski, þrjóta og þorpara á kristiligan máta í kyrkjum og heita soleiðis fénaði skyldugri upprisu þá lúður gellur á hinum efsta degi. Í stað yfirsöngs og líkræðu hefir síra Baldvin látið fleygja illþýði og vondu fólki í gamlar mógrafir, fúafen eða dý, eða boðið starfsmönnum sveitarfélagsins að koma þeim dauða fyrir í grjóturð eða góðu jarðfalli og velta grjóti yfir. Í Gemlufallsprófastsdæmi þykja utangreftranir góður siður, eftir að fólk vandist þeim, og hefir þetta fyrirkomulag sparað margar krónur í útfararkostnað hjá fátækum sóknarbörnum síra Baldvins. Að vísu hefir borið á að þeir sem hafnað hafa utangarðs hafi lent í hafvillum eftir dauðann og gengið aftur með illindanaggi og draugagangi.
![]() |
Trump segist geta sannað kosningasvindl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2020 | 13:08
Viturlegra hefði verið að hleypa minkunum í hænsnakofana
Mikið sakna ég þess, að frændur okkar Danir, skuli ekki hafa farið viturlegar að ráði sínu þega þeir ákváðu að skera upp herör gegn minknum og plágunni sem honum fylgir og hleypa kvikindunum inn í hænsna- og kjúklingabúin, og leyfa þeim að vinna sína vinnu þar í friði. Þegar síðasta hænsnið væri dautt og aunginn kjúklingur eftir á lífi hefðu félagar í skotveiðifélagi Danmerkur fengið aðgang að hænsnahúsunum til skjóta minkana. Með því móti hefði Danskurinn slegið tvær flugur í einu höggi: Losað sig hænsnin og hættuna af fuglaflensunni og alla fárveiku, kóvíðs nítjánda smituðu minkana.
Ekki er minnsti vafi á að leikurinn mun berast hingað til lands innan tíðar og þá ríður á að bregðast hart við og hleypa íslensku minkunum á íslensku púturnar og senda að svo búnu skotþyrsta skotveiðifélagsmenn í hænsnakofana til að ráða niðurlögum minkanna í eitt skipti fyrir öll. Þá væri og skynsamlegt að leyfa víkingasveitin og hernum, sem Björn Bjarnason er að stofna heima hjá sér, að spreyta sig á minknum með þeim góðu vopnum sem þeir hafa yfir að ráða.
Nú, þá er ekkert eftir nema helvískur villiminkurinn, það lævísa og blóðgrimma dýr. En það kvað hægara orkt en gjört að ráða niðurlögum þess kvikindis. Hvað gerðist ekki í hlöðunni að Eirdísarfelli í fyrravetur? Jú, þegar bóndinn kom í hlöðuna til gegninga tók minkur á móti honum og beit hann á barkann. Þá að var komið hafði villudýrið nagað höfuðið af bóndanum og lagt það í jötuna í hrútastíunni, en hægri fótinn mannsins, frá mjöðm og niðrúr, hafði minkurinn á brott með sér til gottgjörelsis sér og fjölskyldu sinni. Af þessu getur hvur maður séð, að ekki dugir minna til en heimstyrjaldarrekstur fullkomnustu herja heims ef sigur á að vinnast í stríðinu við villuminkinn á Íslandi.
![]() |
Virðast mjög móttækilegir og smita auðveldlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.11.2020 kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2020 | 17:30
Er ofdrykkja í barnaskólum orðið daglegt brauð, - eða hvað?
Mikill þó Djöfull er að sjá nýjar myndir úr barnaskólum í dag, samanber skiliríið sem fylgir meðfylgjandi frétt af sóttvörnum í skólum. Á umræddri mynd má sjá nokkur skólabörn með stóran kogarabrúsa á milli sín, og er auðséð á krökkunum til hvurra nota kogarasprittið er. Ef mér hefði verið sagt fyrir fáeinum dögum, að barnaskólabörn sætu á skólabekk við spíritusnautn hefði ég ekki trúað því, en sem sjá má er myndin ólýgnust um gang mála í skólunum. Nú er víst algengt að sjá börn koma veltandi sökum ofdrykkju út úr skólum og haga sér mjög ósæmilega úti á skólalóðinni.
Í þann tíð er ég gekk í skóla hefði orðið uppi fótur og fit ef skólasystkini mín, eitt eða fleiri, hefðu dregið upp brennsluspritt í tíma og farið að dreypa á því, og skóladeginum hefði svo lokið með generalfylliríi. Ekki minnist ég uppákomu af því tagi, enda hefði viðkomandi drykkjusvolabarni verði refsað með algjöru húðláti, líklegast með hnútasvipu. En tímarnir breytast og mennirnir með. Núna þykir ekki athugavert, eða í frásögur færandi, þótt börn leggi stund á kogaradrykkju í tímum og drekki frá sér ráð og rænu og gjöri sjálfum sér og foreldum þeirra til stórkostlegrar skammar.Þó má samt hrósa skólabörnunum fyrir að hafa heldur ódýrar áfengistegundir sér til gottgjörelsis í skólanum í stað þess að berast á koníakki og volka. Enda má segja, að brennsluspritt, handspritt, kardó og ódýr rakspíritus séu alþýðlegir drykkir og beri neytendum þeirra vitni um hófsemi og aðhald. Það sér hvur maður að það væri með öllu ófært að krakkaskrattar, ekki einusinni komnir á gelgjuna, séu að flotta sig og sporta með rándýr eðalvín um skólaganga og kennslustofur. Mér er sagt að tólf vetra stelpugála hafi haft með sér romm, bruggað í Havana á Cúbu, í skólann og þetta romm hafi freistað kennarans svo mikið, að hann fór fram á við stelpuna að fá að drekka með henni úr flöskunni. Þetta var kvenkennari og þær skiptu innihaldinu úr Havanapyttlunni bróðurlega á milli sín með þeim afleiðingum að þær fundust eftir dúk og disk áfengisdauðar í gömlu ljósritunarkompunni. Meira segi ég ekki að sinni um þá uppákomu, en aðkoman var svo ljót að kennslukonan var leidd fyrir dómara og situr nú í gæsluvarðhaldi.
![]() |
Sóttvarnir í skólum stórt verkefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2020 | 22:15
Að eiga djúpvitran menntamálaráðherra af Fjóshaugnum miðjum
Er ekki dásamlegt að eiga svona vitran mennta- og menningarráðherra? Er það ekki verskulduð náðargjöf til Íslendinga frá Drotni Alsherjar? Jú, kæru vinir, ætli það sé ekki lóðið? Að hólfa skóla er djarfasta og heilagasta ráð sem nokkur íslenskur stórnmálahani, fyrr eða síðar, hefir upphugsað. Ekki skemmir fyrir, að vor ástkæri mennta- og menningarráðherra, er fædd í Framsóknarfjóshaugnum miðjum og alin upp við fótskör sjálfrar gömlu Framsóknarmaddömunnar. Má ljóst vera hvurju mannsbarni, íslensku og jafnvel erlendu, að uppeldið í Framsóknarfjósinu hefir tekist vonum framar og skilað ossum löndum fyrirtaks mennta- og menningarmálaráðherra, stórvitrum og gegnsósa af Maddömulærdómi frá blautu barnsbeini.
Og vissulega er Lilja Alfredósína sjaldgæft metfé úr hinu feyskna og hryggsigna Framsóknarfjósi. Hún er svo klár og vitur, að hún gat reiknað út að hólfun í skólum er betri en óhólfaður skóli, þó umfram allt reiknaði hún út að öll hólfin verði Framsóknarhólf með mynd af Hriflóni gamla, Stenngrimi Johoð, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni og Gifturíka Kaupfélagsstjóranum fyrir norðan land. Af því munu börnin menntast meira og betur en annars.Fyrir ekki löngu síðan heyrðist á tal tveggja framsóknargúbba, sem vóru að kukka saman úti, nánar tiltekið inni í ruslatunnuporti millum Austurstrætis og Hafnargötu. Þeir vóru að leggja á ráðin um að steypa ráðsmanni Framsóknarmaddömunnar, honum Sigurði Inga, af stóli og láta Vegamálastjóra fjúka með honum í leiðinni. Ekki er nokkur vafi á að þessir skítandi menn í porti, hafa í hyggju að vígja frauken Alferdósínu til ráðsmennsku í Framsóknarfjósinu; að minnsta kosti töluðu þeir fjálglega um liljur vallarins, sem hvorki kunna að vinna né spinna, og fogla hyminsinns, sem safna ekki forða í hlöður fremur en gamla Framsóknarmaddaman, sem löngu er hætt að heyja fyrir sauðnautin sem hún heldur í Fjósi sínu. Sennilega er fólginn vænn búhnykkur í því að stampa Sigurði Inga og flæma hann eins og hund í Miðjuflokkinn. Karlarnir í portinu viku að endingu máli sínu, rétt á meðan þeir skeindu sig með grasvisk og stóðu upp, að þeirri staðreynd, eins og þeir orðuðu það, að Sigurður Ingi væri fádæma durtur, ugglaust gjörspilltur af ýmiskonar gargagndi vitleysu, og aldeilis ónothæfur sem ráðherra, hvað þá ráðsmaður í Fjósi, auk þess sem hann væri ljósrit af skelfilegasta ráðsmanni Framsóknamaddömunnar, sem uppi hefir verið.
![]() |
Flókið en betra að hafa sóttvarnahólf í skólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.10.2020 | 17:47
Á að leyfa þessum giljagaurum, blóðugum upp fyrir haus, að reisa sér árásarstöðvar hér á landi?
Hvað vill þessi giljagaur upp á dekk? Flotaforingi úr djöfullegasta árásarher heimsins að boða ,,varanlega viðveru" þessa sama hers, sem er ekki aðeins blóðugur upp að öxlum heldur upp fyrir haus eftir óteljandi valdarán og valdaránstilraunir. Fyrir mína parta afþakka ég ,,viðvarandi viðveru" slíkra óþokka á Íslandi.
Eflaust rjúka einhverjir landar mínir úr stétt auðkeyptra smámenna upp við þruglið í þessum Burke flotaforingja og hefja áróður fyrir nauðsyn á ,,viðveru" bandaríska herveldisins á Íslandi og messa með helgislepjuværð yfir fólki um áskoranir, framtíðatækifæri, hagvöxt, fjárfestingar, ,,skyldu okkar" við nánustu vini okkar og NATÓ. Dýpara er varla hægt að sökkva í aumingja- og heimóttarskap, auðsveipni og hundseðli. Og þá mun bleik brugðið, ef krataeðlisófétin munu ekki standa þétt upp við heimsvaldasinna og vestrænt stórauðvald þegar hin úrkynjaða, íslenska burgeisastétt tekur á móti hinum alblóðuga her USA.
Og hverju ætlar VG, Álfheiður, Stenngrimur Johoð, Swabbóliðið og Katrín Jakobs svara vangaveltum herra R. Burke flotaforingja? Ætla þau að láta sem þau hafi ekki heyrt í karlinum? Jafnvel að bjóða hann velkominn með allt sitt hafurtask til Íslands og leggjast sjálf í ellinni á hernaðarspena Bandaríkjamanna og NATÓ; það væri svo sem eftir öðru hjá þeim.
![]() |
Skoða varanlega viðveru Bandaríkjahers |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2020 | 15:02
Er skilningur á aukast á, að því verri dugi heimskra manna ráð sem þau koma fleiri saman?
O-ho-ho-ho-ho ... þetta líkar mér. Nú hafa sóttvarnaryfirvöld loks náð að skilja örlítið af boðskap Ólafs pá í Laxdælu, þess efnis, að því verr dugi heimskra manna ráð sem þau komi fleiri saman. Og í ljósi og krafti nýfengins skilnings dröttuðust yfirvöld til að banna fleirum en tíu manns að safnast saman, en með semingi þó.
En ,,blaðamannafundur ríkisstjórnarinnar og þríeykisins" var stórkostlegt númer, sem hefði átt skilið að vera leikinn í Þjóðleikhúsinum fremur en í Hörpunni. Fyrir það fyrsta var uppstillingin frábær: Í framlínunni stóðu þrjár ráðherrafraukur, hver við sitt ræðupúlt, og mösuðu hver á eftir annarri. En í skugganum að baki þeim húktu landlæknir, sóttvarnarlæknir og Víðir eins og ill gjörðir niðursetningar. Að sjálfsögðu veit aunginn gjörla, hversvegna í fjandanum fjórir ráðherrar frá þremur stjórnmálaklíkum, sem flestir höfðu ákaflega lítið til málanna að leggja annað en almennt og tilgangslaust þvaður, voru að þvælast þarna. Fundurinn hefði orðið mun skilmerkilegri og gáfulegri ef heilbrigðisráðherra og þríeykið, Þórólfur, Alma og Víðir, hefðu verið þarna ein og talað fyrir fyrirhuguðum sóttvarnaraðgerðum.
En, sem sé, sóttvarnaráætlun yfirvalda var gjörð að heldur fáfengilegum og heimskulegum fundi kvenna í ríkisstjórnarflokkunum. Hvað hafði til dæmis Áslaug Arna til málanna að leggja? Svar: Ekkert. Eða Alfredósína og Katrín? Svar: Að sjálfsögðu ekki neitt. Eini tilgangurinn með sýningu ríkisstjórnarinnar í Hörpu í dag var sýndarmennskan sjálf, því ekki var hægt að unna heilbrigðisráðherra einum að kynna aðgerðir sóttvarnaryfirvalda; Framsókn, forsætisráðherra og Erkiíhaldið urðu að vera með til að tryggja jafnræði í sýndarmennskunni og áróðri ríkisstjórnarflokkanna. Úr því ríkisstjórnarflokkarnir áttu allir fulltrúa í leikritinu var þá ekki eðlilegt að stjórnarandstöðuflokkarnir hefðu átt sína fulltrúa á pallinum svo þjóðin gæti dáðst að þeim líka? Stjórnarandstöðuþingmennirnir eru víst þingmenn líka og kosnir af kjósendum á kjörskrá. En nei, fundurinn í Hörpu var sýning ríkisstjórnarinnar, hvar heimskra manna ráð ráðast ekki af því hvort fleiri eða færri koma saman.
![]() |
Aðgerðir hertar tíu mega koma saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2020 | 16:29
Stjórnleysi Akureyringa nær nýjum hæðum
Já, það mátti alltaf búast við þessu. Hingað til hefir Akureyringum ekki verið sjálfrátt, sem þýðir auðvitað,að þeir geta ekki með nokkur móti haft stjórn á sér og því síður stjórnað eigin bæjafélagi. Og ekki vænkaðist hagur Strympu þegar Samherjarnir tóku þar öll völd og fóru að ráðskast með allt stórt og smátt þar nyrðra. Sagt er að aunginn í Eyjafirði megi lengur gjöra dodo með maka sínum nema með skriflegu leyfi Samherjafurstanna. Mök utan heilags hjónabands eru að sjálfsögðu bönnuð þar um slóðir og mega þeir sem brjóta það bann eiga von á íllskuþrunginni refsingu.
Það fór svo náttúrulega, eins flesta grunaði, að Akureyringar mundu misnota kóvíð nítjánda og gjöra sitt besta í að frussa honum út um allt. Nú ku korrið og köfnunarhljóðin í hinum sýktu bæjarbúum hvarvetna heyrast út á götur á Akureyri og er íllt til þess að vita. Sem betur fer, þá hefir formlega verið farið þess á leit við Dag borgarstjóra í Reykjavík og pírataguddurnar hans, að taka Akureyri að sér og stjórna þar með harðri hendi. Taki Dagur þessari freistandi áskorun, verður Akureyri lögð undir Reykjavík og þar með verður allt múður og allur moðreykur úr sögunni fyrir norðan.
En það má búast við að Dagur og viðreisnarguddurnar muni lenda í vandræðum með Samherjana, sem munu eflaust kalla vini sína, þá Stjána Möller, Loga Vindbelg og Stenngrim Johoð, til liðs við sig og láta þá berjast í fremstu víglínu við innrásarherinn úr Reykjavík. Nú dugar ekkert andskotans vol eður víl hjá Deginum og hans liðleskjum, þau verða að berjast þar til síðasti Samherjinn er fallinn og ró verður komin á fyrir norðan land. Sennilega mun Dagur, viðreisnar- og pírataguddurnar, ásamt leyfunum að VG, falla í orrustunni, en það er allt í lagi, því maður kemur í manns stað og Samherji í Samherja stað og allt verður óbreytt og halda áfram að reka á reiðanum, sunnanlands sem og norðan.
![]() |
Smit í samkvæmi og jarðarför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2020 | 16:06
Vinsæll leikur vitfirringa á vitfirringahælinu
Er ekki nóg fyrir þessa Klaustursteggi að drekka sig vitlausa í brennivíni svo þeir fari nú ekki að heimta heróín ofaní allan sorann? Það má vera að þeir Klaustrungar hafi á sínum snærum klikkaðar kérlíngarklessur og brúklega skrokka til deyfa í heróíni, en í soleiðis tilfellum er rétt að benda þeim á að senda umrædd númer til sérfræðilæknis. Og hvað ætli gangi að kérlíngarklessunum og skrokkunum þeirra til heróín þurfi til að ná óþægindum þeirra niður? Máske gigt, eða einhver annar erfiður og hættulegur sjúkdómur?
Á vitfirringahælinu ríkir oftar en ekki sérlega frjálslyndur og lýðræðislegur andi. Sem dæmi um það er rétt að upplýsa, að strax eftir að Bára birti myndböndin af bænalátum þeirra Miðjunga í Klaustri, fór heimilismenn á vitfirringahælinu strax að setja upp leikþætti, byggða á samræðum og bænalestri Sigmundar Davíðs og húskarla hans og þessari einu griðkonu hans hið örlagaríka kvöld. Einn vitfirringurinn vildi endilega fá að vera gamla Framsóknarmaddaman og var það látið eftir honum. Annar vitfirringur, sérlega galinn og hlálegur, heimtaði að leika Sigmund Davíð og fór í grýlubúning til að líkjast fyrirmyndinni sem mest. En þegar Framsóknarmaddaman tók til við að hýða Sigmund, en það var ekki skráð í upprunalega handritið, skárust vaktmennirnir í leikinn og lokuðu þá inni í stubbakompunni svo þeir gætu samið frið í ró og næði.
Því er ekki að leyna, að á vitfirringahælinu eru líka menn með gríðarlega leiklistarhæfileika. Einn tók að sér hlutverk Beggó munks og annar fór í gervi skrokks, sem passaði svona líka asskoti vel við hann Beggó. Sagt er að senan, sem þessi frábæru vitfirringar settu upp, hafi slegið í gegn, en henni verður ekki lýst hér, því hér er hvorki staður né stund fyrir forboðið fræðsluefni í klámi. Síðan hafa vitfirringarnir margoft leikið Klausturleikinn í ýmsum tilbrigðum, nema hvað forstöðukonan hefir bannað þeim alfarið að leika skrokkskaflann og hóta að berja vitfirringana í klessu ef þeir ekki hlýddu. Því hafa þeir gripið til þess óyndisúrræðis að taka leikinn um Beggó og skrokkinn og leika hann að næturþeli, þegar forstöðukérlíngin liggur afvelta og sofandi heima hjá sér. Og fyrir stuttu bættist nýr vitfirringur í hóp hinna sem fyrir vóru á hælinu, en sá nagli hafði prumpað út af skefjalausri heróínnautn. Sá er sagður Miðjúngur, mikil vexti, óhreinn, illa þefjaður og óhóflega lúsugur.
![]() |
Spyr um heróín á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2020 | 20:13
Hundsspottið Sálmur er hjóm eitt í samanburði við vitskepnuna Snata
Já, okkur varðar ekkert um hundsspottið Sálm hans Ólafs Ragnars. Nýi Sálmur, líkt og gamli Sálmur, er öldungis ófær til smalamennsku og kemur að aungvu gagni við refaveiðar. Haft er fyrir satt, að gamli Sálmur hafi í eitt skipti komist í návígi við mink og sturlast af hræðslu og verið taugaveiklaður upp frá því og gengið vikulega í tíma hjá áfallastreitumeistara. En nóg af þessum bévítis Sálmum hans Ólafs Ragnars og hennar Dórittar.
Þá er heldur meira bragð af þeim fræga hundi, Snata, sem vann sér meðal annars til álitsauka, að koma eiganda sínum, Ólafi bónda, fyrir kattarnef. Að vísu hefir þetta þarfaverk aldrei verið sannað á Snata og hann sjálfur þögull sem gröfin þegar það ber á góma. Stöku sinnum hefir kvittur komist á kreik, þess efnis, að Snati hafi ill áhrif og spillandi á aðra hunda, til að mynda æst þá upp í að gjörast dýrbítar. Að minnsta kosti þykir vart einleikið hve margir þeirra hunda, sem kynnst hafa Snata persónulega og numið við fætur hans, hafa orðið berir að því að ráðast á lambfé á fjöllum, eða ráðist inn í hænsnakofa í þeim eina tilgangi að fremja andstyggileg fjöldamorð.Hinsvegar hefir kérlíng Ólafs bónda um skeið verið full haturs í garð Snata því hana grunar að hundfjandinn sé ekki allur sem hann er séður, það hefir sem sé flögrað að henni, að undir vingjarnlegu yfirborði hins víðfræga smala-, grenjavinnslu- og leitarhunds, sem sagður eru hafa að minnsta kosti tólf manna vit, búi forhert og miskunnarlaust skrímsli, sem hiki ekki við að fremja hræðileg hervirki, jafnvel glæpi gegn mannkyni. En Snati er vitur og les huganir manna og kérlínga eins og lestrarhestur les bókstafi á blaði við bestu aðstæður. Af þeim sökum hefir hann allan vara á þá kérlíngarfrenjan hans Ólafs heitins bónda er nálæg; hann hefir allt um það hugleitt hvort hann eigi að láta þessa ófrumlegu leiðindaskjóðu fara sömu leið og karlinn hennar fór, eða með örðum orðum: láta hana hverfa fyrir björg á mjög óvæntan hátt. - Koma tíma koma ráð, segir Snati einlægt við sjálfan sig, þá hann hugleiðir framtíð kérlingar, - ekkert liggur á, ekkert liggur á, kerlingarótugtin fer til Fjandans, hvort heldur hún tórir til morguns eða í hálfan mánuð í viðbót og það er nú það.
![]() |
Klónaði hundurinn Samson eins árs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 14
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 225
- Frá upphafi: 1553882
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 199
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007