Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þegar þefdýr Hálfdáns Vaðstjóra andaðist í götubardaga

pol1_1122375.jpgÞað var héra einhvern tíma á árum áður að Hálfdán Varðstjóri fékk sér þefdýr til aðstoðar við að leita uppi andstyggilegar glæpasálir. Þetta gekk svo sem þokkalega til að byrja með, en svo fór þefdýrið að sýna sjálfstæðan vilja, sem oftar en ekki fór í blóra við ásetning Varðstjórans. Svo varð eitt sin uppþot fyrir framan heimili frú Ingveldar og Kolbeins og hugði Hálfdán Varðstjóri sér gott til glóðarinnar að vinna nú gott þrekvirki og komast í blöðin fyrir rösklega framgöngu. En andskotans ver hljóp þefdýrið úr stöðu sinni og lét sig hafa að bíta frú Ingveldi í kálfann svo hún æjaði við.

Þetta hefði þefdýrið ekki átt að gera, því frú Ingveldur greip íllskulega í skott þess og sló því viðstöðulaust við höfuðið á varðstjóranum og steinlágu bæði eftir höggið, Hálfdán Varðstjóri rotaður en þefdýrið dautt. Greip þá fát um sig í varðsveit Hálfdáns og ætluðu menn að beita gúmmíkylfum, en þá var frú Ingveldur komin í ham og reif kylfurnar, sem hún kallaði ,,helvítis gúmmítittlinga" og barði lögregluprjónana sjálfa með þeim. Sumir úr varðsveitinni féllu en aðrir komust á flótta við illan leik. Þegar Hálfdán fór að ranka við sér stóð frú Ingveldur yfir honum með reidda sleggju og hótaði að kurla í honum hvurt bein ef hann hunskaðist ekki til Andskotans þegar í stað. Þetta var ógnvænleg vöknun fyrir hálfrænulausan varðstjóra og enn verra þókti honum að nú var þefdýrið dautt og aungvu hægt að siga á kérlíngarrassgatið frú Ingveldi.

Þessi sigur frú Ingveldar yfir Hálfdáni Varðstjóra og varðsveit hans mun lengi í minnum hafður og þá ekki síður andlát þefdýrsins, sem Hálfdán syrgði mjök. Sór Varðstjórinn þess dýran eið að hefna þefdýrsins á grimmilegan hátt. En sú hefnd hefir víst gengið svona og svona og frú Ingveldur illvinaleg. En í kveld gjörðist sá gleðilegi atburður, að vitni sáu Hálfdán Varðstjóra með frú Andersen í bandi á fullri ferð í dauðaleit að hinum viðsjárverðu og hrekkjóttu Egyptum, sem Sjálfstæðisflokkurinn vill allt til vinna að koma úr landi.    


mbl.is Lýsa eftir Khedr fjölskyldunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann getur engum skemmt, - en Borgargagnið er siðbiluð nærbuxnafrenja

femma3Hvað ætli hann geti skemmt nokkrum. Maðurinn er frægur fyrir öskur og óhljóð og síðan ekki söguna meir. Meira að segja frú Ingveldur kastaði kertastjaka í sjóvarpið þegar þessi þokkapiltur birtist áðan á skjánum og þar fór það. Nú er Kolbeinn eiginmaður frú Ingveldar kominn á fullt við að útvega annað sjónvarp í stað þess mölbrotna og ónýta; hann hefir haft upp á drukknum forstjóra stórrar rafurmagnstækjaverslunnar og beðið hann að opna búð sína og selja sér eitt stórt og gott sjónvarp, sem má vera fokdýrt. En meðan sjónvarp frú Ingveldar liggur í því næst þúsund molum á stofugólfinu heyrast ekki grenjin og óhljóðin í þessum Helga, það held ég geti fullyrt.

Í dag kvað svo frú Ingveldur upp úr með það, að vinkvendi hennar, Máría Borgargagn væri það sem maður segir ,, nærbuxnafrenja", en þó öllu heldur nærbuxnalaus frenja og að sama skapi siðlaus og ófyrirleitin í neðanbeltismálum. Að sjálfsögðu þykir frú Ingveldi fyrir því, að hafa umgengist slíkan kvenligan dólg í öll þessi ár og meira að segja leyft Borgargagninu að fá Kolbein lánaðan til brúks endrum og sinnum. Verst þykir þó frú Ingveldi, að Borgargagnið skuli á síðari tímum ævinnar tekið að sér þennan kynóða og lævísa Indriða Handreð, sem aunginn veit í raun og veru hvað kynhneigð hefir að geyma í heila sínum og iðrum. Hún hefði allt eins getað boðið Sathani sjálfum upp í til sín, tæfan sú arna.

En tómleikarnir hans Helga eru bölvað prump, og það leggur af þeim fýluna upp á Hellisheiði og austur í sveitir. Þessi fjandi er ekkert skárri en ,,nýja stjórnarskráin" krataeðlissjúklinganna. Og fyrst minnst hefir verið á krataeðlisstjórnarskrána, er rétt að segja frá því að hópur slíkra sjúklinga hrasaði í géðrof þegar þau reyndu að koma ,,stjórnarskránni sinni" á loft með sænskkynjuðu hópefli og sálmasöng. Það er búið að sprauta aumingjana svornu aftur og aftur í blágörnina með fínustu inngjafarlyfjum, en ekkert dugir. Það er ekki, skal ég segja ykkur, tekið út með sældinni að vera krataeðlissjúklingur.

 


mbl.is Helgi Björns skemmtir þjóðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímamótaaðgerð ráðherra gegn uppvöskurum og eldhúsþrælum

x29Á þessum fordæmalausu tímum er undur viðeigandi hjá Swadeesý Sendiherrans að hjóla í uppvaskara og elhússþræla á Landspítalanum og reka þá. Af háfu Swandeesýjar er þarna stórmannlega að verki staðið og ráðist á vegginn hvar hann gnæfir hæst,- í byltingarskyni. Okkur skilst að aðförin að eldhúsþrælum og uppvöskurum muni skipta sköpum í rekstri Landspítalans og nú verði loksins hægt að komast hjá að vista dauðveika sjúklinga á salernum og í bílageymslum spítalans. Þetta er mjök hyggilega ráði hjá frú S. Sendiherrans og vel í anda hins nýja VG og grænnar og fémínískrar vinstrihreyfingastefnu nútímans. 

Hvunær hið nýja VG varð nákvæmlega til er nokkuð á reiki. Glöggir menn hafa bent á að undirbúningur að nýja VaffGjéinu hafi hafist strax eftir fyrsta kjörtímabil þessa óhamingjusama flokks á Alþingi og það hafi verið komið á koppinn 2007, þá reiðubúið af hálfu Flokkseigendafélagsins að fara í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Hinir grunnhyggnustu halda af vitsmunaskorti sínum og einfeldningsskap að nýja VaffGjé hafi orðið til þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð, eða bara jafnvel um síðustu helgi þegar Stenngrimur, Álfheiður og Swabbófamilían skipuðu gluggaskrauti sínu að reka fáeina Egypta, sem hér höfðu sest að, úr landi.

Það verður að segjast eins og er, að vel hefir gengið hjá Flokkseigandfélagi VG að flæma kjörna fulltrúa úr eigin þingflokki. Bara á síðustu tíu árum hefir Stenngrimi og þeim tekist að stökkva átta manns á flótta, fyrir nú utan að hafa losað þennan merkilega flokk við fjöld fótgönguliða. Yfir lítið vóru Stenngrimur Johoð og flokkseigendur VG settir, en mikil mun uppskera þeirra verða á hymmnum, - að vér teljum. Svik þessara garpa við raunverulega vinstristefnu, sósíalisma, er yfirnáttúrleg og ber því að virða hana sem náttúruundur. Til hamingju með afrek ykkar.  


mbl.is Fordæmir uppsagnir á Landspítalanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir kunnu að meðhöndla svona á Bakkanum

drunk2Þá hefir komist upp um strákinn Tuma. Uppvíst er hvur pestarbúllan er þar sem aumingja fólkið smitast af hinum svæsna kóvíði nítjánda, sem er ein stórhættuleg drepsótt. Það var líka sjón að sjá drykkjurútana skríða hvurn eftir öðrum út úr knæpunni um helgina, bugaða af áfengiseitrun og nær dauða en lífi af kóvðisðeinkennum. Og á óljósum ferðum sínum um Laugaveg að aðra refilstigu Reykjavíkur héldu raftarnir áfram að hrella fólk og smita það af hinum banvæna vírusi.

Í drepsóttinni miklu, sem geisaði á Íslandi hér fyrrum, var ógn mikil svínastía á Eyrabakka hvar fram fór brennivíns- og bjórsala ásamt kvennaþjónustu. Þeir vóru ekki bangnir á þá daga, Sunnlendingarnir. Bændum í Árness- og Rangárvallasýslum þókti að vísu nóg um ferðir vinumanna sinna á Bakkann, þar sem þeir drukku frá sér vit og rænu með menningarlausum smábændum. En þegar vinnumennirnir fóru að koma heim dauðveikir af hræðilegri farsótt frá útlöndum og smita aðra á bæjunum, þókti betri bændum og húsfreyjum þeirra nóg komið og því fjölmennti það fólk einn dag niður á Eyrarbakka með verkfæri sín og rifu svínastíu kaupmannsins til grunna og helltu öllu brennivíni og bjór sem þeir fundu niður. En kaupmannsfjandann rassskelltu karlarnir til óbóta, en hann var þokkapiltur frá Slésvík eða Holsetalandi, sem talaði illskiljanlega djöflaþýsku og þóktist vera danskur. 

rat5_1243065.jpgNú vær ráð fyrir þá sóttvarnalækni og Víði að gjöra ferð sína að vondu knæpunni þar sem rónarnir smitast og jafna hana við jörðu og hella hinum göróttu drykkjum niður, helst úti á miðri götu og leyfa þeim að renna niður strætið. Vafalaust mundu rotturnar þiggja mjöðinn með þökkum, en á slóðum knæpurnar er gnótt nagdýra að leik og starfi og rotturnar mjög drykkfelldar ekki síður en viðskiptavinir svínastíunnar. Ef vertinn verður með eitthvurt múður og pex við Víði og Þórólf þá eiga þeir að hóta honum að hann verði settur á Samherjatrollara á Námébíumiðum ef hann lætur ekki af rassaköstum og kjaftbrúki.


mbl.is Greina frá nafni veitingastaðarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snildarandi tekur á móti fólki með því að sparka því úr landi

x14Hún er snilldarandi hún Katrín hérna Jakobsdóttir. Hún ætlar að taka á móti fleira flóttafólki með því að sparka sexmanna fjölskyldu á flótta út í buskann. Það er ekki allir sem geta farið að eins og hún Katrín. Að vísu geta Stenngrimur Johoð, Álfheiður og Swabbófjölskyldan leikið sjónhverfingar af þessu tagi, en varla aðrir. Það góða við þetta allt saman er að dagar ,,Vinstrihreyfingarinnar" ,,græns" framboðs eru taldir og brátt mun Flokkseigendafélagið í VG (áður Alþýðubandalaginu sáluga) tifa í einu lagi eins og dálítill pöddufans undir stóra steininn að baki Valhallar við Bolholt og koma eigi upp þaðan síðan fyrr en lúður gellur á hinum efsta degi.

Það geta svo sem einhverjir tekið VG yfir, það er víst alveg inni í myndinni. Sem stendur er mest talað um hóp fúllyndra og vel hægrisinnaðra krataeðlissjúklinga, framsóknarkauða og illskeyttra sjálfstæðismanna; þeir ku ætla að gera miðhægrisinnaða lukkuriddarastöppu úr aumingja VaffGéinu. Þá hefir og heyrst að Sosialistaflokkur Gunnars Smára, Hauks Arnþórs, Þórs Saaari, Katrínar Baldursdóttur og Hnallfriedar Þórarinsdóttur hafi mikinn hug á að yfirtaka VG ásamt með Katrínu og öðrum veleðla efrimillistéttarfémínístum. Ef af verður munu Gunnar Smári og þau hin fleygja Stenngrimi Johoð, Álfheiði og Swabbóinu strax í ruslatunnuna og fjarlægja hana síðan með hraði.

x27Líklegast er þó að VG fari einfaldlega á hausinn úr innanmeinum og kláða og gangi til almennra gjaldþrotaskipta, þar sem aungin verðmæti finnast í þrotabúinu. Eftir það er best fyrir Katrínu að snúa sér að sjónhverfingum og gluggaskrautsleik, því eflaust fýsir marga að sjá hana taka á móti fólki með því að sparka því úr landi. 


mbl.is Áhersla á að taka á móti fleira flóttafólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér óskum Rósu Björk innilega til hamingju með ákvörðun sína

fugl1Jæja, enn halda fjaðrirnar að fjúka af VG og skal svo sem aungann undra. Raunar voru allar fjaðrir sem máli skipta löngu farnar út í veður og vind og hafði gerst áður en Stenngrími, Álfheiði og Swabbó Sendiherra tókst að skríða upp í bælið hjá erkiauðvaldinu, Sjálfstæðisflokknum. Nú getur Rósa Björk farið heim til sín í Samfylkinguna og þjónað krataeðli sínu þaðan, jafn klígjulegt sem það nú er. Og þingflokkur hefir ekki látið sitt eftir liggja og þakkar Rósu Björk með snubbóttri kveðju, sem þýðir á manna máli, að þingflokknum þyki gott að vera laus við hana; jólatréð, sem sagt er vera þingflokksformaður VG, ítrekaði svo, með sérkennilegu glamri í fréttatíma Ríkisútvarpsins, brottfararkveðjuna hins ofurúrkynjaða þingflokks VG til Rósu og bað hana vel að lifa. Eftir situr VG eins og reytt og veðrað hænsnarassgat.

Sjálfur óska ég Rósu Björk til hamingju með ákvörðun sína, því ég veit að það er mjög mannskemmandi að vera í þingflokki VG með Stenngrimi Johoð og öðrum óhræsum sem þar sitja við borð. Þrátt fyrir að Rósa Björk hafi lengi haft krataeðlisorð á sér, þá ber hún með sér að vera góð manneskja sem töggur er í, öfugt við kynsystur hennar sem eftir sitja í þingflokki VG,- að ekki sé nú minnst á karlpéninginn þar um borð. Nú ættu þeir fáu, sem enn eru innan vébanda VG og eru raunverulegir vinstrisinnar og sósíalistar, að láta slag standa og yfirgefa hina alræmdu svikamillu flokkseigenda VG, þar sem fyrr nefnd gersemi, Stenngrimur Johoð, Álfheiður og Swabbó Sendiherra Davíðs og Halldórs, ráða ríkjum með harðri hendi og óstöðvandi óheiðarleik og ósvífni. Að losa sig undan yfirráðum þessháttar fólks er meir gæfa en almenningur gerir sé grein fyrir.

Hundur að mígaÞessa stundina eru Stenngrímur Johoð, Álfheiður og Swabbó Sendiherra, ásamt undanrennuhvolpum sínum, að leita eins og hundar með ,,Sjálfstæðishetjunum" og húskörlum og griðkum gömlu Framsóknarmaddömunnar, að týndu fjölskyldunni, sem þau ætla að reka til Egyptalands. Rétt í þessu sást til þeirra snuðrandi bak við hús, og að sögn greinargóðs sjónarvottar gjörði Stenngrimur Johoð sér litla ferð að heldur smáu tré að húsabaki og lyfti annarri afturlöppinni og létti á sér. En þegar Gluggaskrautið reyndi að leika þetta velheppnaða númer eftir leiðtoga sínum og átrúnaðargoði mé hún bæði á sig og í sig. Það þókti sjónarvottinum sorglegt að sjá. Ætli sé ekki best, úr því sem komið er, að senda hundaeftirlitsmann Reykjavíkurborgar á vettvang til að skakka leikinn og koma hinum aumkunnarverðu leitarhundum í búr? 


mbl.is Rósa Björk kveður Vinstri-græna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið sjálfvirka réttlætislögmál náttúrunnar mun ekki, um það er líkur, hlífa úthýsingarfólum

polis3.jpgMikið assgoti snöru nú þau egypsku á Sjálfstæðisflokkinn og hana Áslaugu Örnu. Á þessari stundu ríkir upplausn og ringulreið í Sjálfstæðisflokknum, því þar á bæ ráða menn sér ekki fyrir reiði og íllsku og eru strax farnir að hafa á orði að reka Áslaugu Örnu úr ráðherrastólnum, af þingi og úr Sjálfstæðisflokknum, því ekki sé hægt að umbera kvendi sem lætur flóttamenn og hælisleitendur snúa á sig þegar átti að grípa þetta fólk og sópa því úr landi.

Ástandið sem nú er uppi hjá Sjálfstæðisflokknum er fordæmalaust, óviðunandi og djöfullegt. Svo virðist sem Flokkurinn sé að sogast eins og óhreinindasvelgur niður í skólpræsi. Í gær gjörði pírataskessan í borgarstjórn aðsúg að Eyþóri Laxdal Arnalds og sakaði hann um svo fáheyrð ósköp að grandvöru fólki varð íllt og kúgaðist undir þeim ræðuhöldu. Og í morgun kemur svo í ljós að herlið Flokksins greip i tómt þegar átti að draga egypsk hjóna og börn þeirra út á hárinu og reka þau burt eins og hvurja aðra flækingshunda. Á þessara stundu er ekki vert að vera rifja upp stóráföll sem dunið hafa yfir Sjálfstæðisflokkinn á síðustu misserum. Eins og staðan er í dag virðist sem ekkert sé eftir annað en að afhjúpa þennan guðseiginFlokk fyrir dómstólum; en sem betur fer á Sjálfstæðisflokkurinn dómstólana ennþá og það kerfi allt, hvað sem verður.

Í tilefni að brottvísun þeirra egypsku, þá er ekki úr vegi að minnast forfeðranna, bændasamfélagsins kristilega, sem sýndi rausn sína iðulega með því að úthýsa aðframkomnum og hröktum ferðamönnum, jafnvel þó úti geisaði stórhríð grimmdargaddur. Þessi höfðingsskapur virðist hafa komið sér vel fyrir í génabúskap Íslendinga, því enn í dag þykir einkennilega mörgum fróun í að úthýsa fátæklingum, langt að komnum, helst að getað sigað á þá hundundum eins og forfeður þeirra gerðu við snillinga eins og Eirík frá Brúnum og Sigurð Breiðfjörð, svo einhverjir séu nefndir. Sem betur mun hið sjálfvirka réttlætislögmál náttúrunnar taka á úthýsingarhyskinu um síðir og kveða það niður með pompi og prakt.



mbl.is Fjölskyldan fannst ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjá, eg boða yður kræsingar og ellin mun verða yður léttbær

borðaÞað er þungur kross fyrir Reykvíkinga að umbera Dag borgarstjóra, aumingja kallinn. Enn þyngra er samt fyrir aldraða íbúa Reykjavíkur að hafa þetta guðsvolaða fyrirbæri á bakinu, það kvað vera ígildi fimm járnkrossa í krossfestingarstærð per/gamlingja fyrir eldri borgara að dröslast með þennan eina borgarstjóra á herðum sér. En í dag jat Dagur Bibí Eggertsson matinn sem hinu gamla skari þókti óætur með öllu, það er að segja, að hann át myndina af blessuðum öldungamatnum í viðurvist Vígdísar Hauksdóttur, sem kúgaðist ákaflega á meðan.

Þetta athæfi Dags þykir framúrskarandi snöfurmannlegt og til fyrirmyndar í alla staði. Enda kvökuðu telpuhnáturnar, sem eru með honum í meirihluta, allt hvað af tók af ósvikinni aðdáun. Það er nú meiri kvenhyllin sem einn maður getur notið! Hinsvegar botnar Eyþór nokkur, borgarfulltrúi og fjármálamaður, ekkert í því sem er að gerast í kringum hann. Manngreyinu er vorkunn, hann er bara svona; og ekki er fallegt af föntum að spila með svo einfalda sál og hégómagjarna.

En nú er komið að Vígdísi að leika afrek Dags í að eta mynd af viðbjóðslegum matvælum og vinna sér inn aðdáun og lof múgsins, - má vera oflof. Það hefir komið fram áður, ef til vill marg komið fram, að ófögnuðurinn á myndinni er fullmeltur matur og afturskilaður, sem einhver þorpari með afbrigðilegt skopskyn hafði fyrir að troða ofan í dollu eða blómsturpott og festa á filmu. Allt þetta verður að rannsaka ofan í kjölinn, helst heildstætt og í raun og veru, og koma böndum á sökudólgana og festa þá upp á hlöðuvegg. 


mbl.is Matarleifar en ekki máltíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo var sett upp minkafella í Ráðhúsi Reykjavíkur

rat2Það er ekkert nýtt að nagdýr og önnur illyrmi séu á ferli í þessu sokallaða ,,Ráðhúsi Reykjavíkur" og vinni spjöll sem slíkra kvikinda er siður. Þessi nagdýraplága er því hvimleiðari sem það eru Reykvíkingar í sameiningu sem greiða fyrir tjón af völdum rottugangs í því húsi. Og við og við verða hastarleg uppþot í Ráðhúsinu þegar minkur stökkur fyrirvaralaust inn í hænsnastíuna og reynir að bíta höfuðin af pútunum.

Svo gerðis það eitt haustið í Ráðhúsi Reykjavíkur, að karlkyns borgarfulltrúi, eða hvað maður á að kalla þetta, gjörði ferð sína á náðhúsið. Egir að hafa læst að sér leysti hann brækur sínar, settist á salernisskálina og fór að rembast. Allt í einu fann hann eitthvað strjúkast eldsnöggt við klofið á sér og leit samstundis niður og undir sig. Sér hann þá sér til undrunar og nokkurrar skelfingar, að undan er farinn pungurinn, en neðar í skálinni sá hann framan í mink, mjög ósvífinn til augnanna, sem var að kjamsa á því er hann hafði klippt undan borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þarf ekki að orðlengja, að síðan hefir borgafulltrúi þessi verið steingeldur og rödd hans varð geldingsleg. Einnig varð hann svo viðkvæmur í lund, að hann fór að pissa í buxurnar á borgarstjórnarfundum þegar eitthvað spennandi fór að gerast, rifrildi eða landráðabrigsl millum borgarfulltrúa. Svo var hann færður í pampers því aðrir í borgarstjórn vóru farnir að kvarta hástöfum undan hlandlykt af mannaumingjanum.

gildraUpp á síðkastið hefir svo ástandið versnað til muna í Ráðhúsinu. Munar þar mestu um djöfulgang Vígdísar Hauksdóttur, sem ítrekað hefir vaðið sem minkur inn í hænsnastíurnar og bitið púddulingana í rassinn og reytt af þeim flugfjaðrirnar. Það er víst tómt mál að tala um á þessu kjörtímabili að láta sverfa til stáls gegn minkum, rottum og músum, því ef það væri gert mundi ekki verða fundarfært lengur í Ráðhúsinu. Starfsmenn borgarinnar voru látnir setja upp jargansmikla minkafellu með tenntum bogakjafti og bjuggust menn við að Vígdís mundi vaða af sínum alræmda flumbrugangi beint gildruna. Daginn eftir, þá að var gáð, sat Holu-Hjalli fastur í minkaboganum og hrein hátt af óhemjuskap og kvölum. Meindýraeyðirinn ætlaði auðvitað að embætta veiðina, en fyrir orð Dags ,,borgarstjóra" lét eyðinn sér nægja að klippa skottið af Holu-Hjalla og fékk greitt fyrir það í samræmi við grenjavinnslulög og reglugerðir þar að lútandi.  


mbl.is Rottugangur í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þær áttu líka sinn dýrðartíma með þeim frægu

ingEru smá-telpurnar Nádíjá Líndal og Laura Clausen andlega náskyldar frú Ingveldi og Máríu Borgargagni? Svarið er: Já. Þær eru svo skyldar að þær gætu allar verið tvíburasystur. Auk þess eru þær menningarlegar svo af ber. Það má segja að Líndal og Clausen hafi stungið frú Ingveldi og Borgargagninu ref fyrir rass þegar sveimuðu eins og hljóðlausar flugur inn á Hotél Sugu og beint upp í til drengjanna Masons og Fódens. Það er alltaf virðingarvert þegar ungar jómfrúr fara beint upp í til einhvers.

Frú Ingveldur og Máría Borgargagn áttu líka sína dýrðartíma með þeim frægu. Til dæmis tóku þær laglegan feil þegar þær vóðu einbeittar upp á Hotél Vík við Hallærisplan á áttunda áratugnum. Þeim hafði borist fregnir af því að hin heimsfræga saungsveit, Ledd Zéppelín, væri komin öðru sinni til landsins til að halda tónleik í Gamla bíói og mundu hinir frægu meðlimir kvartettsins halda til á Hótéli Vík þá daga er þeir dveldust á Íslandi. Því miður var þarna eitthvað málum blandið því það voru ekki Ledd Zéppelín sem bjuggu að Hotéli Vík heldur færeyíska hljómsveitin Trangissensspælararnir, sem borist höfðu til Íslands til að leika fyrir dansi í Íngólfscafé.

merarÞað skipti aungvum togum, að það upphófst helvískur darraðardans á Hotéli Vík við komu þeirra stallsystra og má segja að þær hafi á undraskömmum tíma yfirspilað færeyísku drengina, sem allir vóru komnir yfir fertugt og fimmtugt, og gjörspillt þeim með óguðlegum uppátækjum sínum og siðferðisskorti. Nokkrum dögum síðar komust þær frú Ingveldur og Borgargagnið að því að þær höfðu ekki lagst með saungsveitinni Ledd Zéppelín heldur einhverjum biluðum harmónikkuklikkuðum færeyíngum á hvolfi. Og þær böðuðu sig og sturtuðu fimm sinum á dag í heila viku og brúkuðu mikla sápu eftir að þær komust að hinu sanna. Þessi sorglegi atburður í lífi frú Ingveldar og Borgargagnsins gjörðust fyrir daga áfallastreituröskunar og því fór sem fór fyrir þeim: Frú Ingveldur giftist og hóf búskap með erkiafstyrminu Kolbeini Kolbeinssyni framsóknarmanni og skrifstofustjóra, en Máría borgargagn gjörðist um síðir frilla Indriða Handreðs og enn síðar eiginkvendi hans. Af skemmtikröftunum Trangisspælurunum frá Færeyjum bárust þær sögur, að þá er þeir snöru aftur til sinna heimaslóða beið þeirra skilnaður og brottrekstur af heimili, því konur þeirra höfðu frétt af glæpum manna sinna á Íslandi áður en þeir komu aftur til Færeyja. Eftir þetta vesluðust þeir upp í strætinu og síðast reknir til Grænlands þar sem þeir hurfu fyrir fullt og allt. 


mbl.is Nadía og Lára: Eyddu 25 þúsund í þessa drengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband