Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
27.9.2020 | 19:59
Uppvakningar nýfrjálshyggju og hrunsmenningar
Það er þriflegt, eða hitt þá heldur, fá tvo uppvakninga úr nýfrjálshyggju- og hrunsmenningunni í einu á sjónvarpsskjáinn til skrafs og ráðlegginga. Ég geri ráð fyrir að mörgum Íslendingum hafi verið ofboðið og misboðið að fá þessi vafasömu eintök allt í einu upp á skjáinn hjá sér heima í stofu; að minnsta kosti veit ég um mann sem sá dýrðina og var fluttur á brott í sjúkrabíl í spennitreyju, því hann varð brjálaður af að sjá og heyra fulltrúa 7-hægri og Panamaskjalamenningarinnar kvaka eins og vængjaða engla upp í hvort annað eins og ekkert sé sjálfsagðara en þau sé að vinglast í stjórnmálum.
Thorgerður Katrín er fyrir lögnu búin að gleyma hrunískri nýfrjálshyggjufortíð sinni og telur sig hafa endurheimt poletiskt jómfrúrstand. Nú baðar hún út öllum öngum og heimtar að Íslandi verði innlimað í ESB og hún geti ávaxtað pénínga 7-hægri í evru í stað þessarar skítakrónu, sem delerandi krataeðlissíkópatar kalla örmynt og annað gáfulegt í þeim dúr.Sigmundur Davíð aftur á móti, sem orðin er í seinni tíð eins og óhrjáleg lopahespa í framan eða grámyglaður taðköggull; það er hræðilegt að sjá manninn. En, Sigmundur Davíð, skohh, hann er enn sami óbetranlegi klausturjúnkinn og talar sem fyrr í óskiljanlegum skrýtlum, gátum og launhelgum. Hans óðul eru að Panama, í Mossakk Fonsekka, þar sem leynipéníngar eru ekki ávaxtaðir í örmynt. Það óhugnanlegasta við þetta allt er, Thorgerður og Sigmundur starfrækja bæði sinn hvorn ,,stjórnmálaflokkinn," hálfgerð vitfirringahæli, braskinu, aflandsreikningum og fjármálalegum arðránshundakúnstum til dýrðar, og stórbilað fólk freistast því miður til að kjósa þennan subbulega ófögnuð.
![]() |
Það má ekki vera eitthvað crazy business |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2020 | 18:26
Dæmum Lóru í gapastokk og teygju
Fnuhhh ... segir túlkun Mörtu ranga! Sér er nú hvur andskotans vitleysan. Eftir þessum ummælum að dæma er auðséð að Pírataflokkurinn er ein alsherjar fáráðlingasamkoma. En það tekur aunginn til þess; það er ágætt að hafa helftina af fáráðlingunum í einu flokki og svo sem nóg að þesskonar í hinum flokkunum líka, ekki síst borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna. Á næsta borgarstjórnarfundi mun unga konan, frú Hauksson, saka Dag kallángann borgarmeistara um að hafa pissað á gólfið í fundarsal borgarstjórnar og kalla til lögregluna til að láta handtaka Dag og hneppa hann í gæsluvarðhald.
Já það eru miklir slagsmálahundar í borgarstjórn Reykjavíkur og slagsmála- og svívirðingahefðin alsráðandi í ræðustóli þeirrar stofnunnar. Frú Ingveldur segir að Eyþór eigi eftir að taka niðrum vissar skepnur í borgarstjórninni og framkvæma á þeim stórhýðingu og klípa þær með glóandi töngum í þjóhnappana. Og frú Ingveldur er ekki minni spákona en Jesaja var spámaður og óhætt að treysta spádómum hennar eins og nýju neti. Óhræsin mega því fara að búa sig undir að á þeim verði tekið svo um munar.
Og að Lóra Skjört hafi gengið of langt með svínslegum ummælum? Jú, það segir sig sjálft, - eða er það ekki? Ummæli hennar vóru ákaflega veldisvaxin, hatrömm, svæsin, heildstæð og í aungvu samræmi við regluverkið og samtölin. Við höldum að Brímið geti verið sammála okkur um það. Það verður að kveða svona helvítis hatursorðræðu, eins og Lóra Skjört hafði um hönd, vægðarlaust niður. Hún reyndi sem sé að koma því að að Eyþór væri Samherji og þar með heldur vafasamur náungi með óþrifnað í pokahorninu. Það á að dæma fólk í gapastokk og teygju, sem fram fer með slíka illmælgi og lygar. Falleg mubla gapastokkur, eins og sjá má á myndini hér til hliðar.
![]() |
Segir túlkun Mörtu ranga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2020 | 15:44
Fámennt og illmennt á miðstjórnarfundi Miðklausturflokksins
Það hefir verið skemmtilega fámennt á miðstjórnarfundi Miðflokksins, sem heitir líka Klausturflokkurinn, í dag, en miðað við myndir fundinum að dæma virðist hann hafa verið haldinn í einhverju fangélsi, sem leiðir hugann að því hvort búið sé að stinga dr. Sigmundi inn til afplánunar. Þrjár eða fjórar hræður létu sig þó hafa að sitja undir fróðleik af vörum dr. Sigmundar Davíðs, og er víst óhætt að hæla þeim fyrir að hafa þolinmæði og géð í sér til að sitja undir þeim ósköpum. Þetta minnir á skipstjórann, sem sagði í talstöðina á sunnudegi, að það væri fámennt og illmennt á þilfarinu hjá sér í dag, en það helgaðist af því að upp undir helmingur hásetanna sátu fullir niðri í borðsal og harðneituðu að fara út á dekk.
En hvað sem veldur því að fámennt og illmennt hafi verið í dag miðstjórnarfundi dr. Sigmundar, sem sumir kalla, sér til hægari verka dr. Panamíos, þá ku doktorinn ekki hafa látið það á sig fá og vóð elginn þar til hann var þurrausin. Þessi miðfundarlæti Klaustrunga ber upp á sama dag og píratastráin Helgi Hrafn og McCarthy féllust á að lofa þjóðinni því að fara ekki í framboð meir. Þetta sýnir, svo ekki verður lengur um villst, að dr. Sigmundur borgarskipulagsfræðingur hefir borið algert sigurorð af píratadólgunum hvað varðar poletiska festu og áreiðanleik.Innihald barátturæðu formanns Mið-Klausturflokksins var hinsvegar þannig varið, að það var öllum áheyrendum, það er þessum þrem eða fjórum, að fullu gleymt um leið og stórmennið hafði lokið máli sínu. Að vísu kvakaði dr. Sigmundur eitthvað loðið um Sjálfstæðisflokkinn, sem hann sjálfur er hluti af, að minnsta kosti siðferðilega, auk þess sem hann skeit nokkrum sinnum laglega í Samfylkinguna og VG. Þar með var miðstjórnarfundi Mið-Klaustrara lokið og ólíklegt verður að telja að fleiri slíkir verði haldnir.
![]() |
Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.10.2020 kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2020 | 21:45
Ýmis vandamál varðandi sérþjálfaða hunda og mismunandi örlög þeirra
Það er blátt áfram bráðnauðsynlegt að fá hund til að snuðra uppi kóvíð nítjánda, lúsug tík væri best. En það er erfitt núorðið að fá alminnilega skepnu og viðburður að rekast á kynhreinan hund; meira að segja smalahundar eru orðnir úrkynjaðir og sumir þeirra hættulega ruglaðir. Það eru nefnilega ekki allir hundar gáfaðir eins og hann Snati, sem myrti Ólaf bónda með því að ýta honum með trýninu fyrir sextugt bjarg.
Einusinni var farið að þjálfa hunda til að leita uppi myglu í húsum. Það ævintýri stóð stutt, því hundsspottin fengu kynlegan sjúkdóm, sokallaðan myglukrísis og urðu vitskertir; einn þeirra beit meira að segja í heimilisfólkið í síðasta húsinu sem hann var látinn skoða til óbóta. Þetta var uppi á fjórðu hæð og mygluhundurinn lét ekki staðar numið heldur kastaði sér út um gluggann og dó; hann vildi heldur láta lífið en að hnusa af myglusveppum. Það gæti allt eins farið á svipaðan hátt fyrir hundum sem væru þjálfaðir til að þefa upp pestargemlinga með kóvíð nítjánda. Hugsið ukkur ef kóvíð nítjándi mundi stökkbreytast í sona hundi og allt færi í handaskolum í þjóðfélaginu; ég er hræddur um að það mundi verða lítið úr Þórólfi og Víði.Arnfreður Lyngdalh vörubifreiðarstjóri, sá armi vandræðamaður, kenndi hundinum sínum að hafa uppi á kynóðum einstaklingum. Þegar konan hans komst að þessu sló hún hann í hausinn með járnröri og eftir það hefir hann aldrei gengið á öllum. Ekki svo að skilja að hann hafi gengið á öllum áður, því það gerði hann sannarlega ekki. Af hundi Arnfreðs vörubifreiðarstjóra er það að segja, að hann rak trýnið uppundir frú Ingveldi við óheppilegar aðstæður. Frú Ingveldur klemmdi bara saman lærin og þar með þessi hundur úr heimi hallur og úr sögunni.
![]() |
Gætu þefað upp veiru innan skamms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2020 | 19:21
Hún hefir elst um stinn þrjátú ár meðan vinkona hennar er æf af bræði
Ó, samgleðst hún fjölskyldunni, sem hún var rétt búin, með fulltingi öfgahægrisins, að reka úr landi með ofstopa og fantaskap. Það er sérkennilegt. Finnst þessari auvirðilegu strengjabrúðu óþokka á borð við Stenngrim Johoð og hina raunverulegu Samherja hans, að það sé við hæfi tala tungum tveim og sitt með hvorri og gusa framan í landsmenn hræsni, skinhelgi ásamt skyldugum hroka og mannfyrirlitning? Svona kerlingar þarf að lækna, því það er óregla og gums í hugsun þeirra. Já.
Frú Ingveldur er á hinn bóginn ákaflega hrifin af Katrínu forsætisráðherra, blátt áfram skotin í henni og þreytist aldrei á að hafa um hana ástarorð með stunum og dæsingum. Einhverju sinni hélt einhver sem heyrði á mál frú Ingveldar, að hún væri að tala við köttinn, hlaða hann lofi og blessunarorðum, sumum vissulega klúrum og af því tagi sem teprur kalla rakinn dónaskap. Svo hittast þær frú Ingveldur stundum í helgarsamkvæmum hjá frú Ingveldi og segja viðstaddir að þegar þær heilsast verði frú Ingveldur undurfurðulega blíð á manninn, væmin og fær ástúðlegan kjökurtón í röddina: ,,Elllsss-ku Katrín mín, ég ver alltaf svo forlyft þegar ég sé þig í sjónvarpinu, óóóóóó ..."
En jafn heltekin sem Katrín þykist vera af mannúð og mildi þá er litla jómfrú Áslaug Arna, sem lítt höfðar til barna, að sama skapi af íllsku og géðfýlu út af því að brottrekstur egyptsku sæmdarfjölskyldunnar mistókst. Það var auðvitað stórbrotið að sjá hvernig Khedirfjölskyldan hratt aðför hægrisins og vandræða-rasífasistanna að þeim og stóð að lokum upp sem ótvíræður sigurvegari. En það er farið að falla illilega á veslings forsætisráðherrann, svo sem sjá mátti í fréttum Ríkisútvarpsins áðan; hún hefir elst á tiltölulega stuttum tíma um stinn þrjátíu ár og hefir þar með dregið hressilega á gömlu gölnu Framsóknarmaddömuna í aldri. En jómfrú Áslaug Arna, sem syngur vögguvísur til barna, einkum egypskra barna, mun ekki færa Khedirfólkinu hvítvín og humar í kvöld því hún verður upptekin við að sjóða saman vonskuplagg sem tryggir Sjálfstæðisflokknum og hans líkum að geta rekið alla þeim óþóknanlega múslima úr landi hvenær sem er og undir hvaða kringumstæðum sem er.
![]() |
Katrín samgleðst Khedr-fjölskyldunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú er heldur en ekki íllt í efni fyrir hina villtu hægrislúberta á Íslandi, sem hafa um langt skeið lagt áherslu á að rækta sinn verri mann, með þeim vafasama árangri, að þeir eru í dag taldir hjarta- og sálarlausir kláðagemlingar með rasí-, fasí-, nasíheikenni. Með öðrum orðum eru þetta eintök sem farið hafa heldur hressilega í hundana. Og nú misstu þessi úrþvætti af þeirri Þórðargleði, sem verðu í sálarlífi þeirra, þegar varnarlausum smælingjum er sparkað af froðufellandi íllsku heimskra stjórnvalda burt af Íslandi út í óvissu, glötun og ef til vill bráðan bana.
Síðustu viku hefir vont fólk á Íslandi, allt frá ofvöxnum pelabörnum upp í rosknar kerlingarnöðrur, gjört sér að leik að hundelta öreiga fjölskyldu frá Egyptalandi, sem hingað barst á flótta undan vondum stjórnvöldum í sínu heimalandi, í þeim tilgangi að reka hana úr landi. Allskonar stjórnvaldsstofnanir og rottuholur á vegum einhverra vesalinga sem telja sig hafa þjóðfélagsleg völd hafa lagt kláðagemlingum hægrislúbertasamfélagsins lið til að ganga frá þeim egypsku. En egypsku hjónin og börn þeirra létu ekki úldna hrosshausa fasíhægrisins leika á sig og fóru í felur á meðan góðir menn gengu í frelsa þau undan liðinu sem ævinlega heimtar að láta Barrabas lausan þótt það haldi því stíft að umheiminum að það sé svo undur kristið og kærleiksríkt.
Í kveld liggja ómennin spriklandi í valnum, froðufellandi af krampakenndri bræði vegna frelsunar fátækrar fjölskyldu frá Norður-Afríku. Megi þessir óþokkar liggja sem lengst í sínum val, bölvandi og skrækjandi eins og djöflar og andskotar úr brennisteinskatli í Helvíti. Mannúðin og réttlætið hafði sigur í dag, að vísu lítinn í stóra samhenginu, en góðan sigur samt.
![]() |
Khedr-fjölskyldan fær dvalarleyfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2020 | 14:26
Svo hafnaði hann í klóm frú Ingveldar og hefir ekki þorað að slást síðan
Ætli væri ekki nær að vera ekki með neitt bölvað skrök og segja sem er, að Bubur hætti ekki að slást fyrr en hann lenti í höndunum á frú Ingveldi. Því háttaði sem sé þannig til, að Bubur fór að sækja helgarsamkvæmi að heimili frú Ingveldar og Kolbeins, svona einna helst til að lyfta sér upp og kynnast alminnilegu fólki. Til að byrja með gekk á ýmsu, en allir létu kjurt liggja um sinn. En svo fór að kastast í kekki milli manna þegar Brynjar Vondalykt og Kolbeinn húsbóndi og eiginmaður frú Ingveldar fóru að leita á Bub með það fyrir augum að hafa af honum, sem maður segir, gögn öll og gæði.
Svo rak að því að allt fór í bál og brand og Bubur slóst eins og ljón við Vondulyktina, Kolbein og fjandann Indriða Handreð, sem hafði nú bæst í hóp þeirra áleitandi. Einnig leitaði Máría Borgargagn, þá heitkona Handreðs og síðar eiginkona, stíft á Bubinn og allt var eiginlega komið í óefni í helgarsamkomunum. Af miklu harðfengi og fyrir atgerfissakir tókst Bub að koma góðu höggi undir hökuna á Handreðnum og var hann þá þegar úr sögunni. Hisnvegar fórst Bubi verr við Vondulyktina, því hann reif utan af honum brækurnar og sparkaði í rassgatið á honum svo að við lá að framtönnurnar losnuðu í gómnum á karlgreyinu.
Þá snöri Bubur sér að Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni og hengdi hann öfugan upp á snaga og nöri skósvertu í andlit honum. Þá var það sem frú Ingveldur sá sig tilneydda að skakka leikinn, en það gerði hún með því skiptast á fáeinum boxaralegu höggum við Bub og slá hann að svo búnu niður. Eftir að hafa kynnst hnefum frú Ingveldar hefir Bubur verið so hræddur að hann hefir ekki fyrir nokkurn mun þorað að slást, og þá allrasíst við kvenmenn, þókt andi hans hafi einlægt verið reiðubúinn til handalögmála.
![]() |
Bubbi hætti að slást þegar hann fór í fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2020 | 13:20
Krónískir óþverra vírusar á hrjáðum líkama sósíalismans
Þó Swandeesý Sendiherrans sé ekki með veiruna þá er hún sjálf veira, veira í hinum langþjáða og þjakaða líkama sósíalismans og vinstristefnu á Íslandi yfirleitt. Það hafa orðið örlög raunverulegrar vinstristefnu hér um slóðir af hafna í klóm lýðskrumara, óheilindafólks og háskólagenginna, hrokafullra menntasnobbara, og má nú búa við þau ömurlegu kjör að vera í herkví hjá vondu fólki. Swandeesý Sendiherrans og hennar vildarlið, krataeðlissjúklingarnir í Samfylkingunni, Pírataskranið og leiksýning Gunnars Smára með svokallaðan ,,Sosialistaflokk Íslands, eiga lítið sem ekkert erindi við sósíalisma, stéttabaráttu og verkalýðshreyfingu, til þess er þetta lið óhæft sökum ólæknandi óheiðarleika, hugsjónaleysis og í sumum tilfellum annarlegra skoðana, - fyrir nú utan að stór hluti þessara gemlinga sem gert hefir sér að leik að vera í ,,vinstrimannaleik" er hálfvitlaust og mökkruglað.
Því miður er ekki hægt að beita samskonar sóttvarnaaðgerðum gegn vírusafarganinu, sem herjar á sósíalismann, og sóttvarnarlæknir og það fólk brúkar gegn kóvíði nítjánda. Ekki er heldur að vænta að vírusarnir sem eru að drepa sósíalismann gangi sér til húðar, samkvæmt einhverjum náttúrlegum lögmálum og verði úr sögunni, eftir tvö til þrjú ár. Þar af leiðandi er barátta fyrir gjörbreyttu þjóðskipulagi með afnámi óþrifnaðar eins og kapítalisma algerlega óhugsandi; sósíalískt þjóðskipulag verður ekki byggt upp með lukkuriddurum, menntasnobbi og hroka og efrimillistéttarfémínísma. En fémínísmi yfirleitt á enga samleið með sósíalisma, enda er fémínísminn borgaralegt þrugl úr sorptunnu andlegra öreiga og ójafnaðarmanna.
Síðust ár hafa einkennilegheit eins og fémínísmi og krataeðlisstjórnarskrárdrögin tröllriðið allri umræðu á vinstrivængnum svonefnda með í senn hlálegum og hörmulegum afleiðingum. Þessi aumu umræðuefni hafi gefið einstaklingum, sem eru ekki það sem þeir þykjast vera, vettvang til að þjóna athyglissýki sinni, sjálfhverfu og einhverri tegund af fráhrindandi geðveiki, sem þetta lið hefir komið sér upp. Það er alveg sjálfsagt að Swandeesý Sendiherrans og pabbi hennar, Gunnar Smári og Haukur Arnþórs, ásamt Þórhildi Sunnu, píratanum Leví, Þorvaldi Gylfasyni, Illuga Jökulssyni, Helgu Völu og öðrum persónum af sama tagi stofni sér óheiðarlega flokka að vild, en verra er þegar þetta vandræðafólk klínir þessari framleiðslu sinni á sósíalismann, - fegursta hugsjón mannkyns á margt betra skilið en slíkur söfnuður fái að valsa á lukkuriddaraklossum sínum yfir hana og komi á hana óverðskulduðu óorði.
![]() |
Svandís ekki með veiruna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2020 | 14:15
Samherjagrauturinn í Samherjaskálinni og almennt um ránsskap á lýðræði í bæjarstjórnum
Það er vel til fundið hjá bæjarstjórninni á Akureyri að steypa sér sona saman í einn meirihluta, því þetta er víst allt sami Samherjagrauturinn í sömu Samherjaskálinni. Það er alveg óþarfi fyrir Samherja að gera út marga Samherjaflokka og ótvíræð hagræðing í að hafa draslið allt á einum brotajárnshaug. Næst á dagskrá er svo að skipta um nafn á Akureyri og láta hann heita Samherjabyggð eða Samherjahrepp hér eftir.
Annars ættu meirihlutar ekki að þekkjast í bæjarstjórnum, því að í bæjarstjórnamenningunni er það þannig, að þeir sem fá meirihlutann eða mynda meirihluta stela hreppsnefndinni svo rækilega að þeir sem eru í minnihluta eru með öllu óþarfir. Þetta meirihlutastagl, sem lengi hefir tíðkast í sveitarstjórnum, er ólýðræðislegt, óheiðarlegt og óssvífið. Í því ljósi má segja að niðurlagning meiri- og minnihluta á Akureyri sé tímabær og góð aðgerð; það bara vonandi að hvatinn að þessu uppátæki þarna fyrir norðan land sé ekki einhver aðsteðjandi dulinn voði, með sjóðþurrð og afskiptum félagsmálaráðuneytis, sem rekur bæjarfulltrúa Akureyringa til þessara verka.
Í mörgum hreppsnefndarnefnum á Íslandi er ástandið þannig, að meirihlutinn hefir rænt öllum völdum og hefir málefni sveitarfélagsins einn útaf fyrir sig og deilir og drottnar, gerspilltur og rotinn, hvar sem hann getur því við komið í bænum. Verstir í þessum hundakúnstum er Sjálfstæðisflokkurinn, sem líkist meira óhugnanlegri mafíu en stjórnmálaflokki, þ.e. í þeirri merkingu sem við leggjum í það orð. Þessi vélabrögð Sjálfstæðisflokksins eru fyrir löngu orðin slík, að þar á bæ þekkja menn og konur ekki lengur rétt frá röngu, réttlæti frá óréttlæti, glæpi frá heiðarlegum framgangsmáta. Með þetta í huga væri réttlætanlegt að banna meirihlutamyndanir í sveitarstjórnum og taka strax í taumana ef útlit er fyrir að lævís og valdasjúk óþverraklíka hafi orðið til innan hóps lýðræðislega kjörinna bæjarfulltrúa.
![]() |
Mikil hagræðing framundan á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2020 | 12:07
Þær þora ekki lengur að mæta á ríkisstjórnarfundi eða vera innan um fólk, enda aungin furða
Jæja, þá þora þær ekki lengur að mæta á ríkisstjórnarfundi, aumingjarnir svornu; þær ku vera hræddar um Bjarniben og Áslaug litla Arna, sem enn er ekki af barnsaldri, muni snúa upp á þær og hvæsa framan í þær við ríkisstjórnarborðið. Það matt alltaf búast við þessu að þær fengju örlitla hysteríu eftir öll svikin og loddaraskapinn við kjósendur og aðra landsmenn. Sá sem sofnar hjá hundum vaknar með flær. Og þannig er það nú og fátt við því að gjöra úr því sem komið er. Í stað þess að skríða undir rúm og þykjast vera veikar, áttu þær að vaða á ríkisstjórnarfund, ef þær eru virkilega sýktar af kóvíði nítjánda og smita gjörvalla ríkisstjórnina soleiðis að við fengjum að vera ríkisstjórnarlaus um hríð og helst um aldur og ævi.
Eins og staðan er í augnablikinu er viðbúið að Stenngrimur sjálfur, Swabbó Sendiherra og Álfheiður Fiskeldisdrottning verði að neyðast til að ganga inn í ríkisstjórnina, fyrst skrautfjaðrirnar þeirra eru búnar að vera og á leið á hælið. Það þýðir auðvitað ekki neitt fyrir þetta ófróma fólk að vera með kvefpest eins og kóvíð nítjánda, það er eins og allt annað hjá þessum gersemum ein allsherjar bölvuðu haugalýgi. Leiknum er lokið jómfrú Jakobbs og best að þið haskið ykkur í taka leiktjöldin niður, fara heim og skammast ykkar.
Svo má vel vera að Bjarniben sópi VG menntasnobbshyskinu út og taki Samfylkinguna og Pírata inn í ríkisstjórnina í staðinn; það er nefnilega allt falt ef réttur gjaldmiðill og ívilnanir eru í boði og krataeðlið jafn veikt sem fyrr fyrir Sjálfstæðisflokkum og stórauðvaldi heima og heiman. Enda er krataeðlið skilgetið afkvæmi Sjálfstæðisflokksins, erfðagalli, sem íhaldið hannaði vísvitandi og sleppti út í umhverfið. Allt er þetta undir kontról hjá Bjarnaben og Engeyingum og þeim er fjandans sama hvort hásetinn þeirra heitir Katrín, Stenngrimur, Logi eða Björn Leví, því þeir vita manna best að allir eru þessir aukvisar sama skítatóbakið, margmarínerað upp úr borgaralegum uppskafningshætti og fylgispekt við auðvaldsþjóðskipulagið.
![]() |
Katrín og Svandís ekki á fundi vegna veikinda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.9.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 88
- Frá upphafi: 1553884
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 84
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007