Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Kalt vatn milli skinns og hörunds vegna dúxaplágunnar

perr2.jpgAlltaf rennur mér jökulkalt vatn milli skinns og hörunds þegar ég rekst á fréttir í fjölmiðlum af dúxum. Sem kunnugt er verður aldrei neitt meira úr dúxum en að verða rukkarar, næturverðir eða fylliraftar; sumir dúxar verða allt þetta þrennt og má segja að þá sé dúxframleiðslan fullkomin. 

Einn er þó sá dúx, sem aldregi hefir bugast, þrátt fyrir andstreymi á köflum, en það er góðvinur okkar allra, Kolbeinn Kolbeinsson, sem svo rættist úr, að hann hefir nú um langt skeið gengt starfi skrifstofustjóra hjá hinu opinbera samhliða því ábyrgðarmikla starfi að vera skipulagsstjóri hennar hátignar, gömlu Framsóknarmaddömunnar. Einnig hefir Kolbeinn staðið í ströngu við að innheimta skuldir hjá Pétri og Páli og í leiðinni með þessu öllu, afkastamikill fylliraftur, eituræta og kynlífsfrömuður, starfaði um skeið sem kynferðismarkþjálfi í Framsóknarfjósinu.

Það sem einkenndi menntaskólaframa Kolbeins var, að hann las við MA og MR báða í einu og lauk burtfararprófi frá báðum skólanum í einu með meðaleinkunnina 10.00 á báðum stöðum. En ferill Kolbeins er einkar glæsilegur, þegar hann er borinn saman við hrakfarir annarra dúxa. Á ári hverju sitja minnst þrír dúxar að meðaltali í afplánun í fangelsum landsins. Aðrir dúxar eru gjarnan vistaðir á hælum fyrir vandræðafólk, eða þeir eru komnir undir græna torfu. Það er líka sameiginlegt einkenni dúxa, að þeir ganga ekki aftur eftir að hafa burtkallast frá jarðlífinu og sjást né heyrast heldur aldrei á miðilsfundum; það segja fróðir menn að stafi af því, að dúxar séu vitlaust tengdir í upphafi, og gott ef ekki algerlega sálarlausir.  


mbl.is Dúxaði með hæstu meðaleinkunn í sögu MA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnir í grimmileg handalögmál óðra efrimillistéttarfémínísta

ing5.jpgÆtíð skemmti ég mér undurvel í hvurt skipti sem ég sé eða heyri efrimillistéttarfémínísk fyrirmyndarkvendi rjúka saman eins blóðþyrsta hænsnfugla. Nú hefir eitt af þessum frábæru rifrildum skotist upp á stjörnuhyminn fína fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur, en þar hafa frú Hildur Björnsdóttir og Þórdís Lóa veist hvor að annarri með fáheyrðum munnsöfnuði. Nú er komið að öðrum þætti samskipta þerra, sem sé handalögmálunum og þá verður mikið um dýrðir í borgarstjórn.

Djöfull verður gaman að sjá þær rífa blessaða kjólana utan af hvurri annarri með bölvi og svívirðilegum aðdróttunum. Þegar þar er komið, er vissulega nokkur hætta á því, að slagurinn fari eins og rjúpnaslagurinn í Arnarfirði og önnur fraukan liggi eftir í öðrum heimi, eða svo. Ég heyrði eitt sinn sögu að tveimur efrimillistéttarfémínístum sem slógust svo ofboðslega, að þegar upp var staðið, og þær báðar dauðar, vóru þær búnar að kroppa augun úr hvurri annarri og rífa út úr munnvikum hvurrar annarrar, allt aftur að eyrum, en raunverulegt banamein þeirra var samt óseðjandi íllskufrekja.

En ef vér leiðum hugann aftur að áflogum þeirra Hildar og Þórdísar Lóu, þá veltur allt á því að Hildur falli ekki endilöng eins og fúaspýta á gólfið og Þórdís Lóa kæmi á hana ofan og sprengdi hana á fautalegan máta. Nú er sannast sagna, að Hildur, auminginn sá arni, er Íhalds, en Þórdís Lóa Viðreisnarpírat; báðar til samans eru þær vandræðagellur og sprellikérlíngar. Þetta á eftir að verða mjög áhugavert allt saman og skemmtilegt, eftir hörmungar kóvíðtímabilsins alræmda, sem gengið hefir svo nærri andlegri velferð og heilsu gjörvallrar efrimillistéttarinnar og yfirstéttarinnar. En meðan téðar stéttir eru óvígfærar tala endemin í sosialistaflokki Gunnars Smára bara um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, - géðslegir sosialistar það!  


mbl.is Furðar sig á orðum Þórdísar Lóu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta afrek forsetafrúarinnar og alvarlegur draumur Kolbeins Kolbeinssonar

kolb16_1275588.jpgMikið er það frábært afrek hjá forsetafrúnni að finna Smáralindina og ná að kjósa karlskrögginn sinn þar. Og svo heita synirnir Dónaldur, eins og Trump, og Peter, eins og togarasjóari frá Grimsby. Það er þjóðlegt að hætti Gwöndar Fránklíns. Ekki vitum vér enn hvárt Gwöndur Fránklínstein á ektakærustu, sem væri hægt að nudda á kjörstað til að kjósa sinn mann. En allt kemur þetta í ljós og Íslendingar sitja uppi jafn forsetalausir sem áður. Vér köllum það það ekki að hafa forseta að vera með þennan Guðna á launum suðrá Bessastöðum að liggja á meltunni.

En Gwöndur Frankenstein er athyglisverur náungi, braskari, ævintýramaður og leikari. Það held ég sé maður sem oss vantar a Bessataði. Hann er svo sem aunginn Sveinbjörn Egilsson eða Grímur Thomsen, svo einhverjir fyrri ábúendur Bessastaða séu nefndir, en hann er samt sem áður jólasveinn þeirrar tegundar, sem nútíma-Bessastaðir væru fullsæmdir að. 

Í fyrrinótt dreymdi Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann, að hann væri staddur á hlaðinu á Bessastöðum og þar var líf í tuskunum. Þar lá Bessastaðabóndinn í áflogum við skepnu, einhvern dularfullan blending af hrúti, hrossi og gleðikonu úr Herbertsstrasse. Þessir kynlegu aðíljar virtust í nokkuð annarlegu ástandi, blótuðu hvur öðrum mikið og æptu við og við upp klúryrðum og kláms. Kolbeinn mundi vel hve hræddur hann var í draumnum við slagsmálahundana og óskaði þess heitt að þeir hættu að berjast, annar félli, elligar þeir mundu velta ofan í tjörnina fyrir neðan hlaðið. En allt í einu hoppaði blendingurinn upp á nærstaddan stól og gargaði: ,,Brátt verður Bessastaður jafnaður við jörðu og Tarzan apabróðir gjörður að förseta hins íslenska ríkis. Amen." Þá vaknaði Kolbeinn og þakkaði Guði fyrir að vera laus við hina hvimleiðu draumamenn.


mbl.is Forsetafrúin kaus í Smáralind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefir víðar allt leikið á reiðiskjálfi. Ennfremur: Óhamingja á kóvíðtímanum

kolb19_1274081.jpgÞað lék líka allt á reiðiskjálfi í hjónaherbergi þeirra frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar þegar þau tóku gripinn Máríu Borgargagn til kostanna þar inni. Þetta hófst með því að frú Ingveldur tók í lurginn á Borgargagninu frammi í stofu og hálf-dró það nauðugt viljugt inn í ból, en Kolbeinn fylgdi eftir, slefandi að vanda. Inni í hjónaherbergi varð af ein svört djöflamessa með jarðhræringum og neyðarópin og lostahryglurnar glumdu við alla leið út á götu.

Síðar, þegar Indriði Handreður var kominn til skjalanna, reyndi sá frómi maður allt hvað hann gat, til að koma á frekari skjálftavirkni í svefnherbergi sæmdarhjónanna. En þar er frú Ingveldi hefir alltaf haft ógeð á Handreðinum, hefir honum orðið torvelt að gjöra þann draum að veruleika. Eitt sinn í helgarsamkvæmi að heimili frú Ingveldar kom hún að Handreðshelvítinu, Máríu Borgargagni og Brynjari Vondulykt hvar þau höfðu laumað sér inn í svefnherbergi þeirra sæmdarhjóna og tekið til við að leika þar ósæmilega leiki, en undir rúminu lá Kolbeinn húsbóndi í böndum. Mikið var frú Ingveldur fljót að sópa illræðisfólkinu út úr hjónarúminu og burt úr hjónaherberginu. Er því var lokið, seildist frú Ingveldur undir rúm eftir eiginmanni sínum, sem lá þar berrassaður í böndum, og misþyrmdi honum hrottalega; bölvað kvikindið hafði sem sé tekið þátt í óleiknum með Borgargagninu og þeim hinum.

Í kóvíðbanninu var dauft um helgar að heimili sæmdarhjónanna; þau höfðu Brynjar Vondulykt og Óla Apakött í sóttkví hjá sér, að beiðni landlæknis og sóttvarnarlæknis. Þá komst frú Ingveldur að því, að skepnan Brynjar Vondalykt, hafði frekar en ekkert og út úr leiðindum, farið að leika þann ljóta leik að kukka að næturþeli í blómapottana í stofunni. Frú Ingveldur rann á lyktina eins og villudýr og gjörði af mikið mál, lagði höndur á Vondulyktina, þókt hún væri undirlögð af kóvíðvírusum og að bana komin. Kolbeinn vildi ekki vera eftirbátur konu sinnar og barði sjúklinginn, hvar hann lá í gólfin,u yfrum herðarnar með stólfæti, sem var við höndina. Já, kæru vinir og velunnarar nær og fjær, það var mörg óhamingjan sem fékk að grasséra á kóvíðtímanum. 


mbl.is Allt lék á reiðiskjálfi í 25 sekúndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann var mestur áhugamaður landsins um skriðuföll og snjóflóð

fall1.jpgHann Jón eitinn, sem kallaður var aumingi, til aðgreiningar frá öðrum Jónum, var mestur áhugamaður um skriðuföll og snjóflóð, sem uppi hefir verið á Íslandi. Hvunær sem von var á einhverju var Jón mættur og farinn að vakka um staðinn eins og soltinn refur, sem grun hefir um æti. Ef hann var svo heppinn að verða vitni að snjóflóði eða aurskriðu hoppaði hann hæð sína í loft upp og öskraði og veinaði af fögnuði. Flestir vóru á því að Jón eitinn aumingi væri fábjáni, innantómur andskotans lúði; aðrir voru fremur á því hann væri geðbilaður og léti sona þess vegna, væri máske með það sem kallað hefir verið géðklofi; enn aðrir töldu að Jón eitinn væri aunginn helvítis fáviti eða sturlaður á géðsmunum. Ónei, Jón væri illa örtuð skepna, rotinn inn í merg og stórhættulegur.

Langtímum saman var ekki neitt að gerast á áhugasviði Jón eitins aumingja og hann varð eirðarlaus, afundinn og hreytti ónotum og jafnvel viðbjóðslega orðuðum svívirðingum í fólk. Það var á þeim stundum, sem Jón reyndi að framkalla náttúruhamfarir upp á eigin spýtur. Hann var dulítið sona að vasast með dínamít uppi í fjallsupsum. Fyrir kom að honum tókst að sprengja einn og einn klett upp og þá horfði hann eftir grjótrennslinu niður hlíðina eins og í leiðslu. En hann fór vel með og sprengdi ekki nema þar sem aungin hætta stafaði af tilraunum hans.

En svo kom hann auga á eitt gríðarlegt bjarg, sem stóð framarlega á klettabrún, en niðrundan klettunum tók við snarbrött hlíð og þar fyrir neðan fjölfarinn þjóðvegur. Af hyggjuviti sínu sá Jón eitinn aumingi í höndum sér, að ef hann sprengdi frekar litla sprengju undir þeirri brún bjargsins er lengra stóð frá brúinni mundi það hafjast aðeins upp og slögvast fram af og þá yrði nú gaman. So, so fór Jón með dínímít upp á fjallsbrún og sprengdi á þaulæfðan og fumlausan hátt. Nú, kletturinn þeyttist af stað og rauk niður fjallið. En því miður fylgdi fjallsbrúin með og Jón eitinn aumingi. Hið mikla bjarg hafnaði auðvitað ofan á flutningabifreið, sem var á ferð um þjóðveginn, og flatti hana út, en svo kom dálítil grjótskriða í kjölfarið, ásamt Jóni eitnum, og lá þetta allt í kös neðan við þjóðveginn þá að var komið, bjargið stóra, Jón eitinn og flutningabifreiðin. En bifreiðarstjóri flutningabifreiðarinnar fannst aldrei og var hans þó lúsleitað út um allt. Hafa síðan margar kenningar verið uppi um hvarf þessa manns; hann hefir meðal annars komið fram á miðilsfundum og svarið fyrir og harðneitað því að hann sé dauður og haft í leiðinni uppi ljót orð um Jón eitinn aumingja. 


mbl.is Engar sterkar vísbendingar um yfirvofandi stórfellt hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við þekkjum öll skemmdarverkamennina, og flesta þeirra að illu einu

piss_1126418.jpgEkki kæmi á óvart þótt för þau hin miklu í mosaþembunum að Fjallabaki séu eitthvað tengd frú Ingveldi og því fólki. Ennfremur er líklegt að séra Atgeir p. Fjallabakssen hafi verið för, þá mosinn var reyndur með vélsleðum. Eins og nafnið bendir til, þá á séra Atgeir p. Fjallabakssen ættir sínar að rekja að Fjallabaki, en áar hans bjuggu mann fram af manni, öldum saman að Fjallabakskoti undir Fjallabaki. Séra Atgeir er því hagvanur þarna og hefir eflaust verið leiðsögumaður hjá ferðahópi frú Ingveldar.

Þá tildrög málsins vóru könnuð, kom í ljós, sem vonlegt var, að í ferð frú Ingveldar og þeirra var ekki aðeins séra Atgeir fararstjóri og gleðigjafi, heldur og Bacchus konungur. Það var því heldur glatt á hjalla er komið var að Fjallabakskoti, sem auðnuleysingjar nefna ,,Friðland" í dag, og vélsleðarnir knúðir til hins ýtrasta yfir grjót og urð, mosafláka og mýrarflóa. Og allir skemmtu sér vel, ekki síst værðarklerkurinn Atgeir p. Fjallabakssen, sem varð eldrauður eins og hanakambur í framan og reykti án afláts úr dollarapípu sinni.

Þegar búið var að gjöra mosapöldrunum skil, mé Brynjar Vondalykt í förin eftir sleðabeltin og þau hin fóru að dæmi hans. Mestu mé þó séra Atgeir, en Kolbeinn Kolbeinsson, sem horfði á kveðst fullviss, að karlinn hafi dælt rúmu gallóni hlands úr rana sínum ofan í skemmdirnar. Það munar um minna. Máría Borgargagn horfði líka starandi glyrnum á aðfarir sóknarprestsins og dáðist að; hún hafði aldregi séð eins volduga gusu koma svo mjórri títu áður og trúðu því að nú hefði hún orðið vitni að heilögum jarteiknum og setti krossmark með löngutöng og vísifingri yfir títuna Fjallabakssens, en værðarklerkurinn mælti að bragði: ,,Syndir þínar eru fyrirgefnar, gimbrin mín." Og Máría Borgargagn hugleiddi orð musterishaldarans lengi. 


mbl.is „Þetta er fáheyrt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóttvarnarhúsið er nú þegar fullt út úr dyrum af dauðvona sjúklingum

kolb3.jpgÞeir hafa nú heldur meira umleikis í Sóttvarnarhúsinu en að þjónusta útlenska kóvíðgemlinga. Aðalstarfið undanfarna daga í Sóttvarnarhúsinu hefir verið fólgið í að stunda fárveika krataeðlissjúklinga. Þeir sjúklingar, sem krataeðlisvírusinn hefir herjað á upp á síðkastið hafa verið svo veikir að þeim hefir ekki verið hugað líf. Og allur er þessi ofsakrankleiki nú í kratahjörðinni út af einum ellihrumum og örvasa prófessor í hagfræði? Það er eins og þessi endemi haldi að áróðursvellan, sem þeir kalla hagfræði, sé vísindi og fræði, og eflaust eitthvað fleira þar fram eftir götunum.

Fyrir nú utan, að hinn hrumi prófoss sé lagstur í Sóttvarnarhúsinu, þá hafa starfsmenn hússins haft mikinn ama af Thorsaranum úr Samfylkingarkreðsunni, hann er sem sé órólegur og svarar illa inngjöfum. Nú er Sóttvarnarhúsið stútfullt af hættulega smitandi krataeðlissjúklingum, sem liggja þar út um allt: Inni á herbergjum, göngum, undir rúmum, inni á salernum, eldhúsinu og búrinu. Djöflarnir sem settir voru í búrið átu þar allt, sem tönn á festi, um leið og drukku rauðvínið og koníakið sem ætlað var forstjóranum. Brátt verður knattspyrnuhús tekið á leigu til að hýsa illa þjáða og stórveiklaða krata og þeirra eðli.

En það er til viðbótar af krataeðlissjúklinunum að segja, að allnokkrir þeirra vóru bornir í Sóttvarnarhúsið í öngviti eftir hnefa Bjarnaben, en hann hefir á síðustu dögum rotað að minnsta kosti þrjátíu og tvo krataeðlissjúklinga, og er sagður hvurgi nærri hættur. En það er af hinum fræga hatti herra Þorn. Gylfason að segja, að einhverjir gárungur komust yfir hann og fóru með hann upp í sveit og settu hann þar á hausinn á bröndóttri kvígu, þar sem hann sómir sér óaðfinnanlega. Og brátt mun ríkisstjórnin lýsa yfir neyðarástandi í landinu út af hinum illskeytta kratavírusi; útfararstjórar eru þegar á þönum við að sækja meira timbur og nagla og hamarshöggin glymja langt fram á nótt, því þeir ætla að vera tilbúnir með nógu margar kistur þegar vírusinn fer að gera svo um munar út af við krataræxnin.


mbl.is Hröð atburðarás í Sóttvarnahúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að senda flokksbróður sínum tóninn er fáheyrð og fordæmalaus varmennska

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Ósköp er alltaf sorglegt að horfa upp á menn sperra sig og útblásast í hneykslan á kostnað flokksbræðra sinna. Það er til dæmis harðla óviðurkvæmilegt að verða vitni að talsmáta sumra sokallaðra Sjálfstæðisflokksmanna um Dónald Trump, sem er þó mestur Sjálfstæðismanna nú um stundir. Og heyra sjálfstæðisfól kalla þann abelsínugula í Lundúnum, hann er sagður móðursonur þess abelsínugula í Washington, öllum illum nöfnum. 

Og nú gjörir hr. G. a. Þórðarson sig framúrskarandi kjökurslegan í framan, einkum til augabrúnanna, og úthúðar flokksbróður sínum á Filippseyjum, sem staðið hefir í ströngu undanfarin ár. Þetta er ljóta andskotans framkoman, landi og þjóð til óborganlegrar skammar. Bjarniben hlýtur að taka í taumana og fleygja dónanum á dyr í Valhöllu og í ríkisstjórninni. Kallar af þessari tegund voru undantekningalaust hýrudregnir á sjónum í gamla daga og látnir sofa hjá kjölsvíninu um nætur.

Í dag er ekkert nógu gott nema lausung, belgingur, ómerkilegheit og poletisk skítafýla. Í Hruninu dönsuðu þeir vikivaka. Í kóvíðinu nr. nítján fengu óráðsíufrekjurnar að dansa í ríkissjóði. Nei, herra utanríkisráðherra, þér vinnið yður einungis í álit hjá Fjandanum með því að sproksetja flokksbróður yðar á Filippseyjum, en það er ef til vill tilgangur yðar. Gott og vel herra utanríkisráðherra, en þá eru dagar yðar í ráðuneytinu líka taldir.  


mbl.is Sakfellingin sýni mikilvægi ályktunar Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumt lífshlaup, flótti og tímabært andlát hænsnahers Pírata.

ratÞá er hún hrokkin upp af standinum og hlaupin grénjandi af vettvangi. Það er ekkert að stóla á sona fólk, það rembist við að rífa kjaft við sér skárri einstaklinga og tekur so strax til fótanna, há-organdi, um leið og það heldur að einhver fullorðinn ætli að taka í hnakkadrambið á þeim. Tóhildur Sunna hafði ekki hugrekki og nennu til að kjást við meirihlutann, því greip hún til þess óyndisúrræðis að gera Stjána Samherja að afsökun fyrir bleyðimennsku sinni og úthaldsleysi. 

En svona er þetta bara með þessa pítarakálfa, þeirra hugarfar er gjörspillt, geðvont og markað ragmennsku og slepjuskap. Við þessu er ekkert að gera. Meðan Píratar haga sér eins og brjóstumkennanleg endemi og naut, hlæja Bjarniben og Stjáni að þeim, og meira að segja Katríni Jaggo hefir verið kennt að tísta og kvaka við tönn að vesalingunum. Já, Píratarnir eru so ruddalega glataðir, að fátt sýnist hörmulegra á þingi nema ef til vill bölvaður Viðreisnarflokkurinn, sem svo sannarlega er fullkominn afturúrsiglaraflokkur.

Já, kæru landsmenn, sögu pírataheimskunnar er lokið. Og í morgun sló Bjarniben Samfylkingar-Thorsarann viðstöðulaust niður í fyrstu lotu og í annarri lotu veitti Stjáni Samherji Pírötum þvílíkan vink, að Tjórhildur Sunna veltist út í horn og liggur þar enn, grénjandi og yfirspiluð af spillingarekka. Þegar Pírataflokkurinn verður öskraður niður í jörðina við hátíðarsnauða athöfn frá einhverri svínastíunni í hundrað og einum munu viðstaddir syngja sálminn: ,,Á líkbörunum liggur grey, ljótir karlar hlæja að því."   


mbl.is „Nota mig og mína formennsku sem skálkaskjól“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamli Kolbeinn deyði sína konu líka með eitri - það var freyðandi eitur

gubbÞað hefir verið mesta mildi að kérlingarfólið drap ekki karlaumingjann með öllum þessum skituinngjöfum. Þannig er sagt að gamli Kolbeinn Kolbeinsson, faðir Kolbeins skrifstofustjóra og framsóknarmanns, hafi að hluta til sálgað eiginkonu sinni; karldjöfullinn fór að lauma ólyfjan út í matinn hennar, því hann var orðinn hundleiður á konunni. Blessuð konan, móðir Kolbeins og tengdamóðir frú Ingveldar, fékk hvað ofan í annað hrottafenginn spýting og kukkurinn fór út um allt.

Já, gamli Kolbeinn prófaði á láta konuna sína eta vítissóda, blástein, rottueitur og ormalyf ætlað sauðfé. Og með það sama varð konan veik og og gerði í rúmið í köstunum, en þá hló gamli Kolbeinn illyrmislega. Og eitrið freyddi í iðum hennar án afláts. Svo dó konan og þókti sumum einkennilegt. En frú Ingveldi fannst samt eitthvað ekki eins og það átti að vera og nefndi þann möguleika við son hennar, að móðir hans hefði andast af eitri, það hefði verið eitrað fyrir henni eins og rottu og nú væri hún dauð. Þetta væri vísast saknæmt og því ætlaði hún að fara til lögreglunnar. Eftir miklar málalengingar, rifrildi og þras var gamla frúin grafin upp og skoðuð. Jú, sögðu læknarnir og meinafræðingarnir, hún hefir líklega étið ótæpilega mikið af óþverra og því fór sem fór. En það fékkst aunginn botn í málið og gamli Kolbeinn óð um og lék á alls oddi eins og honum kæmi þetta kjaftæði ekki við.

Nú býr gamli Kolbeinn Kolbeinsson á dvalarheimili aldraðra, sem hann hefir vitaskuld yfirtekið, og nú ræður hann þar öllu. Fyrir nokkrum vikum síðan varð ein starfsstúlkan á dvalarheimilinu fölgræn á litin og gekk af vitinu. Þetta var voðaleg uppákoma og það fundust leifar af rottueitri og vítissóda í blóði og þvagi konunnar og hún orðin svo geggjuð þegar þarna var komið sögu, að uppástóð að hún hefði sjálf byrlað sér eitrið og étið það. Þessari konu verður aldrei hægt að hjálpa og þeir hafa hana í einsmannsklefa á Kleppi, því hún er sannarlega brjáluð. En gamli Kolbeinn hefir sína hentisemi á dvalarheimilinu og gerir sér að leik að áreyta þar alla, bæði kynferðislega og svínslega og ef honum líkar sérlega illa við einhvern má sá hinn sami búast við að engjast sundur og saman af ilvígum innantökum lengi á eftir.    


mbl.is Laumaði hægðalyfjum í matinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband