Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
27.6.2020 | 23:20
Royalismus á Íslandi og óhugnanlegur draumur hins merka valdsmanns
Auðvita er það alvarlegt aðvörunarmerki fyrir Guðna garminn og aðra íslenska royalista, að frambjóðandi eins og Gúndalingur skuli vera með næstum tíu prósenta fylgi, miðað við fyrstu tölur. Í huga talsvert margra Íslendinga virðist forsetaembættið á Íslandi, til heimilis að Bessastöðum, vera ígildi einhverskonar konungstignar og þar með royalískt í allri sinni andlegu fátækt. Í stað þess að halda fáránlegar forsetakosningar í dag hefði íslenska þjóðin átt að leiða Guðna út í bíl og aka honum burt frá Bessastöðum í hinsta sinn.
Síðastliðna nótt dreymdi Kolbeini Kolbeinssyni eintóman hænsnaskít og um það bil klukkan sex í morgun var hann farinn að gala eins og hani upp úr svefni. Frú Ingveldi, hinni hugumstóru eiginkonu Kolbeins, geðjaðist illa að svefnlátum Kolbeins og sparkaði honum fram úr og tróð honum með valdi undir rúm. Nú, Kolbeinn barðist á móti í ofsafenginni skelfingu, því hann taldi víst að nú ætti að myrða hann. Í látunum spriklaði hann og sparn við fótum þar til hann, fyrir slysni, slæmdi fæti framan í frú Ingveldi, og þá tók nú fyrst í hnjúkana.
Frú Ingveldur trylltist um leið og skítug löppin á karlhelvítinu rakst í kinn hennar og nef, með þeim afleiðingum að blóð tók að frussast. Enda hafði frú Ingveldur aungvar vöbblur á og reif í fót Kolbeins, hvar hann stóð út undan rúminu, og snöri hann úr knjáliðnum og sparkaði síðan eiginmanni sínum berum út á stétt. Kolbeinn grét og barmaði sér og bað konu sína um að rétt sér föt út um gluggann, svo hann gæti farið á kjörstað til að kjósa Gúnda. Og þannig vildi það til að Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og Framsóknarmaður dróst nakinn á kjörfund, því frú Ingveldur svaraði bænarorðum eiginmanns sín einungis með grimmilegum hótunum. Þarna kom draumur Kolbeins um hænsnaskítinn berlega fram um leið og hann vaknaði, því hænsnaskíturinn í draumnum merkti auðvitað að Kolbeinn færi slasaður og allsber eftir árás á kjörstað til að greiða vini sínum atkvæði sitt.
![]() |
Hlakkar til næstu fjögurra ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2020 | 23:36
Við munum, í lok sumars, sitja upp forsetalaus
Úr þessu er staðan vonlaus hjá Gwöðna Téh, enda hefðir karlhólkurinn ekki gjört annað, alla kosningabaráttuna, en að skjóta sig í fótinn og er nú af annar fóturinn, sá vinstri. Að horfa upp á þessar aðfarir Gwöðna hefir þjóðin loks komist að því, að aldeilis jafngott væri að hafa kauphallabraskara, eins og til dæmis Gúnda Frankenstein af Wall Street fyrir forseta.
Aftur á móti fréttist síðast af frambjóðandanum Gúnda hvar hann stundaði, frekar en ekki neitt, fjárhættuspil við tíkallakassa á Blönduósi. Samkvæmt fréttaritara útvarpsins í Húnavatnssýslu, átti tíkallakassinn alskosta við Gúnda og gekk vel að hafa af honum auðæfin. Á þessari stundu húkir Gúndi karlinn bak við spilakassann eftir að hafa tapað síðustu spjörinni sem hann var í, sjálfum nærbuxunum. Þessi kassi þarna á Blönduósi spilar nefnilega fatapóker við andstæðing sinn eftir að hafa náð af honum öllum aurunum.
Miðað við allt það sem gengið hefir á í baráttunni um Bessastaði er ljóst, að við sitjum uppi forsetalaus þegar kjörtímabili kallangans hann Gwöðna rennur sitt skeið á enda, og er það vel. Það kýs auðvitað aunginn heilvita maður aðra eins ólánsframbjóðendur og þá Gwöðna og Gúnda. Þá væri gamla Framsóknarmaddaman í Framsóknarfjósinu meira stofustáss á Bessastöðum en tvímenningarnir vonlausu, Gwöðne og Gúndi.
![]() |
Tekur tíma að átta sig á embættinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2020 | 13:17
Aumingja blessuð manneskjan
Aumingja blessuð manneskjan. Hún var nógu góð til að vera ráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn Íslands en svo kemur í ljós að ekki er hægt að nota hana til að stýra einhverjum lítilfjörlegum kvikmyndaverðlaunum. Þó er bót í máli að þessi fyrrum vonarpéníngur Sjálfstæðisflokksins samdi um starfslok og fær þá væntanlega digran starfslokasamning í anda yfirstéttarinnar og efrimillistéttarinnar.
Fyrst upp hefir komist, að fyrrum ráðherra betri borgara Íslands er lítt brúklegur til föndurvinnu, hvað þá til meiri verka, vaknar grunur um að ekki sé allt með felldu í bakgarði Sjálfstæðisflokksins og réttast væri að taka núverandi ráðherra flokksins til gaumgæfilegrar rannsóknar til að ganga úr skugga um hvort þeir séu nothæfir til að gegna ráðherraembættum og stjórnmálastörfum yfirleitt. Meðan slík rannsókn stæði yfir með tilheyrandi óvissu, væru í gildi bráðabirgðalög, sem bönnuðu stjórnmálaafskipti Sjálfstæðisflokksins.Þessu til viðbótar má geta þess, að bæði frú Ingveldur og Brynjar Vondalykt hafa haft uppi efasemdir um hæfi núverandi þinglið og ráðherra Sjálfstæðisflokksins og lýst áhyggjum af mannauðsmálum Flokksins. Frú Ingveldur hefir meira að segja gjörst svo tannhvöss, í viðurvist vitna, að halda því fram að Sjálfstæðisflokkurinn fyrir fjörutíu til fimmtíu árum sé allt annar stjórnmálaflokkur en sá Sjálfstæðisflokkur sem við lýði er í dag. Í stað hægfara hægriflokks með þægilegar velferðaráherslur af sósíalískum uppruna séum við nú með fullkominn villimannaflokk gráðugra manna og kvenna, sem að vísu heiti Sjálfstæðisflokkur, sem hefur í verki sýnt af sér, að hann er samfélagslega stórhættulegur í öllu tilliti.
![]() |
Ragnheiður Elín sagði upp störfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2020 | 22:03
Hann er spámaður karlinn og sérfræðingur í Guðnasögum
Það er viðbúið að Gúndi sé sannspár um úrslitin, hann er úr hófi fram spámannlega vaxinn og góður söngmaður og sérfræðingur í Guðnasögum. Hans fyrsta verk á Bessastöðum verður eflaust að rogast með kross upp á Bessastaðakirkju og koma honum fyrir uppi á turninum. Þið ráðið hvort þið trúið því, en Gúndi hefir nú þegar smíðað jargansmikinn kross úr harðviði, sem lýsa mun upp allt höfuðborgarsvæðið í skammdeginu, til blessunar guðskristni í landinu.
En þetta krossleysi á kirkjunni á Bessastöðum er mjög dularfullt mál. Aunginn veit hvunær krossinn hvarf af turninum og aunginn virðist vita hvar hann er niðurkominn. Sumir ætla að núverandi forseti sé múhámeðstrúarmaður á laun og hafi í skjóli nætur fjarlægt krossinn og gjört Bessastaðakirkju að Bessastaðamosku, sona eins og þegar óforsjáll kotbóndi breytir fjósinu sínu í hesthús. Aðrir segja að Bessastaðabóndinn hafi gjört kirkjuna að kartöflugeymslu, en sem kunnugt er, þá er óþarfi að hafa kross á þessháttar húsi.
Nú, Gúndamenn eru ágætir sagnaþulir og þeir hafa mælt af munni fram þau tíðendi, að nú hafi Guðni látið endurreisa Þrælakistuna, sem eitt sinn var prýði Bessastaða, og grafa út svartholið góða, hvar Jón okkar Hreggviðsson var geymdur meðan hann beið hálshöggs. Þá ku særingameistari, útlenskur, verið fenginn á Bessastaði til að vekja þar upp þjóðlega reimleika. Tókst sú aðgerð vel og sátu draugar klofvega á þekju forsetabústaðarins frá því um lönguföstu og fram að sauðburði, en þá hættu draugarnir skyndilega að ríða húsum og gengu í sveit með Gúnda og hafa fylgt honum síðan við atkvæðaleit um landið þvert og endilangt.
![]() |
Ég hugsa að þetta fari 53 47 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2020 | 21:09
Fjósið riðar til falls; þar er aunginn ógeggjaður lengur
Það er naumast stand í bölvuðum Framsóknarflórnum núna. Um skeið hefir verið vitað að gamla Framsóknarmaddaman væri orðin illa géðbiluð, drykkfelld og dópgjörn og eftir því illyrt við guð og menn. Nú er svo komið, að flest allir í Framsóknarfjósinu við þá gömlu feiga og hafa góðir framsóknarmenn verið að þreifa sig áfram með að eitra fyrir kérlíngarhexinu. En gamlar nöðrur drepast ekki svo glatt af eitri og vandræðagangurinn í Fjósflórnum eykst bara og eykst.
Og nú er litla griðkan Maddömunnar, hún jómfrú Alfredssen, farin að kæra, að því er talið er út í loftið. Þeir er gerst vita, þekkja vel hvernig sona kærur geta farið, og sjá í hendi sér að þetta geti endað með því að jómfrú Alfredssen kæri sjálfa sig í misgripum fyrir einhvern gikk í forsætisráðuneytinu. Verði niðurstaðan sú, að jómfrúin kæri sjálfa sig mun sjálft Framsóknarfjósið riða til falls. Gerum oss í hugarlund hvernig það getur endað, ef Fjósið verður lýst gjaldþrota vegna embættisafglapa og gamla Framsóknarmaddaman verði dregin úr bæli sínu og send hreppaflutningi í poka í sína fæðingarsveit.
Þó svo litla gula hænan sé hvurgi bangin og alls ekki af baki dottin, þá er sannleikurinn sá, að bráðum heyrir Framsóknarfjósið sögunni til, það mun sökkva í Fjóshauginn með manni og mús. Þetta hófst með því, að einhver geitfénaður í Fjósinu varð vitlaus og fleygði Sigmundi aumingjanum Davíð út á Guð og gaddinn og bað hann aldregi þrífast. Upp úr því varð Klausturflokkur Sigmundar til, margfalt hressari og framúrstefnulegri flokkur en þetta fjandans Framsóknarfjós með torfþaki og fúnum sperrum og opin fjóshaug á báðar hliðar.
![]() |
Höfðar mál til að ógilda úrskurðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2020 | 20:10
Ótrúlega sóðaleg árás á konur og transfólk
Skjaldan hefir sést jafn ófyrirleitin og sóðaleg árás á konur, en sú sem Sveitarfélagið Ölfus varð sek um í dag. Það þarf mikla ósvífni og enn meira kvenhatur til að láta sér detta í hug að láta dráttarbát heita Herdísi, það álíka svívirðilegt og láta dráttarvél heita Jónínu. Samanlagt er þessi hörmung sama eðlis og að sæma valinkunnar kvennpersónur klúrum og klámfengnum uppnefnum. Og ekki vænkast hagur Strympu, sé myndin smekklega, sem fylgir fréttinni á mbl.is skoðuð gaumgæfilega og af yfirvegun. Á mynd þessari gefur að líta þrjá skellihlæjandi karlpúnga, sem greinilega eru upp með sér af óhæfunafngiftinni, en að baki þeirra glittir í dráttarbátinn Jötun, sem nú hefir farið í gegnum kynskiptiaðgerð, farið í kynleiðréttingu, skulum vér segja, og heitir eftir hana Herdís. Sem betur fer höfum vér skjaldan orðið vitni að öðrum eins óþverra; þetta tiltæki virkar eins og fólskulegt klofspark á allar konur.
Það er ljóst, að ferlið með dráttarbátinn er þaulskipulagt með það eitt í huga að hæðast að konum og gera lítið úr transfólki. Vér mælumst til, að réttlætinu verði mætt með því að karlpúngarnir þrír verði hafðir í fylkingarbrjósti í næstu gleðigöngu, hangandi á löppunum, öðrum illa þenkjandi körlum til aðvörunar og þremenningunum sjálfum til viðvörunar.
Við, sem komin erum til vits og ára, munum vel eftir munnsöfnuði fullra slordóna fyrri tíðar. Það tal var óhugnanlega í takt við dráttarbátsskandalann í dag. Þeir heimsku drengir létu sér ekki muna um að kalla stúlkur, og jafnvel fullorðnar konur, dráttarvélar og hlógu að til að gjöra niðurlægingu kvenna sem mesta. Vér eldri kynslóðin munum líka upprisu smánaðra kvenna, þegar frú Ingveldur, þá bráðung gelgja, sló þrjá pilta á einu bretti í rot fyrir að hafa sent henni tóninn og kallað hana dráttarvél, dráttartaug og dráttarbát. Síðar kórónaðist ógæfa þessara andstyggilegu ungfjanda með því að þeir gerðust drullumakarar og kusu Alþýðuflokkinn; það var í stíl við það sem á undan var gengið.
![]() |
Fyrstur dráttarbáta til að hljóta kvenmannsnafn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2020 | 21:01
Ééé eins o jólatré, é e í tíngflokki VG
,,Ég er eins og jólatré,
ég er í þingflokki VG"
Svo mælti frú Ólsen úr ræðustóli Alþingis og glotti innra með sér af stórkostlegum árangri sínum í stjórnmálum. Og hún hugsaði með sjálfri sér, um leið og hún gusaði út úr sér ræðunni sem hann Stenngrimur Johoð skrifaði fyrir hana: ´Ja, mikið asskoti er ég lúnkinn stjórnmálaskörungur og vitið vellur upp úr mér eins og froða úr goshver, sem fylltur hefir verið með sápu. Þa gogo gaman a láda kallana öffunda sig útt af því mann er thíngma-ur. O-o-o-go-gogg.´
Og þingbrekkan Ólsen heldur áfram að ,,hugsa": ´Það veit aunginn, sem ekki hefir reynt, hvað það er gríðarlega gott að eiga samtal við kjósendur um upplifunina á þingsetu í heimsfaraldri, þa alve sésstök úrrræði. O-o-o-go-gogg.´
Vér skulum gefa þingbrekkunni gott klapp fyrir samtalið við sjálfa sig.
![]() |
Þakkar ósýnilegu hetjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2020 | 19:58
Hún er nautheimsk og gráðug og lætur hafa sig að fífli
Alveg stórmerkilegt, að þegar kosið er á milli tveggja óhæfra frambjóðenda skuli þeir samanlagt fá 100 prósent atkvæða. Maður mundi nú ætla að jafn gersamlega vonlausir jólasveinar og þessir tveir skunkar eru, fengju ekki meira en 5-6 prósent báðir til samans, öll hin prósentin færu á auðu seðlana og ógildu, en langstærsti sigurvegarinn væru þeir sem ekki létu hafa sig að fíflum með því að mæta á kjörstað. En því miður er því ekki að heilsa að þjóðin sé vitiborin, þvert á móti er hún nautheimsk og gráðug. Og ekki orð um það meir.
Fyrir þessar smánarlegu forsetakosningar gekk maður undir manns hönd að skora á Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann að gefa kost á sér til forsetakjörs. Kolbeinn hugsaði og hugsaði, var á tímabili farinn að sleikja út um, lét sem hann væri líklegur til að taka slaginn, leynikannanir sýndu að hann mundi vinna yfirburðasigur á Guðna þeim er kenndur er við kjánahroll. En svo tók frú Ingveldur af skarið og aflýsti framboði eiginmanns síns. Um kvöldið, þess sama dags, hélt frú Ingveldur erindi í félagi sjálfstæðisflokkskvenna í Garðabæ, hvar hún gerði poletiskan sleikjuskap vínsósa hvítra öfugugga að umræðuefni, og sagði meðal annars, að fyrr í dag hefði hún snúið einn sona aumingja, sem hefði ætlað í forsetaframboð, niður á helvítis besefanum.
Hvurnig á andskotanum ætli standi svo á því, að frábær forsetaefni á borð við Brynjar Vondulykt, Gunnar Smára new-sosialist, Hildi Lilliendalh og Vigdísi Hauksdóttur gefi ekki kost á sér til Bessastaðadvalar? Neinei, í staðinn fyrir afbragðsframbjóðendur fá kjósendur að velja milli tveggja vonlausra leppalúða. Það sagði mér góður maður, orðvar og óljúgfróður, að frekar mundi hann kjósa vörtuna á rassinum á hundinum sínum, en að ómaka sig á kjörstað til kasta atkvæði annað hvorn legátann sem þar eru í boði.
![]() |
93% segjast ætla að kjósa Guðna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.6.2020 | 11:52
Við þekkjum þennan mann
Það liggur í augum úti hvurt karlmennið er, sem reif niðrum sig fyrir utan sólbaðstofu og handlék kynfæri sín á lostugan hátt í vitna viðurvist. Þetta var náttúrulega hinn frægi maður, Indriði Handreður, nú kvæntur Máríu Borgargagni, sem líka er fræg í efri lögum samfélagsins. En nú er sem sé búið að ákæra Handreðinn fyrir sitt lostuga athæfi og má nú með sanni segja, að hann hafi orðið skyndikynæðinu að bráð, því Handreðurinn hafði í aungvu undirbúið þetta sem hann sætir ákæru fyrir.
Nú blasir við, að Indriði Handreður fari beina leið á Litla-Hraun fyrir að handleika handreð sinn fyrir framan fólk. Nema frú Ingveldur og Kolbeinn, maður hennar, skerist í leikinn og fái bjargað sínum manni undan hárbeittum og ísköldum refsivendi laganna. Frú Ingveldi hefir lengi verið kunnugt um afbrigðilegan hugsunarhátt Indriða, lostugar tiltektir og brenglaðan félagsanda. Bara það eitt, að hann hafi kvænst svo illa bersyndugri kvenpútu sem Máría Borgargagn sannarlega er. Þá hefir frú Ingveldur um all-langt skeið haft þungar áhyggjur af illum áhrifum, sem Handreðurinn hefir haft á fremur vonda menn eins og Kolbein Kolbeinsson, Brynjar Vondulykt og Óla Apakött og nefnir sem dæmi samverustundir þessara manna í miðstöðvarkompu að heimili frú Ingveldar og Kolbeins og einnig sérkennilegar bílskúrsferðir sömu manna þá helgarsamkvæmi standa yfir í húsi frú Ingveldar.
Þá er ótalin sú hörmung sem héraðssaksóknari og starfsfólk héraðsdóms hafa af að fjalla um mál Indriða Handreðs, því auðvitað særir brot hans blygðunarkennd veslings fólksins. Það verður hræðilegt, þegar hinn ákærði sýnir fyrir rétti hvernig hann fór að fyrir utan sólbaðsstofuna. Við héraðsdóm starfa ugglaust vænar konur á besta aldri, sem taka sér nær að horfa upp á lostasjúka graðkarla leika listir sínar. Eitt sinn hugðist Indriði Handreður hneyksla frú Ingveldi úti á fjölförnu stræti. Okkar góði Hnadreður var uppábúinn í jakkaföt og með tösku, merkta Evrópusambandinu, í hendinni. Þegar hann nálgaðist frú Ingveldi, sem kom vaðandi út strætið með miklu og góðu fasi, opnaði Handreður buxnaklauf sína og lét skína dulítið í stolt sitt. Frú Ingveldur svaraði áreiti Indriða að bragði með því að slá hann í öngvit. Meðfylgjandi mynd var tekin af Indriða meðan hann lá ósjálfbjarga í strætinu eftir fólskuleg atlot frú Ingveldar.
![]() |
Ákærður fyrir ósiðlegt athæfi við sólbaðsstofu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2020 | 23:47
Hélt þetta vera frásögn af alvarlegum sjúkleika Sigmundar af Klaustri
Mikið skelfing varð mér íllt við þá ég las fyrirsögn þessarar greinar, ,,Grafið undan Sigmundi." Satt að segja blóðhrökk ég við, því ég hélt að innihald greinarinnar fjallaði um að Sigmundur okkar Davíð hefði fengið óþrifnað og ígerð á viðkvæman stað líkamans og nú væri grafið undan honum. Það heitir víst ,,sjálfsprottin gelding" að máli lærðra manna. Hvað mundi miðjan í Klausturflokknum gera, ef foringinn hefði vanast, sona eins og upp úr þurru, og væri ekki lengur fær um að lyfta messuvínsglasi að vörum við bænastund og ritningarlestur að Klaustri.
Með þennan óskiljanlega gröft undan Sigmundi kom líka upp í hugann möguleikinn um viðbjóðslegan samblástur vondra Miðjúngsmanna, sem vildu hrifsa völdin af meistara sínum og steypa honum um leið í glötun. Soleiðis skítmenni eru áreiðanlega til í Klausturflokkum eins og öðrum flokksnefnum. En slíkir menn þekkjast á lyktinni, sem minnir á sambreyskingsþef af spanskgrænu og hvítmaðki. Þetta eru ógéðslegir menn, sem Sigmundur Davíð ætti að vara sig á.
En þá er ég leit yfir greinina undir hinni óhugnanlegu fyrirsögn, kom í ljós að það hafði ekkert grafið undan Sigmundi Davíð, enn síður hafði honum verið steypt af stóli. Ónei, hér var verið að fjalla um löngu liðinn Færeying, nafna Sigmundar, sem ku hafa verið hirðmaður eða búrtík Óláfs nokkurs Tryggvasonar. Sigmundur Færeyingur er sagður hafa pínt Trónd úr Götu með beittu sverði til að gerast kristinn maður. Síðan hafa veslings Færeyingarnir verið eins og þeir eru. Það væri mikið gustukarverk af hálfu okkar Íslendinga, að fara með her á höndur Færeyinga og innlima þá sem ævarandi eign ins Íslenska Ríkis (ÍR). Þá held ég Tróndur úr Götu mundi hressast.
![]() |
Grafið undan Sigmundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.9.): 11
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 73
- Frá upphafi: 1553900
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007