Leita í fréttum mbl.is

Að senda flokksbróður sínum tóninn er fáheyrð og fordæmalaus varmennska

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Ósköp er alltaf sorglegt að horfa upp á menn sperra sig og útblásast í hneykslan á kostnað flokksbræðra sinna. Það er til dæmis harðla óviðurkvæmilegt að verða vitni að talsmáta sumra sokallaðra Sjálfstæðisflokksmanna um Dónald Trump, sem er þó mestur Sjálfstæðismanna nú um stundir. Og heyra sjálfstæðisfól kalla þann abelsínugula í Lundúnum, hann er sagður móðursonur þess abelsínugula í Washington, öllum illum nöfnum. 

Og nú gjörir hr. G. a. Þórðarson sig framúrskarandi kjökurslegan í framan, einkum til augabrúnanna, og úthúðar flokksbróður sínum á Filippseyjum, sem staðið hefir í ströngu undanfarin ár. Þetta er ljóta andskotans framkoman, landi og þjóð til óborganlegrar skammar. Bjarniben hlýtur að taka í taumana og fleygja dónanum á dyr í Valhöllu og í ríkisstjórninni. Kallar af þessari tegund voru undantekningalaust hýrudregnir á sjónum í gamla daga og látnir sofa hjá kjölsvíninu um nætur.

Í dag er ekkert nógu gott nema lausung, belgingur, ómerkilegheit og poletisk skítafýla. Í Hruninu dönsuðu þeir vikivaka. Í kóvíðinu nr. nítján fengu óráðsíufrekjurnar að dansa í ríkissjóði. Nei, herra utanríkisráðherra, þér vinnið yður einungis í álit hjá Fjandanum með því að sproksetja flokksbróður yðar á Filippseyjum, en það er ef til vill tilgangur yðar. Gott og vel herra utanríkisráðherra, en þá eru dagar yðar í ráðuneytinu líka taldir.  


mbl.is Sakfellingin sýni mikilvægi ályktunar Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband