Leita í fréttum mbl.is

Enn gjammar búrtíkin óskeikula

búr1Mikið er gleðilegt að við íslendingar skulum hafa eignast óskeikulan sérfræðing milliríkjadeilum eins og hinu svavaríska Icesavemáli. Og þó að umræddur sérfræðingur sé einungis auðvirðileg búrtík Svavars Sendiherra, Álfheiðar piff Ingadóttur og Steinsgríms, er hann samt svo mikill sérfræðingur að hann getur með góðri samvisku kallað alla sem eru honum ekki sammála í sérfræðimálunum fífl og asna hvort heldur það eru innlendir menn eða erlendir. Það er aldeilis munur að hafa höndlað hinn stóra sannleik í eitt skipti fyrir öll!

Það er ekki amalegt að hafa búrtík á heimilinu sem er ekki einasta óskeikull sérfræðingur í öllu sem máli skiptir heldur og sígjammandi og glefsandi fyrir hönd húsbænda sinna, sem er eins og kunnugt er afskaplega virðingarvert yfirstéttarslekti. 


mbl.is Björn Valur: Umræðan á villigötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

Getur þú virkilega ekki rætt um fólk án þess að uppnefna það ? Það er frekar leiðinlegt að lesa svona skrif. Það sem þú segir missir alveg marks þegar þessi tónn er notaður.

Brattur, 11.1.2010 kl. 07:57

2 Smámynd: Halldór Halldórsson

Ég er yfirleitt ALDREI sammála Jóhannesi Ragnarssyni um nokkurn hlut, en gagnvart Birni Val Gíslasyni er ég sammála Jóhannesi að það er hreinlega ekki hægt að svara málflutningi hans öðruvísi en sem þar sé á ferðinni "gjammandi búrtík"!  Manni sem segir sjálfur að samþykkja átti Ice-Save dílinn frá því í júní 2009, óséðan!  Maður sem nennti ekki að sitja sumarþingið; heldur fór á sjóinn að þéna nokkrar millur!

Halldór Halldórsson, 11.1.2010 kl. 08:11

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvaða fólk var ég að uppnefna Bratti minn?

Jóhannes Ragnarsson, 11.1.2010 kl. 08:17

4 Smámynd: Sigurður Helgason

Þú yrðir önuglega leiðinlegur ef þú færir að skrifa öðruvísi,

Halstu þessu áfram

Sigurður Helgason, 11.1.2010 kl. 08:30

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er nóg af leiðinlegu fólki á blogginu og ég ætla mér ekki að sækja um inngöngu í þann hóp.

Jóhannes Ragnarsson, 11.1.2010 kl. 11:41

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er líka meira en nóg af umtals-illu fólki á blogginu og ég hélt ekki að þú tilheyrðir þeim hópi, Snæfellingurinn.

Það vill nú þannig til að Björn Valur er hinn vænsti maður. 

Anna Einarsdóttir, 11.1.2010 kl. 16:10

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég tilheyri ekki þeim hópi, Anna; Snæfellingar tala aldrei illa um fólk, hvernig sem á því stendur.

En Björn Valur er búrtík, ég fer ekki ofan af því.

Jóhannes Ragnarsson, 11.1.2010 kl. 17:40

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þá ert þú dvergur.  Ég fer ekki ofan af því. 

Anna Einarsdóttir, 11.1.2010 kl. 17:45

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Fyrst minnst er á dverga, þá minnist ég þess að til er íþrótt sem heitir dvergakast og er sögð vera ákaflega skemmtileg. Sérstaklega er víst spennandi þegar keppt er um, hver geti kastað andlegum dvergum lengst.

Jóhannes Ragnarsson, 11.1.2010 kl. 18:12

10 Smámynd: Brattur

Mér þykir það leitt, kæri Jóhannes, að þú skulir kalla menn sem þú þekkir ekki neitt búrtíkur... ættum við ekki stundum að staldra við og spá í það að þetta fólk sem stendur í pólitíkinni, er bara venjulegt fólk sem á fjölskyldur, maka, börn, ættingja... sem svo les það sem við skrifum um það... eins og Anna segir, þá er Björn Valur ljúfmenni hið mesta og fjári skemmtilegur það að auki

Brattur, 11.1.2010 kl. 19:39

11 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það vill þannig til, Brattur, að ég tók þátt í, á sínum tíma, að stofna Vinstrihreyfinguna grænt framboð og tel mig því þekkja nokkuð til persóna og leikenda á þeim bæ. Það má vera að Björn Valur sé ljúfmenni, en það breytir engu þeirri staðreynd, að framganga hans innan þingflokksins bendir því miður ekki til sérstakrar háttvísi af hans hálfu. Og eins og yfirlýsingar hans undanfarið bera með sér, þá hagar hann sér eins og búrtík sem geltir þegar húsbændur hans segja honum að gelta. Björn Valur hefur valið sér það ömurlega hlutskipti að ganga erinda Svavars Gestssonar, Álfheiðar Ingadóttur og Steingríms J. Sigfússonar innan VG. Verði honum að góðu. En vinnubrögð hans og húsbænda hans gagnvart  hluta þingflokks VG (tæpum helmingi þingflokksins) kunna að draga alvarlegan dilk á eftir sér.  

Jóhannes Ragnarsson, 11.1.2010 kl. 20:27

12 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Björn Valur er búrtík og ekkert annað.Haltu áfram þínum skrifum óbreyttum.

Aldrei hef ég séð þig uppnefna nokkurn mann.

Sveinn Elías Hansson, 11.1.2010 kl. 20:36

13 Smámynd: Brattur

Þú þekkir Björn Val sem sagt persónulega vel, Jóhannes ?

Ég þekki hann líka mjög vel og veit að hann er að vinna samkvæmt sinni bestu sannfæringu og samkvæmt því sem hann telur þjóðinni fyrir bestu... meira er ekki hægt að biðja um, er það ?

Annars er þú mjög skemmtilegur penni Jóhannes og gaman að lesa margt eftir þig þó ég sé ekki sáttur við þennan pistil.

Brattur, 11.1.2010 kl. 20:56

14 identicon

Er hann að vinna eftir bestu sannfæringu?  Þá er hann nú meiri vinstri maðurinn, hefur tekið þá stefnu ásamt liðsfélögum sínum og samfylkingarliðinu að gera Ísland að einni allsherjar verksmiðju þar sem gömlu nýlenduþjóðirnar í Evrópu geta keypt vörurnar okkar á slikk. "Nýlenduhugsunarhátturinn" hefur ekkert breyst hjá þessum þjóðum.

Síðan kalla þessir menn sig Evrópusambandsandstæðinga, það er nú meira enda eru þeir að létta Íslandi að ganga inn. Og í leiðinni gera auðlindir okkar að sameign Evrópu.

Ég er farinn að þekkja þokkalega til Björns, af umtali. Þeir sem vinna í kringum hann taka fyllilega undir að hann ásamt Árna Þór hafa það hlutverk innan þingflokks Vg að vera búrtíkur. Og engar venjulegar búrtíkur! Heldur hlaupa þessir fáránlingar út um allt geltandi, urrandi og bítandi alla þá sem ekki eru sammála þeim. Þetta eru staðreyndir!

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 09:27

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ágúst.

Þú segist vera farinn að þekkja þokkalega til Björns, af umtali !

Ég þekki þig mjög vel, af skrifum þínum.  Þú ert kjaftakerling.  Það er staðreynd, því miður.

Anna Einarsdóttir, 12.1.2010 kl. 09:59

16 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekki þekki ég Björn Val persónulega, en ég þekki til hans og þá einkum eftir að hann kjörinn á Alþingi síðastliðið vor. Eins og ég hef áður sagt, þekki ég vel til innan VG og er í góðu sambandi við fólk þar allt inní innsta hring flokksins og veit því nokk hvernig menn hafa hagað sér síðustu mánuði innan þingflokksins.

Með öðrum orðum: Ég þekki mitt heimafólk. 

Jóhannes Ragnarsson, 12.1.2010 kl. 18:47

17 identicon

Rökstuðning Anna, takk fyrir.

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 20:01

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Ertu ekki að grínast ?  Ég er bara að apa eftir þér.  Lestu þá kommentið þitt bara aftur.

Anna Einarsdóttir, 12.1.2010 kl. 20:06

19 identicon

Þegar talað er um umtal þá væntanlega hef ég það eftir einhverjum. Það er staðreynd að þeir Árni Þór Sigurðsson, Björn Valur, Álfheiður Ingadóttir og Steingrímur hafi stundað það að taka fólk á beinið ef það var ekki alveg sammála því. Það er líka staðreynd að þetta sama fólk lagði einfaldlega samstarfsfólk sitt í þingflokknum í einelti. 

Já og það er líka staðreynd að það var meirihluti á þingi að fella icesave en bíddu bíddu, afhverju var það þá samþykkt? Það er staðreynd að fjórmenningarnir, andstæðingar icesave voru hótað og kúgaðir til samþykkis. Hvað var notað til að kúga þau? Þau myndu fella ríkisstjórnina. 

Eigum við að tala um ESB? Þar var sama upp á teningnum, það er staðreynd. Órólegi krakkinn Ásmundur Einar Daðason var sagt að hann myndi fella ríkisstjórnina myndi hann fara eftir hugsjónum sínum, Guðfríður Lilja þorði ekki öðru en að sitja hjá, enda myndi hún fella ríkisstjórnina og sama er með Ögmund. Þuríður Bachman greiddi atkvæði gegn öllum tillögum, líka um þjóðaratkvæðagreiðslu. Afhverju? Hún myndi fella ríkisstjórnina. Allt staðreyndir.

Svona hefur þetta verið í rúmlega hálft ár, Árni Þór og Björn Valur hafa svo verið geltandi og glefsandi framan í hvern þann sem er ekki sammála Steingrími formanni og hans lærdómsföður; Svavari Gestssyni. Einnig staðreynd.

p.s. Svavar Gestsson væri hægt að gera doktorsritgerð í sálfræði um. Svo lyginn og óheiðarlegur er þetta kvikindi. Það er staðreynd.

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 08:47

20 Smámynd: Sigurður Helgason

Anna eitt núll fyrir þér

Sigurður Helgason, 13.1.2010 kl. 09:49

21 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Eitt núll mér í hag ?  Og leikurinn búinn.

Ég vann. 

P.s.  Ágúst.... umtal er ekki sama og staðreyndir.  Skoðaðu það.

Anna Einarsdóttir, 13.1.2010 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband