Leita í fréttum mbl.is

Ófyrirleitin hræsni auðvaldsdindla

Auðvaldssví 2Sú var tíðin að leppalúðar á borð við Vilhjálm Egilsson höfðu í flimtingum talsmáta á þá leið að ,,hæfilegt atvinnuleysi" væri blátt áfram nauðsynlegt og áttu þá við að atvinnuleysi væri fyrirtækjum og kapítalismanum almennt afar þénanlegur pískur á launafólk til að halda kjörum þess niðri. Þegar dindlar úr hrunaflokkaelítunni miðri koma núna með grátstafinn í kverkunum fram fyrir alþjóð og formæla atvinnuleysi er það ekki trúverðugur málflutningur heldur ófyrirleitin hræsni. Bág staða atvinnulífsins nú um stundir er atvinnurekendavaldinu, sem að mestu leiti er til heimilis í Sjálfstæðisflokknum, fyrst og fremst að kenna. Með fáheyrðri græðgi keyrðu þessi auðvaldsillyrmi þjóðina svo gott sem í þrot þannig að eftir stendur sviðin jörð hvert sem litið er.

Mætti ég biðja Vilhjálm Egilsson og hans nóta vinsamlegast að halda sér saman og fara á námskeið þar sem siðblindu fólki er kennt að læra að skammast sín.


mbl.is Atvinnuleysið ekki ásættanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Þú ert harðorður í garð Vilhjálms.  Sú var tíðin að ég hreinlega þoldi ekki þennan mann og ég man eftir þessu blaðri hans á sínum tíma um "hóflegt atvinnuleysi".  En hin síðari ár finnst mér Vilhjálmur hafa verið með allra skynsömustu sjálfstæðismönnum og ég er farinn að hlusta þegar hann talar en ég hlusta á afar fáa sjálfstæðismenn.   Til dæmis það sem hann segir hér finnst mér einfaldlega hárrétt, hann er réttilega að benda á að núverandi spár um hagvöxt séu óásættanlegar fyrir alla og það verður að blása meiri krafti í atvinnulífið.

Óskar, 14.2.2010 kl. 11:29

2 Smámynd: DanTh

Jóhannes, mikið er ég sammála þér.  Vilhjálmur er einungis nú að notafæra sér atvinnuleysið því félagar hans í atvinnurekstri eru verkefnalausir og því í álíka slæmum málum og jafnvel verri en við launþegarnir. 

Svo vil ég bara bæta hér inn að sjálfstæðismaðurinn Pétur Blöndal predikaði þau fræði fyrir ca. 10 árum að það þyrfti að viðhalda ca. 5-7% atvinnuleysi svo atvinnurekendur gætu ráðskast meir með vinnuaflið en ella. 

Pétur var líka talsmaður þess að hingað komu hátt í 30 þúsund manns á "góðæristímabilinu".  Þó ég benti honum á hvað það ógnaði framtíðaratvinnuhorfum okkar fólks, þá taldi hann það minna áhyggjuefni þar sem hann sagði blákalt að við værum of dýrt vinnuafl.  Atvinnurekendur græddu meir á innflutta ódýra vinnuaflinu. 

 Hvenær ætlar fólk að skilja að menn með svona hugarfar eru þjóðinni til tjóns.   

DanTh, 14.2.2010 kl. 11:33

3 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Stóra vandamálið núna er að Ríkisstjórnin er stefnulaus og enginn veit hvað þessir Ráðherrar eru sammála um að fara í. Það þarf að byrja strax og hefði þurft að gera fyrir ári síðan að virkja, virkja og virkja og skapa meiri tekjur og gjaldeyri. Það þarf að stækka kökuna en ekki éta hana innan frá.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 14.2.2010 kl. 11:54

4 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Er nú ekki blindi sjálfstæðisvirkjunarsinnin risin úr rekkju og farin að predíka um að það þurfi að virkja og virkja enn meir.

En ég bara spyr. Hvernig á að fjármagna þessar virkjanir, og hverjum ætlið þið sjálfstæðismenn núna að GEFA orkuna?

Gott væri ef þú svaraðir því Adda ÞorbjörgEn Viljhálmur er svona vindhani sem snýr í þá átt sem hentar hverju sinni hjá honum.

Sveinn Elías Hansson, 14.2.2010 kl. 12:26

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

"Mætti ég biðja Vilhjálm Egilsson og hans nóta vinsamlegast að halda sér saman og fara á námskeið þar sem siðblindu fólki er kennt að læra að skammast sín."

Jóhannes, hún er undarleg sú tilfinning þegar maður finnur sig vera sammála kommúnista.  Vil þó bæta því við að Gylfi nokkur Arnbjörnsson ætti að fara á sama námskeið og Vilhjálmur.

Magnús Sigurðsson, 14.2.2010 kl. 13:49

6 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Já Magnús rétt hjá þér með Þursinn Gylfa.

Hann þarf ekki bara að fara á námskeið, það þarf að steypa honum af stóli forseta Así, og kjósa þar mann til forystu sem hefur tengsl við hinn almenna launþega. Sá maður heitir AÐALSTEINN BALDURSSON og er formaður framsýnar. Hann hefur oft gagnrýnt valdaliðið innan Así, með litlum þökkum frá þursinum.

Sveinn Elías Hansson, 14.2.2010 kl. 13:59

7 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Sveinn, við þurfum að auka tekjurnar okkar hratt. Við eigum mikil verðmæti í orkunni okkar og enginn er hér að segja að við þurfum að gefa hana. Ég vil því óhikað viðurkenna að ég vil virkja og nýta þær lausnir sem við höfum tiltækar núna.

Við þurfum að klára þau álver sem eru komin með samþykktir og svo þurfum við líkt og Gísli Hjálmtýrsson segir að selja hana til annarskonar smærri orkuþurfandi atvinnusköpunar. Við þurfum líka að nýta okkur aðrar auðlindir en orkuna. Aðalatriðið er að ónýttar auðlindir skapa ekki tekjur og þær þurfum við núna strax ef við viljum halda mennta og heilbrigðiskerfinu í línu við vestræn lönd.

Þú spyrð hvernig við ætlum að greiða fyrir þær? Hvernig væri að við borgararnir stofnuðum fyrirtæki fyrir innlenda fjármagnseigendur og fjárfestum í virkjunum? Hitt er svo með erlendri fjármögnun sem greiðir sig upp á einhverjum árum eins og með allar stærri fjárfestingar.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 14.2.2010 kl. 14:04

8 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Hverjar eru hinar auðlindirnar fyrir utan orku og fisk?

Við borgararnir stofnuðum fyrirtæki fyrir innlenda fjármagnseigendur.Bíddu nú aðeins, eru þeir ekki búnir að gera nóg af sér, væri nú ekki betra að þeir greiddu eitthvað upp í skaðann sem þeir hafa valdið, eins og tildæmis glæpahundurinn Björgólfur Þór, sem endalaust tekur þjóðina í rassgatið.

Hvaða erlenda fjármögnun ert þú að tala um , ekki hefur mér sýnst að það bíði menn í röðum með dollarabúnt í vasanum til að fjárfesta hér.

Ætli þeir séu nú ekki frekar að bíða eftir því að fá hér eitthvað fyrir lítinn pening.

Það er alveg merkilegt hvað sjálfstæðismenn eru blindir á alla glæpina sem framdir hafa verið í skjóli þessa flokks, og halda að almenningur sé ekki kominn með svöðusár í rassgatið.

Sveinn Elías Hansson, 14.2.2010 kl. 14:42

9 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Auðlindir okkar fyrir utan vatn og fisk eru vatnið, hveraflóran, landslagið, mannauðurinn etc.

Þú misskilur eitthvað eðli hlutafélaga þegar ég kem með tillögu um að almenningur stofni hlutafélag þá eru sömu einstaklingarnir fjármagnseigendur þess. Þú getur orðið fjármagnseigandi, þeir eru ekki eingöngu "vont" fólk.

Það bíða aðilar í röðum með mögulegt fjármagn, það stendur á leyfum og stefnumótun. Þetta fólk sem ætlar að hætta peningum sínum og annarra vill vita fyrirfram hverjar framtíðar reglur verða hér á landi.

Sjálfstæðisflokkurinn er ekki blindur á glæpi og afglöp frá árinu 2006 og tekur ábyrgð á því sbr. rannsóknarskýrslu flokksins sem er á netinu. Þeir einir flokka rannsökuðu hvað hefði farið úrskeiðis hjá sér. Eins og allir sjá núna er ekki búið að gera það sama í Ríkisstjórnarflokkunum og fjármálaelítan er þar ennþá alltof sterk og aðhaldslaus. Hverjir eru að fá afskriftirnar í milljarða tali í dag? Eru það heimilin?

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 14.2.2010 kl. 19:07

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Er það góð latína að Sjálfstæðisflokkurinn ,,rannsaki" sjálfan sig?

Og hvað kom útúr þeirri ,,rannsókn", með leyfi, Adda Þorbjörg? Ég fæ ekki betur séð en flestir úr gamla settinu sé enn á róli í sölum Alþingis, svo dæmi sé tekið. Og af hverju náði umrædd ,,rannsókn" ekki lengra aftur en til 2006?

Jóhannes Ragnarsson, 14.2.2010 kl. 19:28

11 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Auðlindirnar eru segirðu landslagið, er ekki nú þegar allt vaðandi í ferðamönnum?Hveraflóran, er ekki verið að reisa virkjanir út um allt á hverasvæðum,hverir eru nú ekkert séríslenskt fyrirbæri.Mannauðurinn. ég vona að þú sért ekki að tala um alla lögfræðinga,fjármála,viðskipta og hagfræðingastóðið sem setti hér allt á hausinn,sér er nú hver mannauðurinn í því liði.

Hvaða aðilar bíða í röðum með seðlabúntin til að fjárfesta?Eru þeir ekki frekar að bíða eftir hrunaútsölunni?

Sjálfstæðisflokkurinn rannsakaði sjálfan sig. Þetta er einhver besti brandari sem ég hef heyrt á öldinni, og þeir rannsökuðu sjálfan sig aftur til 2006, af hverju ekki til 1991, þegar hrunameistarinn komst til valda í boði samspillingarmannsins Jóns Baldvin,

Rannsökuðuþeir kúlulán til 7 hægri, eða , setu Illuga í sjóði 9, eða viðskipti Bjarna með vafningana sína.Hvað með nýjustu afrek sjálfstæðismannanna Ásbjörns Óttarssonar eða Tryggva Herbertssonar, hefur það verið skoðað?

Að einhver skuli rannsaka sjálfan sig er eins og að troða gaddavír ofan í mann gegnum meltingarveginn og út um neðra opið, og spyrja síðan var þetta ekki gott, á ég að gera þetta aftur.

Hvernig væri nú að sjálfstæðismenn færu nú að ranka úr rotinu og taka til hjá sér?

Sveinn Elías Hansson, 14.2.2010 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband