Leita í fréttum mbl.is

Rís ekki lengur hold

gitar2.jpgHelvítis ódámur má kallfjandinn Ron Wood vera að leggjast með fyrrverandi kærustu sinni. Þannig lagað gera aðeins hundar og kettir, ekki manneskjur. Og kvenmaðurinn að hlaupa úr buxunum fyrir náunga sem lítur út eins og ofþornuð skreið og er þar að auki ofurölvi alla daga! - Jésús minn góður Guð! Sagt er að Ronnie karl sé svo trénaður og illa fram genginn á miðvígstöðvunum að honum rísi ekki lengur hold; eða öllu heldur: holdið sem á að rísa við vissar aðstæður sé ekki til staðar lengur, dáið, horfið, gufað upp. Til hvers kvensniptin Ivanova var hleypa þessari afturgöngu uppí rúm til sín er í raun og veru óskiljanlegt nema henni þyki þægilegt að hafa illalyktandi drumba undir sæng hjá sér. Ef svo er, er hún algerlega pervert.

Ég vona að karlhelvítinu detti ekki í hug að sækja um vist á Dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík.


mbl.is Svaf hjá sinni fyrrverandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Heldur þú að hann fengi inngöngu?

Sveinn Elías Hansson, 14.2.2010 kl. 16:31

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég er ansi hræddur um það já, - að hann fái inngöngu.

Jóhannes Ragnarsson, 14.2.2010 kl. 16:33

3 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Kerlingar sem vilja vera með þessu gerpi, gera það ekki af ást til hans

Ætli það hafi eitthvað með peninga að gera?

Sveinn Elías Hansson, 14.2.2010 kl. 16:40

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ef þessi greiðasemi við karlinn hefur með pééénínga að gera, erum við að tala um vændi. Þá er óhætt að fara að biðja manninn sem er fyrir ofan hann Björn í Brekkukoti að hjálpa konugarminum.

Jóhannes Ragnarsson, 14.2.2010 kl. 18:15

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þið eruð nú meiri bjánarnir.  Það er greinilegt að þið þekkið ekki konur. Flestar hverjar halda að þær geti bjargað karlaumingjum svona eins og umræddu greppitrýni.

Strákar! Hvaðan eruð þið? Er ekki allt í lagi heima hjá ykkur?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.2.2010 kl. 14:32

6 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Ingibjörg.

Bjarga honum frá hverju?

Hvað sjá konur við þetta greppitrýni nema fullt veski af peningum?

Sveinn Elías Hansson, 15.2.2010 kl. 16:11

7 Smámynd: Egill

nú ... bjarga honum frá of miklu fé.

eða sjá til þess að auðæfi hans fari ekki til einhverra hjálparstofnanna þegar hann loksins lætur lífið.

hvað annað :p

Egill, 15.2.2010 kl. 19:49

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Sveinn Elías!  Við konur erum alltaf að bjarga körlum frá sjálfum sér.  Hugsaðu þér hvað við höfum gert margan auman manninn að sæmilegustu manneskjum.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.2.2010 kl. 21:44

9 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Já. Hvar finn ég svona konu???

Er einhver á lausu?

Sveinn Elías Hansson, 15.2.2010 kl. 22:20

10 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

...„án kvenna væru karlmennirnir kannski ekki til"...

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 15.2.2010 kl. 23:53

11 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Og konurnar þá ekki heldur, því karlinn kom fyrst!!!!!!!!!

Sveinn Elías Hansson, 16.2.2010 kl. 00:18

12 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ósköp er að horfa á þetta umræðuefni fara svona úr böndunum og.....og .....allt það. Minnir mig á vísuna eftir ég man ekki hvaða Þingeying. Mér dettur í hug að umræddur karl sé búinn að snara henni upp á ensku ogbúi sig undir að syngja hana á næstu tónleikum.

Árin þau líða, ekkert má því varna,

ellin hún nartar skarð í lífsins kjarna.

Hvað svo með þann sem hættur er að harðna?

Helvítis bölvaður ræfillinn sá arna.

Árni Gunnarsson, 16.2.2010 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband