Leita í fréttum mbl.is

Allsherjar svartnættisblakkát í Framsóknarfjósinu

GlæpamennÞeir gerast nú gamlaðir og kalkaðir úr hófi fram um þessar mundir helstu ráðsmenn og húskarlar gömlu Framsóknarmaddömunnar. Kveður orðið svo rammt að þessum krankleik nefndra heiðursmanna að þeir muna ekki einusinni sína mestu dýrðardaga, þegar þeir kveiktu elda að mesta góðæri gjörvallrar íslandssögunnar, fyrir og eftir aldamótin 2000. Það er eins og fortíðin sé hulin þykkri þoku, svo hvergi sér á kennileiti, hjá þessum körlum, og í sumum tilfellum er ekki annað að sjá en eitt allsherjar svartnættisblakkát ráði ríkjum þegar kemur að góðærinu mikla, einkavæðingunni, gjafakvótanum og ,,sölunni" á ríkisbönkunum.

Já, það er dapurt um að litast í Framsóknarfjósinu nú um stundir: Maddaman dauð, Halldór og Finnur flúnir útí minnisleysið ásamt griðkonunni Valgerði. Í stað þeirra hanga hálfholdgaðar og hálffiðraðar strengjabrúður yfir fjóshaugnum, sem stjórnað er af hinum minnislausu, kaupfélagsstjóranum í Skagafirði og Ólafi útvegsbónda á Miðhrauni. Og í nótt mun önnur súparstjarnan úr framsóknarbankanum Kaupþingi hvíla lúin bein á Litla-Hrauni.

 


mbl.is Kannast ekki við handstýringu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nostradamus

mæl þú manna heilastur.. og btw ein hnyttnasta og best orðaða bloggfærsla þessa árs, það er ég sannfærður um!!

Nostradamus, 8.5.2010 kl. 01:49

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Takk fyrir, Nostradamus.

Jóhannes Ragnarsson, 8.5.2010 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband