Leita í fréttum mbl.is

Þekkið ykkar vitjunartíma - stundin er runnin upp

xv8Á meðan alþýðan mótmælti við Seðlabankann í hádeginu, stóð Steingrímur nokkur J. Sigfússon eins og vofa við gluggann á efstu hæð fjármálaráðuneytisins, Hafnarhváli, og fylgdist með. Sennilega hefur hann verið stjarfur af hræðslu því þegar nokkrir mótmælendur veifuðu til hans í kveðjuskyni hreyfði hann hvorki legg né lið, hvað þá hann veifaði á móti  eða færi útá strætið til móts við alþýðuna sem var að mótmæla, eins og góðum sósíalistaforingja sæmdi.

En, neiónei, Steingrímur formaður VG lét sér nægja að standa freðin af skelfingu við glugga á efstu hæð fjármálaráðuneytisins og stara á alþýðuna mótmæla aðförum hins kapítalíska kerfis, þar til hann leystist upp með eldglæringum og neistaflugi eins og illa þokkaðir draugar gerðu fyrr á öldum þegar þeir mættu augum réttlætisins.

En þó skömm framsóknarmannsins í sósíalísku felulitunum sé mikil, þá verða þeir sem eru raunverulegir sósíalistar að þekkja sinn vitjunartíma. Efist þið enn um að stundin sé runnin upp Ögmundur Jónasson, Lilja Mósesdóttir, Guðfríður Lilja, Ásmundur Einar og Jón Bjarnason? Varla er ykkar pólitíska erindi ekki meira en að verja eina kapítalíska ríkisstjórn falli?, eða fresta því að stjórnmálaflokkur, sem byggður var uppá fölskum forsendum þegar allt kemur til alls, klofni formlega? Er ekki best að sorgarsögu og dauðastríði Vinstrhreyfingarinnar græns framboðs ljúki sem fyrst? Jörðin heldur áfram að snúast þó Steingrímur, Álfheiður, Katrín og Svandís missi ráðherrastóla undan rössum sínum.

Við verðum að þekkja okkar vitjunartíma - eða hvað.


mbl.is Æsir upp í manni réttlætiskenndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því í fjandanum var ekki tækifærið notað til að krefjast leiðréttingar fyrir ÖLL lán almennings bæði gengis- og verðtryggð lán við dóm Hæstaréttar? Ástæðan er reyndar einföld, það fór af stað lottóæði þeirra sem eru með gengistryggðu lánin og fara þeir nú fram með offorsi til að ná ekki bara fram vísitölulausum lánakjörum, heldur til að fá nánast allt niðurfellt og inneign í þokkabót. Þetta mun gera það að verkum að ALDREI mun verða farið í neina leiðréttingu á öðrum lánum. (Tek það fram að ég sjálfur kem til með að hagnast mjög vel ef dómur Hæstaréttar fær að standa, ég hins vegar kæri mig ekki um að fá þennan gróða á kostnað þess að ekki verði farið í leiðréttingu á verðtryggðum lánum). Ég vill leiðréttingu á ÖLLUM lánum, ekki bara gengistryggðum. Sorglegt að ekki skuli nást samstaða í þeirri kröfu vegna græðgi.

Valsól (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 20:30

2 Smámynd: Elínborg

Sæll Jóhannes.

Jam,

og Lilja Mósesdóttir kallar hlutina réttum nöfnum. "Skuggastjórn" segir allt sem segja þarf um skefjalaust  fjármálaofbeldið!

Tími réttlætisins er kominn!

Elínborg, 5.7.2010 kl. 22:03

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Takk nú er stundin að renna upp við erum búin að fá nóg!

Sigurður Haraldsson, 5.7.2010 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband