Leita í fréttum mbl.is

Merðinum sést yfir eitt

alf2Mörðurinn veit sko hvað hann syngur þegar lygar og sannleikur eru annarsvegar. Alltaf veit hann uppá hár hvenær maður lýgur og hvenær maður segir satt; þetta er eins og yfirnáttúrlegt skilningarvit í höfðinu á honum. Það eina sem Mörðurinn hefur klikkað á varðandi þetta málefni er sú alkunna staðreynd, að Samfylkingin er ein illa lyktandi og löðrandi lygakássa frá upphafi til enda. Hversvegna hinn gáfum hlaðni Mörður hefur ekki áttað sig á svo auðsjánlegu atrið er hreint og beint rannsóknarefni fyrir sálfræðinga og jafnvel geðlækna. En eitt er víst: Mörðurinn er í vondum félagsskap þar sem Samfylkingin er.

Samfylkingin verður ekki sönn fyrr en hún lýsir því skýrt og skorinort yfir með landsfundarsamþykkt að hún sé andstyggilegu hægriflokkur og sem slíkur ekkert skárri en samtökin illræmdu sem kenna sig við framsókn og sjálfstæði.


mbl.is Fráleitt að Gylfi hafi logið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Jörunds Jónsson

Alltaf gott að kíkja hér í heimsókn. Ég fer ávallt héðan með bros á vör. Ekki alltaf samþykkur, en ávallt brosandi.

Húmor að mínu skapi

Jakob Jörunds Jónsson, 15.8.2010 kl. 10:56

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Nema að hér sé um hinn svokallaða Lyga Mörð að ræða.

Magnús Sigurðsson, 15.8.2010 kl. 11:54

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Abb-babb-babb, talið varlega um Lyga-Merði, piltar mínir.

Jóhannes Ragnarsson, 15.8.2010 kl. 13:06

4 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Merðinum yfirsést eitt....

Það að honum yfirsést yfirleitt!

Óskar Guðmundsson, 15.8.2010 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband