Leita í fréttum mbl.is

Rangt, Saari minn, rangt. VG vill ekki losna við Lilju.

flokkseigendur_786424.jpgÞað er heldur langt seilst hjá Þór Saari að fullyrða að VG vilji losna við Lilju Mósesdóttur. Hið rétta er að  það er einungis hið hægrisinnaða flokkseigendafélag VG, ásamt búrtíkum og dekurdýrum þess, sem vilja losna við Lilju. Almennir flokksfélagar og kjósendur VG standa með Lilju.

Og umrætt flokkseigendafélag og vesalingar þess vilja losna við fleiri úr VG en Lilju Mósesdóttur. Ögmundur Jónasson, Jón Bjarnason, Guðfríður Lilja, Atli Gísla og Ásmundur Einar eru líka á dauðalistanum hjá flokkseigendafélagi Steingríms, Álfheiðar piff og Svavarsfjölskyldunnar. Sömuleiðis er fjöldinn allur af óbreyttum flokksfélögum á dauðalistanum hjá elítunni.

Þannig er nú það.

Í stöðunni eru aðeins tveir leikir: Að hið hægrisinnaða klofningslið með Steingrím J. í fararbroddi hverfi á braut, eða að vinstri armurinn segi skilið við klofningsliðið og flokksræningjana og stofni ný stjórnmálasamtök. Hin nýju samtök gætu sem best borið nafnið ,,Alþýðufylkingin.

2


mbl.is „VG gera allt til að losna við Lilju“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ Samfylkingin er búin að setja svo vondan blett á orðið fylking, að betra væri að nota eitthvað annað. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.12.2010 kl. 09:58

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Margt til í því Ásthildur.

Það væri líka hægt að láta ný samtök heita ,,Alþýðuhreyfingin" eða ,,Samtök Alþýðu."

Alþýðu Íslands sárvantar stjórnmálasamtök sem eru í raun og sann hennar samtök.

Jóhannes Ragnarsson, 22.12.2010 kl. 10:08

3 Smámynd: Axel Guðmundsson

Á nú að fara að minna okkur á Alþýðuflokkinn sáluga? Oj barasta!!

Axel Guðmundsson, 22.12.2010 kl. 10:19

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Hvað með Almúgahreyfing öreiga?

Axel Þór Kolbeinsson, 22.12.2010 kl. 10:31

5 Smámynd: Óskar Guðmundsson

"Virkur" væri besta nafnið því þau eru í raun eini flokkurinn sem það er á hinu "aðlaða" Áfen... Alþingi! 

Óskar Guðmundsson, 22.12.2010 kl. 10:38

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég tek undir, að Alþýðuflokkurinn kom óorði á orðið ,,alþýða." En það breytir engu með það að alþýða manna þarf að koma sér upp róttækum baráttusamsökum.

Jóhannes Ragnarsson, 22.12.2010 kl. 11:26

7 Smámynd: Christer Magnusson

Á dauðalistanum hjá elítunni ... búrtíkur og dekurdýr... Þetta orðaval Jóhannesar segir ýmislegt um hvernig hann hugsar.

Endilega stofnið þið nýtt Alþýðubandalag. Þar verða engar búrtíkur, bara stálhart baráttufólk. Lilja M kemur líklega ekki með þangað, hún er Kvennalistakona. Fleiri konur í stjórn fyrirtæka auðvaldsins er hennar baráttumál. Passið vel upp á hverjir vilja gerast félagar. Margir í VG eru held ég frekar grænir en vinstri, náttúran skiptir meira máli en atvinna og velferð.

Christer Magnusson, 22.12.2010 kl. 12:13

8 Smámynd: Páll Blöndal

Vinstri grænir komu óorði á allt "vinstrið" eins og það leggur sig, og allt sem "grænt" er. [meira að segja framsóknarflokkinn].

Ég legg því til að VG taki upp meira lýsandi heiti:
t.d
S
amtök Stjórnarandstæðinga
"SS"


Páll Blöndal, 22.12.2010 kl. 12:42

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þegi þú, Páll Blöndal, sem leyfir ekki athugasemdir á blogginu þínu.

Jóhannes Ragnarsson, 22.12.2010 kl. 12:55

10 Smámynd: Páll Blöndal

Jóhannes, víst leyfi ég athugasemdir.
Nema þegar ég hef ekki tíma til að spjalla.

... en líst þér illa á hugmynd mína?

ég var bara að reyna að vera hjálplegur.

SS var það kúturinn.

Páll Blöndal, 22.12.2010 kl. 19:37

11 identicon

Sæll Jóhannes! Í þessu bloggi setur þú fram fullyrðingar sem þú getur augljóslega ekki staðið við. Hvernig getur þú einn vitað að almennir flokksfélagar og kjósendur standi með Lilju? Ég renni blint í sjóinn en myndi giska á að stuðningur við þremenninganna sé á bilinu 20 til 25%. VG er ekki stalíniskur flokkur. Það er ekki til nein lítil elíta sem öllu stjórnar. Það er einfaldlega tímaskekkja að tala um hreinsanir og dauðalista. það hefur alltaf verið ljóst að það er djúpstæður ágreiningur í mikilvægum málum. Í stöðunni eru mun fleiri leikir en tveir.Einn er að þingflokkurinn ræði málin ítarlega og málefnalega í janúar. Menn virðast ætla að gera það.Í skák verða menn að hugsa marga leiki fram í tímann. Í stjórnmálum er það einnig svo. Það er engan veginn tímabært að velta fyrir sér nöfnum á flokkum framtíðarinnar.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 21:29

12 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ja, þú segir fréttirnar, Hrafn Arnarson. Hvernig er það augljóst að ég geti ekki staðið við að almennir flokksmenn og kjósendur standi með Lílju Mósesdóttur?

Það vill nú þannig til að ég þekki ágætlega til innan VG og veit að þar er flokkseigendafélag, elíta, sem veltir ekki mikið fyrir sér hvort hreinsanir og dauðalistar séu tímaskekkja eða ekki.

Niðurstaðan úr pólitík sem hugsuð er í leikjum fram í tímann út frá því að einhver andstæðingur er í spilinu er að minni hyggju fyrst og fremst óhreinleki og óheiðarleiki. Satt að segja gef ég lítið fyrir þessháttar leikaraskap.

Jóhannes Ragnarsson, 22.12.2010 kl. 21:59

13 identicon

Sæll,

ég efast ekkert um að þú þekkir vel til innviða VG. Í alþingiskosningum 2009 fengu VG um 41000 atkvæði. Það er mikill fjöldi. Í VG starfa rúmlega 30 flokksfélög um allt land. Á landsfundi mæta 500 fulltrúar. Kjósendur og mögulegir kjósendur VG nálgast 45000. Nú stend ég utan við flokkinn en miðað við hvernig fólk tjáir sig í fjölmiðlum eða á opinberum vettvangi eru skoðanir um afstöðu þremenningana mjög skiptar. Á þessu byggði ég ágiskun mína. Þeir sem eru djúpvitrir og framsýnir í stjórnmálum sjá marga leiki fram í tímann. Gleðileg jól.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 23.12.2010 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband