Leita í fréttum mbl.is

Konuþjófurinn sem typpisbrotnaði í framandi húsi

fall_1050199.jpgDjöfuls ófriður er þetta einlægt af þessum endemis frjálshyggjuungum. Fólk getur ekki einusinni farið í sumarleyfi eða haldið uppá jól og áramót öðruvísi en að eiga á hættu að alskyns rumpulið, frjálshyggjumenn, heimdellingar, eða hvað það heitir þetta dót, sé komið á vettvang með kúbein og haglabyssur til ræna heimili þess.

Ég held ég muni eftir bölvuðum frjálshyggjukratanum sem braust inn hjá kunningja mínum um hánótt en varð svo dauðhræddur þegar hann sá heimilisköttinn koma á móti sér að hann stökk gegnum rúðu í stofunni og kom niður á hjólbörur, sem stóðu fyrir neðan gluggann, og rifbeinsbrotnaði.

Þá minnist ég með gleði konuþjófsins sem datt niður tröppur í niðamyrkri í framandi húsi og typpisbrotnaði. Sá góði maður fékk sem maður segir makleg málagjöld fyrir afbrot sitt.


mbl.is Enn berast tilkynningar um þjófnaði og innbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já eska, svo kom kallinn heim eska þegar ég var á Arnarnesinu hjá fínu frúnni eska...

Níels A. Ársælsson., 26.12.2010 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband