Leita í fréttum mbl.is

Eigum við ekki að afnema svona hugsunarhátt?

hitlerbush3Þessi Siv Jensen, formaður norska Framfaraflokksins, er greinilega mjög heimsk manneskja eftir ógeðfeldum kjaftavaðli hennar að dæma í meðfylgjandi frétt. Munnsöfnuður hennar um islam og islamista minnir enda mjög á málflutning Hitlers og hans kompána um Gyðinga í Þýskalandi á sínum tíma og skilar nákvæmlega engu öðru en auknu hatri og mannvonsku, en allir með bein í nefinu og vott af skynsemi vita fullvel hver uppskeran af hatri og mannvonsku er. Ennfremur að kúgun og misrétti í krafti auðs og herafla og valda er rótin að styrjöldum og ýmsum voðaverkum.

Væri ekki alveg ágætt að fólk færi að venja sig á að hugsa dvalarstað okkar, jörðina, án landamæra, án trúarbragða, án herja, án hernaðar og styrjalda, án séreigarréttar, án kapítalisma, án græðgi, án hungurs og án manngerðra hamfara? Ef við gjörbreytum ekki hugsunarhætti okkar og breytni í þá átt sem stungið er uppá í setningunni hér á undan verður nákvæmlega engin framþróun, sem vert er að kalla því nafni, í mannheimum.

 


mbl.is Múslimar ógna enn Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mofi

Gjörbreyttum okkar hugsanahætti í hugsanagang eins og þinn sem hikar ekki við að kalla aðra manneskju mjög heimska.

Hún upplifir ógn af Islam og ekki nema von þegar maður skoðar sögu Islams og hvernig er í löndum þar sem Islam hefur náð yfirhöndinni. Hvað ef hún er að vara við nasisma hennar tíma? Hefur þú hugsað út í að það gæti verið valmöguleiki?

Mofi, 2.8.2011 kl. 18:17

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, ég hika ekki við að kalla þessa konu mjög heimska, ef rétt er eftir henni haft í fréttinni á mbl.is. Lágkúra og fábjánaháttur villa ekki á sér heimildir.

Það varar enginn við rasisma og nasisma með rasisma og nasisma, - nema e.t.v. blábjánar.

En værirðu samt etti til í að leggja öll trúarbrögð til hliðar.

Jóhannes Ragnarsson, 2.8.2011 kl. 19:40

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Jóhannes..þesi kona er ekki heimsk,okkur stafar veruleg hætta af Islam=Múslimum og við getum ekki kallað þessa Múslima annað  en Glæpalýð og við megum ekki fá þetta lið inn í Landið okkar og ef þeir fara að vaða hér uppi verðum við að þagga niður í þeim tafarlaust.þeir vilja útríma Kristnu Fólki  það er þeirra markmið...Nei Siv Jensen er mjög vel gefin kona...

Vilhjálmur Stefánsson, 2.8.2011 kl. 23:25

4 Smámynd: el-Toro

öfgastefnur islamista, þær sem stundum leiða til hryðjuverka eru vissilega áhyggjuefni um allan heim.  en leiðin til að sporna við þeirri öfgastefnu er ekki að úthúða heilu trúarbrögðunum og kynþáttum fyrir verk fárra.  slíkt kallast á góðri íslensku rasismi, vanþekking og jafnvel heimska.  meira að segja bin laden vildi aldrei drepa alla kristna menn.  hann hafði óbeit á valdníðslu bandaríkjanna í þeirra löndum, alveg eins og hryðjuverkamenn um allan heim gerðu og gera enn þann dag í dag. 

eina leiðin til að draga úr, og smátt og smátt minka áhrif klerkana sem spýja þessu islamista eitri yfir börn sín og þeirra sem hafa misst foreldra sína fyrir vestrænni byssukúlu.  er að byggja upp innvið landanna þarna sem við erum að berjast.  innviðir samfélags í löndum múslima eru þeir sömu og okkar sem eru kristin og búum við gnæð auðæfa.  menntun, öryggi, vinna, samgöngur og samskipti fólks og svo að fólk geti lifað af vinnu sinni.

sama þarf auðvitað að tryggja í þeim löndum sem bíður þessu fólki til síns heimalands.  en auðvitað verða alltaf svartir sauðir alveg eins og hjá okkur kristnu fólki.

el-Toro, 3.8.2011 kl. 01:13

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þó að Siv þessi Jensen sé e.t.v. greind kona á einhvern mælikvarða þá er hún þrátt fyrir það mjög heimsk og og vel gefin getur hún varla talist miðað við fávíst hatursbullið í henni. Svona lið er illgresi mannfélagsins.

Auk þess legg ég til að Vilhjálmur Stefánsson lesi vel og vandlega það sem hann skrifar hér fyrir ofan til reyna átta sig á hveskonar dómsdagsvitleysu hann er að rembast við að halda fram. Nema hann sé einfaldlega að innlegg hans sé einhverskonar háðsádeila til að vekja athygli á fáránleika svona sjónarmiða. 

Jóhannes Ragnarsson, 3.8.2011 kl. 11:29

6 Smámynd: Mofi

Jóhannes, heldur þú að Islam snúist ekki um að sigra heiminn, láta alla lúta Allah, annað hvort með því að drepa þá eða breyta þeim í múslima?

Hefur þú eitthvað kynnt þér ástandið í löndum þar sem Islam er við völd?

Mofi, 3.8.2011 kl. 13:08

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

.

.

Mofi segir:

Gjörbreyttum okkar hugsanahætti í hugsanagang eins og þinn sem hikar ekki við að kalla aðra manneskju mjög heimska.

Mofa, finnst alvarlegt að nota orðið heimska í persónulýsingu. En honum finnst eðlilegt að saka aðrar manneskjur um morð og yfirgangsemi við útbreiðslu á sinni trú, nokkuð sem Mofa hefur örugglega aldrei til hugar komið að gera með sína trú og er fráleitt tilgangur hans bloggsíðu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2011 kl. 13:51

8 Smámynd: Mofi

Axel, hvað ef það er einfaldlega það sem trúin boðar? Hvað ef það er einfaldlega það sem stofnandi trúarinnar gerði og sagði sínum fylgjendum að gera líka?

Mofi, 3.8.2011 kl. 14:49

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Mofi, hvað er trú?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.8.2011 kl. 19:30

10 Smámynd: el-Toro

islam er trúarbragð alveg eins og kristni.  þetta sem Mofi boðar gerist ekki nema í huga hans.  enda eru trúarbrögð aðeins í hugum fólks.

el-Toro, 3.8.2011 kl. 19:33

11 Smámynd: Mofi

Axel, það sem menn telja að sé rétt en vita ekki. Má líka kalla það lífsskoðun, hvernig menn sjá og skilja heiminn.  Ég síðan spurði þig fyrst...

Mofi, 3.8.2011 kl. 19:42

12 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Jóannes, ég tók sérstaklega eftir því þegar þú telur upp allt það sem jörðin mætti ver án s.s. kapítalista, rasista, nasista, þá slepptirðu því að minnast á kommúnista. 

Magnús Sigurðsson, 3.8.2011 kl. 19:51

13 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, Magnús, kommúnismi á ekkert erindi inní þessa upptalningu. Ef þeir hlutir sem ég taldi upp myndu hverfa úr umferð færi heimurinn okkar að loksins að nálgast raunverulegan kommúnisma.

Jóhannes Ragnarsson, 3.8.2011 kl. 20:16

14 Smámynd: Mofi

Bara það versta sem mannkynið hefur orðið vitni að... á ekkert erindi í upptalningu á því sem væri gott að losna við?

Mofi, 3.8.2011 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband