Leita í fréttum mbl.is

Það er vont að líta út eins og belja, verra er þó að líta út eins og viss kvenráðherra

xbFrá því frú Ingveldur vaknaði í morgun hefur henni liðið akkúrat eins og vesælli, illra hirtri og illa fóðraðri belju; eiginlega hefur henni liðið eins og einni af hinum svívirtu kúm í bölvuðu ekkisens Framsóknarfjósinu, en nautgripir þar á bæ hafa jafnan fengið að finna til tevatnsins af hálfu húskarla gömlu Framsóknarmaddömunnar. Og því miður hafa griðkvendin á sama bæ ekki verið beinlínis hliðhollar aumingja blessuðum skepnunum í þessu hryllilega óbótafjósi. En ekki meir um það - í bili.

En frú Ingveldur. Já. Frú Ingveldur og hennar líðan í dag. Það er semsé mergurinn málsins: Eftir að hafa látið vaða á súðum alla helgina, vaknaði frú Ingveldur sem sagt upp í morgun hefur henni liðið eins og belju. Og í þau örfáu skifti, sem henni hefur orðið á að líta í spegil, hefur hún séð fyrir sér heilhakkaða belju, mykjublandaða. Því afréð hún um hádegisbil, að mölbrjóta alla spegla í húsinu.

kol30_1223755.jpgEkki bætti úr skák fyrir frú Ingveldi þegar hún fann Brynjar Vondulykt vínandadauðan á búrgólfinu í hvítri skyrtu einni klæða og við hlið hans var andstyggilega íllþefjandi hrúga af einhverju sem ekki er rétt að nefna frekar.

Þegar frú Ingveldur rakst óforvandis á Brynjar Vondulykt í hinu kórrétta lágrétta ölæðisástandi, varð henni ójálfrátt á orði, að hún hefði mátt vita að hún væri að kaupa rottuna í sekknum þegar hún hleypti þessari endemisskepnu inn í gleðskapinn, síðastliðið föstudagseftirmiðdegi.

Afturámóti hafa Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og Máría Borgargagn verið týnd og tröllum gefin í allan dag og er mjög á reiki hvar þau kunna að vera niðurkomin. En ef frú Ingveldi myndi hugkvæmast að líta útí bílskúr fengi hún að sjá hvernig ódrepandi gleðipinnar fara að í algjöru berrassínustandi á mánudegi.

Að öllu samanlögðu er ljóst hve alvarlegt það er fyrir viðkvæmar kvensálir að finnast þær líta út fyrir að vera eins og beljur. En verra er þó þegar þessar brothættu sálir fá á tilfinninguna að þær séu nákvæmlega eins útlits og viss kvenráðherra í ríkisstjórn íslenska lýðveldisins.


mbl.is „Ég lít út eins og belja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband