Leita í fréttum mbl.is

Fyrirmynd útrásarbófanna

RæningiRonnie Briggs er tvímælalaust helsta fyrirmynd hinna andlegu krypplinga, sem kendir eru við útrás í péníngagéðvillu og kom íslensku þjóðinni eftirminnilega í koll haustið 2008. En þar eð aungvar járnbrautarlestir eru stafræktar hér á landi, brugðu íslenskir sporgöngumenn herra Briggs á það ráð, að ræna péníngastofnanir, fyrirtæki og einstaklinga ,,innanfrá" eins og það er kallað. Þetta var þjóðráð. Og ræningjunum tókst ránsskapurinn svo vel, að um skeið lifðu þeir eins þvílíku dýrðarlífi að annað eins hefur aldrei þekkst hér á landi. Auðvitað, eins og sönnum ræningjum sæmir, fluttu þeir óhemju af hinu þjófstolna góssi úr landi og liggja þar á því eins og ránfuglar á bráð sinni.

Núnú. Einhverjir af pörupiltunum hafa verið dæmdir og fangelsaðir fyrir glæpi sína og fyrir skemmstu voru nafntogaðir óþokkar, gjafaþegar flokkseigenda Framsóknarflokksins, dæmdir í margra ára fangelsi fyrir skemmtilega innspíruð viðskifti við einhvern Al-Thaini.

En því miður ganga margir af útrásarbófunum lausir; vaða sperrtir um víðan völl, rífandi kjaft og lifa í vellystingum. Það er sem sé af sem áður var, þegar menn voru hoggnir og hengdir fyrir að stela snærispottum í umkomuleysi sínu sárri fátækt.

Eins og gefur að skilja, eru allir útrásarvíkingarnir í miklu vinfengi við frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson og Brynjar Vondulykt og Óla Apakött, enda dregur það fólk, ef fólk skildi kalla, mikið dám hvert af öðru.

En nú er Ronnie Briggs dauður og farinn þangað sem köllum af hans tagi ber eftir dauðann. Og einhvern daginn kemur að því, að íslensku útrásarræningjarnir verða allir komir í vistina handan við gröf og dauða með Ronna karlinum. Í þeirri vist þýðir ekki par að ráða sér lögfræðinga, sem eru sérhæfðir í útúrsnúningum á lögum og reglum, því þar ríkir sá einn sem hefur með höndum að kvelja og pína fyrirlitlega glæpajúða og önnur ómenni, sem notuðu jarðvist sína til að arðræna og féfletta náungann.
mbl.is Ræninginn Ronnie Biggs látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtilegt blogg Jóhannes.

Ármann Birgisson (IP-tala skráð) 18.12.2013 kl. 10:00

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þakka þér fyrir, Ármann.

Jóhannes Ragnarsson, 18.12.2013 kl. 14:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband