Leita í fréttum mbl.is

Ekki skemmtanavönd kona

fool4Ef svo ólíklega vill til að Vigdís okkar hérna Hauksdóttir sé að segja það satt að henni hafi þókt áramótaskaupsendemið í gærkveldi skemmtilegt verður að segja að hún er þá ekki beint skemmtanavönd. En það ber samt að hafa í huga, að þróunin undanfarin ár hefur öll verið, því miður, á þann veg, allrahanda dauflegt holtaþokuþvæl er farið að þykja skemmtilegt, jafnvel fyndið. Það er ótrúlegt að Vigdís skuli hafa fallið í þann hlandstamp að finnast gnarrískt aulatuð skemmtilegt, og satt að segja trúi ég henni rétt mátulega.

Þá er ekki útúr kú að geta þess, að frú Ingveldur sýndi áramótaskaupinu vanþóknun sína með því að gyrða niðrum sig og míga á sjónvarpstækið með verið var að sýna ekkiskemmtunina sem þetta bölvað lúðaskaup var og er og verður. Og það var mikið klappað fyrir frú Ingveldi fyrir tiltækið.
mbl.is Vigdís: „Skaupið skemmtilegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband