Leita í fréttum mbl.is

Ungum dvergum er allra best

kol27.jpgHvurn fjárann er þessi Ármann að derra sig framan í háyfirborgarstjóra Kópavogs, Gunnar I. Birgisson? Svona glamur minnir óþyrmilega á grindhoraðan dverg með sultardropa á nefbroddinum, sem er að böglast við að rífa kjaft við ógurlegan risa, nokkurskonar King Kong, í sömu andrá og risinn stígur ofaná hann og drepur í honum eins og vindlingi.

Og hvurn sjálfan andskotann á dvergurinn við með því að kalla háyfirborgarstjórann og Gvöðríði Arnardóttur ,,skötuhjú"? Kann þessi furðufugl aungva mannasiði? Hvernig væri að góðgjarnir menn boðuðu drenginn á sinn fund og reyndu að kenna honum hvernig ber að haga orðum við fullorðið fólk?

Ég er svo öldungis hissa.

Nú er við hæfi að fara með gott vers eftir sálmaskáldið góða:

Ungum dvergum er allra best,
að elska Gunnar sinn herra;
klifra ekki uppá háan hest
og hætta sig að derra.
mbl.is Skipulögð atlaga „skötuhjúa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband