Leita í fréttum mbl.is

Meydómsmissir ofaní gjótu á Þingvöllum

kona2Þegar frú Ingveldur var spurð að því hvort Þingvöllur væri ekki einmitt ,,heitur reitur hamingjunnar", svaraði hún því til, að það mætti svosem Andskotinn vita, að minnstakosti hefði hún tapað meydómnum endur fyrir löngu ofaní gjótu á Þingvöllum eða einhvurjum öðrum ámóta ólánsstað. Þegar hún var innt eftir hver átt hefði í hlut með henni þá missir meydómsins varð að veruleika, sagði hún að það mætti Andskotinn líka vita, ekki hefði hún neina hugmynd um það; og karlmennið sem hlut átti að máli? Það væri líklega eitt af þessum gerpum sem til allrar hamingju hefði skolast niður í göturæsið fyrir langalöngu. -En það var vond lykt af helvítinu, það man ég vel, bætti frú Ingveldur við með fullkominn alvöruglampa í augunum.
mbl.is Heitur reitur hamingjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

:-)

Níels A. Ársælsson., 13.7.2014 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband