Leita í fréttum mbl.is

Á meðan Framsóknarfjósið brennur liggur gamla Maddaman elliær bak við sófa

xb4Óskaplega er mikið lán fyrir gömlu Framsóknarmaddömuna að vera orðin svo elliær að vita hvorki í þennan heim né annan svona rétt á meðan Framsóknarfjósið brennur. Það verður þriflegt um að litast á Framsóknarstöðum eftir að allt er brunnið til kaldra kola nema fjóshaugurinn og þeir sem þar búa.

Hann er náttúrulega vel úti að aka þessi varaþingmannsdula, sem rétt í þessu var gripinn fyrir skróp og strok úr Fjósi gömlu Maddömunnar. Fyrir það fyrsta virðist Þorsteini Magnússyni hafa yfisést, þegar hann gekk Framsóknarmaddömunni á hönd, að Framsóknarflokkurinn var stofnaður í kjölfar Tyrkjaránsins til að berjast gegn Múhámeð spámanni og hund-tyrkjum hans; ennfremur til að berjast gegn heimskommúnismanum, Karli Marx, Halldóri Laxness og Brynjólfi Bjarnasyni; en einkum þó til að berjast fyrir hönd og heimskunnar, græðginnar og kapítalismans. Allt þetta í fari Framsóknar hefir Þorsteini Magnússyni látið sem hann sæi ekki, og þykist koma af fjöllum þegar aðvífandi ofholdgaðar griðkonur úr Framsóknarfjósinu og bregða á brokk í heilagt stríð gegn múhámeðstrúarmönnum og öðrum hund-tyrkjum. Þorsteini þessum var nefnilega fyrir margt löngu ljóst, að félagið sem stendur að Framsóknarfjósinu og Framsóknarmaddömunni er nákvæmlega eins og Hamashreyfingin með öfugum formerkjum. Að þessi drengstauli skuli voga sér að halda fram opinberlega, að hann hafi haldið Framsóknarfjósið væri eingöngu skipað miðjusæknum og meinlausum guðslömbum og sunnudagaskólabörnum, er svo fáránlegt og ósvífið að það minnir á fátt annað súrríalískt málverk eftir moldfullan blábjána.
mbl.is Hættir í Framsókn vegna moskumáls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Þú ert alltaf með rétta útsýnið, standandi í miðjan kálfa í fjóshaugnum þínum, - með höfuðið niður.

Benedikt V. Warén, 17.7.2014 kl. 22:48

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nú ferður heldur en ekki frjálslega með staðreyndir, Benedikt, stingur sem maður segir fingri í rangan þumal. Hið sanna er, að eg stend ekki í miðjan kálfa í neinum ekkisens fjóshaugi, heldur uppi á háu fjalli og sé þaðan vítt um veröld alla. Þess utan á ég ekki neinn andsskotans fjóshaug ...

Jóhannes Ragnarsson, 18.7.2014 kl. 12:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband