Leita í fréttum mbl.is

Frjálshyggjudrengir dregnir á hárinu til síns heima

hangi5.jpgÞeir bera víða niður þessa dagana frjálshyggjudrengirnir og ekki allt sem siðlegar sem þeir aðhafast. Enda varla við öðru að búast, þar eð hugmyndafræði þeirra er ekki beinlínis densileg. Það þarf náttúrulega mikið glæpaeðli og skringilega siðferðisvitund, að leggja til atlögu við verslunina Pétursbúð við Ránargötu og brúka naglaspýtur og saurugar sprautunálar til að ógna verslunareigandanum og ræna hann.

En sem betur fer höfðu frjálshyggjuræningjarnir hárlubba á hausum sínum, sem lögregluþjónum tókst með harðfylgi að ná taki á. Drógu lögregluþjónarnir síðan dólgana á hárinu og skiluðu þeim uppí Valhöll, en þar hafast svona frjálshyggjugerpi við dags daglega og leggja á ráðin hvar sé nú best að bera niður næst þegar ræna skal. Uppi í Valhöll tóku eigendur frjálshyggjudrengjanna við þeim, skömmuðu lögregluþjónana með ruddalegum blótsyrðum og hótunum fyrir óþarfa afskiftasemi og pissuðu á þá að skinaði.
mbl.is Ræningjarnir komnir í leitirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband