Leita í fréttum mbl.is

Og kennir honum Gorgi litla drykkjusvall og kvennafar

drunk_1241246.jpgHann var vænn drengur hann Gorgur litli þegar hann var að alast upp í smekkbuxunum og líkur honum afa sínum. Þó er engum ofsögum sagt að litla skinnið gangi eins og herforingi; göngulag hans líkist í öllu göngulagi mjög ölvaðs herforingja, enda var Gorgur litli búinn að fá sér nokkrum staupum of mikið af Gordons gini þegar þessi mynd var tekin af honum. Hann var nefnilega nýkominn heim eftir að hafa fengið sér fullmikið neðaní því með honum Karli afa sínum. Hann Karl afi hefir með höndum, skal ég segja ukkur, að kenna honum Gorgi litla drykkjusvall og kvennafar.

Annars kvað vera óttalegt óstand á henni Katrínu hertogaynju. Það er best að tala sem minnst um það. Við skulum bara vona að Karl afi sé ekki innvinklaður í það óstand. En um daginn heyrði þónustufólkið hana syngja hástöfum þegar Karl var í heimsókn: ,,Og þó ég sé aungin andskotans díana / þá ætla ég samt að fara að fá mér íana".
mbl.is Georg gengur eins og herforingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband