Leita í fréttum mbl.is

Öllum fjandanum dettur þeim í hug að ljúga að fólki

fiskátJá sagt er limrupaurinn Kvintín Tárántínó hafi veitt svokallaðann máríulax uppúr vatnsfallinu Hvítá. Öllum fjandanum dettur þeim í hug að ljúga að fólki nú til dags. Hið rétta er, að fáeinir gárungar og götustrákar klæddu Kvinín dauðadrukkinn í vöðlur, en hann var alsber að neðan, tróðu hatti á hausinn á honum og drógu hann útað bæjarlæknum, settu ufsatitt í höndurnar á honum og tóku mynd af karlhólknum. Ufsatittinn kölluðu þeir ,,máríulax" af því að Máría nokkur Borgargagn var með í för, líka alsber að neðan, en hún hafði verið að leika sér að því að misnota karlangann rétt áður en gárungarnir og götustrákarnir snöruðu honum í vöðlurnar og  teymdann fram á lækjarbakkann til myndartöku.

Síðustu daga hefir Kvintín nefnilega dvalið að heimili frú Ingveldar og Kolbeins í góðu yfirlæti, alltaf moldfullur og til í að vera misnotaður kvensniptunum þar á bæ. Meira að segja Brynjar Vondalykt misnotaði karlskepnuna á miðju stofugólfi á meðan frú Ingveldur, Kolbeinn og gestir þeirra hvöttu þá til ófagurra dáða.

Þegar Kvintín kemur aftur á sínar heimaslóðir eins og nýhreinsaður og halaklipptur hundur mun hann hafa frá mörgu sögulegu að segja úr íslandferð sinni. Og ef vel tekst til, er ekki úr vegi að vona, að hann semji óskarsverðlaunakvikmynd um reynslu sína af gamansömum íslendingum sem misnota ofurölvaða útlendinga og taka af þeim ljósmyndir með úldinn fisk í lúkunum.
mbl.is Tarantino veiddi maríulaxinn í Hítará
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband