Leita í fréttum mbl.is

Það vita flestir hverjir stela dekkjum og éta ketti

cat_852217.jpgÞað hefir lengi verið ein af einkennilegum höfuðdyggðum Framsóknarflokksins, að stela hjólbörðum, felgum og hjólkoppum. Svo lögreglan þarf ekki að leggja á sig mikið starf til að finna dekkin af bifreiðinni sem húrraði útá grjóthrúguna; hún þarf einungis að banka uppá í Framsóknarfjósinu og láta skepurnar sem koma til dyra að gjöra svo vel að vísa þeim á hin þjófstolnu dekk.

Svo eru helvískir frjálshyggjusepparnir rammþjófóttir, eins og og þjóðin veit eftir aðfarir þeirra fyrir og eftir Hrun. Þeir seppar ku ekki víla fyrir sér að stela nokkrum dekkjum af bílskrjóðum sem liggja utanvegar á hvolfi. Þetta stal frjálshyggjumaðurinn Brynjar Vondalykt ketti nágrannakonu sinnar og sauð hann í potti og át. ,,Happy birthday motherfucker" sagði hann víst við köttinn um leið og hann sneri hann úr hálsliðnum. Hann var, að því að talið er, aðframkominn þá, kallanginn, banhungraður og illa til fara eftir nokkurra daga útreiðartúr uppum fjöll og firnindi þar sem eina nestið hafði verið áfengi og aftur áfengi. Undarlegast var þó, að Brynjar Vondalykt fékk engann móral útaf kattarátinu, sagði vinnufélögum sínum frá því glaður í bragði og meira að segja móður sinni.
mbl.is Dekkjunum stolið af slysstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband