Leita í fréttum mbl.is

Þegar kapítalísku skepnurnar geyspa golunni með morðingjabros á vör

xd1_1243790.jpgÞessi grein um aðfarir ríkisskattstjóra og uppgötvanir hans, sanna svo um munar, að kapítalískur einkarekstur byggist eingöngu á glæpum í formi skattsvika og þjófnaði af launum starfsmanna. Villdýrin sem stunda þennan svokallaða einkarekstur, sem réttast væri að kalla glæparekstur, munar ekki um að svíkja allt sem þau geta undan skatti og umgangast starfsfólk sitt eins og þræla. En þegar að því kemur, að þessi bölvuð villdýr telja sig þurfa á hinu opinbera að halda, til dæmis í sambandi við læknisþjónustu, skólagöngu barna þeirra, og svo framvegis, þá heimta þau forgang fram yfir hið venjulega sómakæra fólk sem stendur uppá punkt og prik í skilum við skattinn.

Eins og gefur að skilja, þá hafa kapítalísku villidýrin alla tíð verið vandræðafólk, samfélagsmein, eyðileggingarafl, hungraðir úlfar í sauðahjörð. Þess vegna er mannkyninu brýn nauðsyn að uppræta kapítalismann með öllum tiltækum ráðum.

Hér á Íslandi eigum við nokkra sóðalega stjórnmálaflokka, sem standa dyggan pólitískan vörð um hinn kapítalíska einkarekstur, skattsvik hans, kúgunartilburði og aðra glæpi. Þessar sóðaðlegu stjónmálaklíkur hafa í ofanálag við aðra áratuga ómennsku sína, verið notaðar til að ræna eigum almennings í fyrirtækjum og auðlindum og koma þeim í klærnar á bröskurum og jafnvel ótíndum þjófum. Hann hlýtur að verða auðveldur dauðinn hjá þessum kapítalísku skepnum þegar þær geyspa golunni með morðingjabros á vör eftir vel heppnað ævistarf. Já.
mbl.is 70 fyrirtækjum tilkynnt um lokun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband