Leita í fréttum mbl.is

Ögmundur er orðinn múslim og hreinasti óvættur og því til alls vís

vik_1239908.jpgÞað verður sko hamagangur í öskjunni þegar Hanna Birna verður dregin með handafli á fund Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Ég geri ráð fyrir að það verði óhemju stympingar við að drösla henni í salinn og enn meiri áflog við að halda henni þar á mottunni meðan Ögmundur lætur dæluna ganga yfir hausamótunum á henni. Þegar svo herfileg átök blossa upp í stjórnsýslunni, má búast við að borgarastríð fylgji í kjölfarið þar sem mönnum og konum, ungum jafnt sem öldnum, verður slagtað eins og dilkum í sláturtíð. Til dæmis hafa óljósar fréttir borist af því að viss öfgafengin hægribarnasamtök hafa keypt 100 flugskeyti af Hamassamtökunum til að skjóta á bölvað andskotans kommadraslið, eins og börnin kalla þá sem þau hafa valið sér fyrir andstæðinga.

Aðrar óljósar fregnir hafa og borist með sérlegum mönnum, að Ögmundur safnað miklum kröftum í sumar og sé nú orðinn hreinasti óvættur. Hann kvað hafa gerst múslim í maímánuði síðastliðnum og farið í þjálfunarbúðir í Austurlöndum nær og starfað þar eftir hardcore ævingaprógrammi fram í miðjan ágúst og sé nú albúinn að fást við villiketti af sverustu sort með bjúgsverði sínum flugbeittu.
mbl.is Hanna Birna verður kölluð á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband