Leita í fréttum mbl.is

Á skilið innilokun, gapastokk og pólitíska útlegð

flokkseigendur_786424Það var sem ég hugði: Katrínu Jakk hugnast ekki að lenda með Hönnu Birnu í steininum, og lái henni hver sem vill.

Afturámóti væri meira viðeigandi kæra Katrínu þessa fyrir aflægishátt og óafsakanlegt tómlæti þegar hún sem varaformaður VG lét sem hún sæi ekki einelti og djöfulgang Steingríms formanns og Flokkseigendafélagsins gegn fólki eins og Jóni Bjarnasyni, Guðfríði Lilju, Lilju Mós, Atla Gísla og Ásmundi Einari og fjölda annarra flokksmanna. Fyrir þann ræxnishátt ætti náttúrulega að loka gardínuskrautið inni og hafa það í gapastokk.

Og ekki vænkast hagur Strympu þegar þátttaka hennar í gríðalegum svikum VG í mörgum stórum málum og smáum, á ríkisstjórnarárum VG, eru tekin með í reikninginn. Að þeim ósköpum meðtöldum væri hæfileg lágmarksrefsing Katrínar Jakobsdóttur pólitísk útlegð til lífstíðar. 
mbl.is Segir kæruna tilhæfulausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband