3.11.2014 | 18:51
Ótti þeirra var á rökum reistur
Það er ekki laust við að arðránslýðurinn, sem stendur að núverandi ríkisstjórn, hafi fengið hnút í vömbina og skjálfta hnjákollana um helgina þegar ljóst varð að mótmæli, sem boðað var til á facebook gætu orðið allfjölmenn. Umræddur yfirgangslýður fékk nefnilega á tilfinninguna, að sauðsvartur almúginn væri strax búinn að sjá í gegnum öll frjálshyggju dörtítrix ríkisstjórnarinnar, sem gæti gert það að verkum að fólkið á götunni kynni setja auðvaldsdólgunum stólinn fyrir dyrnar og jafnvel reka þá eins og illa þefjandi kleprahvolpa frá völdum. Þessvega sendu ríkisstjórnarflokkarnir hvor sína búrtík fram á stjá til að glefsa í almenning og gera lítið úr mótmælunum.
Nú er komið á daginn, að ótti burgeisastéttarinnar og þeirra aftaníossa var á rökum reistur, það sannar fjölmennið á fundinum og fylgishrun ríkisstjórnarinnar í könnunum.
Og þetta er aðeins fyrsti fundurinn. Þeir verða fleiri. Og ef til vill verða þeir svo margir og fjölmennir, að hin alræmdu samtök, sem að ríkisstjórninni standa, verða að hrökklast út stjórnarráðinu með öllum þeim skít og allri þeirri skömm, sem þessu ólánsliði hefur tekist að kasta í samfélagið á ferli sínum.
Nú er komið á daginn, að ótti burgeisastéttarinnar og þeirra aftaníossa var á rökum reistur, það sannar fjölmennið á fundinum og fylgishrun ríkisstjórnarinnar í könnunum.
Og þetta er aðeins fyrsti fundurinn. Þeir verða fleiri. Og ef til vill verða þeir svo margir og fjölmennir, að hin alræmdu samtök, sem að ríkisstjórninni standa, verða að hrökklast út stjórnarráðinu með öllum þeim skít og allri þeirri skömm, sem þessu ólánsliði hefur tekist að kasta í samfélagið á ferli sínum.
Gyrðið upp buxurnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
- Þegar líkin koma á færibandi inn á borð ráðherra
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 10
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 134
- Frá upphafi: 1539329
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 118
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Athugasemdir
Ég hlustaði á Svavar Knút í fréttunum og hann leyfði sér að segja að núverandi ríkisstjórn sýndi hroka, þótt hann hafi verið svo illa máli farinn að erfitt var að skilja hvað hann var að fara.
En mesti andskotans hroki sem ég hef nokkurn tíma upplifað var sýndur af hálfu pólítísku dugleysingjanna Jóhönnu Sig. og Steingríms J., sem tröllriðu íslenzku þjóðfélagi á 4 myrkustu árum lýðveldisins og gengu næstum að því dauðu.
En eins og Sigmundur Davíð sagði, þá voru þeir mótmælendur, sem ekki voru tónlistarkennarar, að mótmæla því að landráðaliðið (Samf. og VG) væri ekki lengur við völd.
Aztec, 3.11.2014 kl. 19:23
Já, Svavar Knútur var ekki fyrr horfinn af skjánum þegar forsætisráðherra burgeisastéttarinnar birtist og hélt áfram með hroka, skæting og dekurbarnakjaft. Það gæti vel farið svo, að þessu óskabarni framsóknarklíkunnar verði hált á þessari framkomu og derringi.
Það sem býr að baki þessum mótmælum er ekki verkfall tónlistarkennara eða óánægja einhverra sem eru ekki sáttir með að ,,þeirra flokkur" sé ekki í stjórn. Það sem gerir að verkum, að mótmæli, nánast uppúr þurru, hafi verið svo fjölmenn, er grunur, eða jafnvel vissa, um að ríkisstjórnin ætli sér að eyðileggja samfélagið enn frekar á altari öfgahægrihyggju, frjálshyggju og almenns fábjánaháttar.
Hafi þér þótt árin 4 sem Jóhönnustjórnin var við völd myrk, Aztec, þá geri ég ráð fyrir að þú vitir hvernig á myrkrinu stóð.
Jóhannes Ragnarsson, 3.11.2014 kl. 19:39
Það sem er að baki þessum mótmælum... "allskonar".
Raunin myndi ég telja er að fólki finnst ekki nægilega hratt upp byggt af því sem dregið var í forina á síðasta kjörtímabili, þ.á.m. heilbrigðisstéttin og löggæsla.
Þá verður aftur að spyrja á móti..."hvað er nægjanlega hratt" þá og "eru allir sammála um hvar á að byrja".
Meðan að mótmælt er "allskonar" er það nákvæmlega og ofureinfalt stefnulaust og ekki svo ósvipað því að mótmæla því að bátur reki stefnulaust og þó án þess að ætlast til þess að nokkur liggi niður ár eða stýri.
Vita verður hvað, hvenær, hvernig og ekki minnst fyrir hvaða fjármagn áður en risið er upp og mótmælt "bara..aþþíbara".
Óskar Guðmundsson, 3.11.2014 kl. 22:22
Mikið vildi ég hafa verið þarna og mótmælt. Ég var í fyrstu hlynnt þessari ríkisstjórn, ekki af því að ég vissi ekki hvernig hún er sköpuð, en hélt satt að segja að fyrri mótmæli ómuðu í þeirra huga, og að þeir myndur "haga sér". En þetta er allt á sömu bókina lært, og gömlu taktarnir sem maður óttaðist svo mjög eru að koma fram. Þeir elta peningana eins og þefgóður rakki, fyrsta höggið var að taka af gjald sjávarútgerðanna. Þeir fá nú sína blóðpeninga þannig að allt annað leggst í dróma. Fjandinn hirði þennan fjórflokk, já ég segi og skrifa fjórflokk, því það er sama rassgatið undir þeim öllum, sem snýst um að halda völdum og hygla þeim sem gefa mest í kosningasjóðina.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.11.2014 kl. 22:36
Fólk er m.a. hrætt við, að ríkisstjórnin hafi í hyggju að eyðileggja samfélagið enn frekar með einkavæðingargambli, frjálshyggjukreddum og fasisma og það ekki af ástæðulausu. Merkin um þann viðbjóð allan eru allskonar, frá auðvirðilegum lekum og lygi uppí markvissa árás á grunnstoðir og grunngildi þjóðfélagsins.
Þú hlýtur að gera þér grein fyrir því, Óskar, að það var ekkert dregið í forina á síðasta kjörtímabili, það var allt komið í auðvaldsfjóshauginn áður er það hófst. Það sem síðasta ríkisstjórn sveikst um, var að ganga milli bols og höfuðs á skaðvöldunum.
Jóhannes Ragnarsson, 3.11.2014 kl. 22:36
Það er rétt, Ásthildur, og aldrei hef ég fimmflokkinn kosið. En það er kaldhæðnislegt, að það er ógæfuvinstristjórnin sem kom þessari stjórn á koppinn með því að gera allt rangt. Aldrei hef ég upplifað aðra eins fávita og ráðherra helferðarstjórnar Jóhönnu. Þau þurftu ekki að gera neitt mikið, þau þurftu bara að gera rétta hluti til að vinna kosningarnar aftur. En svona snýst þetta fram og tilbaka. Hver ómögulega ríkisstjórnin á fætur annarri. En það er sama hvað þessi ríkisstjórn er slæm, hún verður aldrei eins léleg og dug- og hugleysingjastjórn andskotans, sem var við völd á myrkraárunum 2009 - 2013 þegar aldrei sást til sólar því að helferðarstjórnin, þessi hækja auðvaldsins, gerði í því að dýpka kreppuna enn meira fyrir alla aðra en elítuna.
Aztec, 4.11.2014 kl. 01:05
Því miður hefur þú rétt fyrir því Aztek að afglöp fyrri ríkisstjórnar voru eitt risaskref til andskotans og takk fyrir að tala um fimmflokkinn, ég var að vísu með þennan fimmta í huganum, en lét hann fylgja með velferðarstjórninni, því vissulega er hann ekkert annað en smá jakabrot af henni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.11.2014 kl. 10:40
Þótt ég hafi kosið Borgaraflokkinn árið 2009, þá ber ég enga ábyrgð á Hreyfingunni, sem sveik málstaðinn og skildi Borgaraflokkinn eftir í sárum. Að vísu var Þór Saari ekkert slæmur en hin þrjú voru svikarar. Svo að rétt er að ég hef aldrei kosið fimmflokkinn og að sjálfsögðu aldrei fjórflokkinn, hvorki þá sem eru á þingi né fyrirrennara þeirra. Og eftir að Píratar komust á þing get ég stært mig af því að hafa heldur ekki kosið þá, en það gerði dóttir mín, enda er hún ung að árum og blaut á bak við eyrun.
Áhöld eru um það hvort kalla ætti Hreyfinguna sálugu eða BF fimmta flokkinn, en ég veit það að eftir hörmungar síðustu 6 árin, þá hefur meirihluti kjósenda engan fulltrúa á þingi og mun ekki eiga neinn fulltrúa í framboði meðan það vantar alveg stjórnmálaflokka sem gera eitthvað gagn.
À propos fimmflokkinn þá er til hugtakið fimmta herdeildin (da.: femte kolonne), sem táknar stjórmálaafl eða aðila sem vinna gagngert gegn hagsmunum þjóðar sinnar. Svo að þannig séð mætti kalla alla flokka á Alþingi fimmtu herdeildirnar.
Aztec, 4.11.2014 kl. 17:57
Já, Aztec, saga Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar, Pírata og Bjartrar framtíðar, er saga moldryks sem kapítalísk sinnuðu fólki tókst að þyrla upp til að villa fólki sýn. Það er margt ópíumið fyrir fólkið.
Jóhannes Ragnarsson, 4.11.2014 kl. 18:48
Þú gleymdir að telja með VG, sem sveik alþýðuna. VG var ópíum blandað með blásýru og ebólu. Mér finnst satt að segja, Jóhannes, að þú ættir að segja skilið við VG og stofna þinn eigin flokk á vinstrivængnum án þess að hafa kommúnista með. Frú Ingveldur gæti orðið fyrsta á framboðslistanum. Ég er viss um að flokkurinn þinn fengi brautargengi ef þú passar það að hafa aðeins grasrótina með, því að núverandi vinstriflokkar á þingi gefa skít í alþýðuna.
Aztec, 5.11.2014 kl. 10:30
Já, Aztec, ég var einn af þeim sem stóðu að stofun VG á sínum tíma. Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið. Það eru nokkur ár síðan ég sagði mig úr VG og ekki að ástæðulausu. Þá var orðið ljóst, að forysta flokksins hafði svikið flest, ef ekki allt, sem um var talað við stofnun hans, sveigt hann langt til hægri og gert hann að apparati sem gæti auðveldlega farið í ríkisstjórn með hverjum sem er. Að þessu leyti má alveg segja, að VG hafi virkað eins og ópíum á a.m.k. vinstrisinnað fólk, sem trúir ekki enn að það hafi verið svikið og að forystusauðirnir séu einvala lið loddara, sem eru meira og minna hægrisinnaðir.
Hvað frú Ingveldi varðar, þá er hún góð og gegn sjálfstæðisflokkskona og róttæk sem slík. Af þeim sökum tel ég mjög ólíklegt að hún myndi stofna með mér róttækan sósíalistískan flokk.
Jóhannes Ragnarsson, 5.11.2014 kl. 13:00
En Jói, man ég það ekki rétt að þú sért einmitt félagi í róttækum sósíalískum flokki?
Vésteinn Valgarðsson, 17.11.2014 kl. 16:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.