Leita í fréttum mbl.is

Aðkomumaður, eldspýtur, kveikjari og Akureyringar.

Svo er að sjá að hinn alræmdi ,,aðkomumaður" á Akureyri hafi ennþá einusinni látið að sér kveða þar í bæ og nú með eldspýtur og kveikjara að vopni. Eins og alþjóð veit, hefur þessi hvimleiði aðkomumaður hefur gert Akureyringum margar kárínur í gegnum árin. Það má því telja undarlegt að Akureyringar skuli ekki hafa tekið á sig rögg fyrir löngu síðan, handsamað aðkomumanninn og flutt hann hreppaflutnigi yfir vötn og heiðar til síns heima. Eitt meðal annarra afreka þessa leiðindamanns var þegar hann tók sig til og hóf ,,að svala ástarþrá sinni og líkamslosta á sauðkindum Akureyringa sem eru til húsa í fjárborg Akureyringa, rétt fyrir ofan sjálfa aðalborgina", svo ég vitni orðrétt í Flosa Ólafsson sem er manna sérfróðastur í Akureyringum.

Því tel ég rétt vera, að Akureyringar fari nú að láta það eftir sér að reka gistivin sinn, aðkomumannin, af höndum sér í eitt skipti fyrir öll svo að bæjarbúar geti loksins farið að sofa rólegir um nætur fyrir uppátækjum og spellvirkjum ,,aðkomumannsins." 


mbl.is Fjórar íkveikjur og eldur í húsi á Akureyri í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband