Leita í fréttum mbl.is

Samfylking óheiðarlegra tækifærissinna.

Það fer ekki á milli mála að Samfylkingin er mjög óheiðarlegur stjórnmálaflokkur sem á það eitt skilið að kafna í sinni eigin skítalykt.

Annars er gleðilegt að sjá að Össur karlinn er ekki lengur ,,kalinn á hjarta" eftir síðasta ríkisstjórnarævintýri sitt með Sjálfstæðisflokknum og kominn í ríkisstjórnarviðræður með svilkonu sinni eins og ekkert sé. 


mbl.is Segjast komin nær stjórnarmyndun og að góður andi sé í viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Depill

Fyndið með ykkur VG, vegna þess að þið fenguð ekki að hoppa upp í sæng fyrst, að þá eruð þið í brjálaðri fýlu út í allt og allt. Fínt fyrir ykkur að dúsa með framsókn í stjórnarandstöðu.    

Depill, 18.5.2007 kl. 17:15

2 Smámynd: Sindri Kristjánsson

B, I, T, U, R?

Sindri Kristjánsson, 18.5.2007 kl. 17:36

3 identicon

Það væri fróðlegt að vita Jóhannes af hverju þú notar þessi harkalegu orð um Samfylkinguna ...

Sjálfur kaus ég VG en það var alltaf vitað að ég kysi Samfylkingu eða þá ... ég kaus Samfylkingu síðast og í fyrra ... og ég sé ekki eftir atkvæðinu í VG núna. En ég er gjörsamlega á móti því að bregðast svona við mjög heiðarlegum stjórnarmyndunarviðræðum. 

Hver er óheiðarleikinn í Samfylkingunni? Af hverju voru bæði Ingibjörg Sólrún og Steingrímur að biðla til Geirs daginn eftir kosningar? Af hverju sagði Jón að það væri eðlilegt að Framsókn stigi til hliðar eftir afhroð kosninganna (þetta sagði hann á kosninganótt) en allt í einu er allt svo rosalega svikult frá sjálfstæðismönnum??

Þessi sandkassaviðbrögð Framsóknar og Vinstri Grænna eru sorgleg finnst mér ... og það fer ekki á milli mála að þessi "skítafullyrðing" þín er algerlega yfir strikið ... 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 18:16

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég held að fáum blandist lengur hugur um að undirbúningur að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hófst löngu fyrir kjördag án þess að kjósendum væri í nokkru sagt frá hvað stæði til. Slíkt er óheiðarlegt.

Samfylkingin var stofnuð til að sameina vinstrimenn og ég fæ ekki séð að því starfi hafi verið lokið. Þrátt fyrir það stekkur Samfylkingin beint í fangið Sjálfstæðisflokkum við fyrstu hengugleika. Talsmenn Samfylkingarinnar hafa á undanförnum árum verið duglegir við að halda því að kjósendum að tilgangurinn með stofun Samfylkingarinnar væri að mynda öflugt mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn, nú er ljóst að samfylkingarliðið meinti ekkert þessu hjali sínu. Svona framferði er að mínu mati mjög óheiðarlegt.

Varðandi lóðarí Steingríms í grend við íhaldstíkina, þá hef ég megna skömm á því framtaki hans. Ef Steingrímur og Ingibjörg Sólrún eru eins mikið félagshyggjufólk og þau vilja vera láta hefði þeim aldrei dottið í hug að fara í kapphlaup um hvort þeirri kæmist á undan upp í íhaldsfletið. Svona lið er gjörsamlega óhæft til að vera í forsvari fyrir stjórnmálasamtök á vinstri kantinum.

Jóhannes Ragnarsson, 18.5.2007 kl. 19:28

5 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Jói, þetta er í besta falli fráránleg færsla hjá þér. Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfsstæðisflokks átti sér stuttan aðdraganda, þó að einhverja hafi dreymt um slíkt samstarf.

Steingrímur J eyðilagði möguleika á R-lista stjórn, ég hef heimildir fyrir því að hann hafi gert það strax á sunnudegi eftir kosningar með MJÖG AFDRÁTTARLAUSUM HÆTTI. Þegar sá möguleiki var úr myndinni, var þetta rökrétt skref.

Steingrímur var búinn að lýsa því yfir að hann væri til í viðræður við Sjálfsstæðisflokkinn og meira segja umhverfis- og virkjunarmálin voru umsemjanleg (lýsti því yfir í viðtali á Stöð2 í vikunni). Þetta er nú allur hugsjónamaðurinn.

Steingrímur J hefði hoppað hæð sína væri hann í stöðu Ingibjargar Sólrúnar.

Það er betra fyrir stjórnmálaflokk að koma sínum áherslum fyrir í stjórn en í stjórnarandstöðu, það er klárt.

Eggert Hjelm Herbertsson, 19.5.2007 kl. 08:16

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jú, Eggert minn, ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á sér lengri aðdraganda en menn grunar. Ég held að þeim sem til sáu og heyrðu, sé enn í fersku minni grunsamlegt vinarþel sem var í gangi á milli frambjóðenda Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í öllum umræðuþáttum sem fram fóru á öldum ljósvakans í aðdraganda kosninganna. Þar fóru fremst í flokki formennirnir Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún. Að minnsta kost duldist mér ekki hvað var í uppsiglingu. Ég veit svo sem fullvel að fótgönguliðarnir eru ekki hafðir með í ráðum þegar svona baktjaldamakk fer fram og þeir verða aldrei upplýstir hvað fram fór í raun og veru.

Ég get engan veginn fallist á þá kenningu að Steingrímur J. hafi eyðilagt möguleikan á svokallaðri R-listastjórn, það er bara fyrirsláttur þeirra sem nú eru skriðnir upp í íhaldsbælið. Sannleikurinn er sá að Ingibjörg Sólrún og hennar fylgdarlið hafði engan áhuga á slíku stjórnarsamstarfi. Mér finnst einhvernveginn að þú og fleira gott fólk í Samfylkingunni ættuð að rýna örlítið í hverskonar stjórnmálamaður formaðurinn ykkar er. Mér kæmi ekki á óvart þó sumum ykkar brygði nokkuð í brún ef þið gerðuð það á hlutlausan og heiðarlegan hátt. 

Þegar Ingibjörg Sólrún var kjörin formaður Samfylkingarinnar á sínum tíma, spáði Steingrímur J. að henni myndi skjóta fljótlega upp, vel hægramegin við miðju. Ekki er annað að sjá en að spádómur hans hafi ræst og vel það.  

Jóhannes Ragnarsson, 20.5.2007 kl. 10:55

7 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Jói, ég hef MJÖG ÁREIÐANLEGAR heimildir fyrir því að Steingrímur J hafi tekið fyrir R-lista stjórn með mjög afgerandi hætti, á Sunnudegi eftir kosningar. Steingrímur hélt að Sjálfsstæðisflokkurinn myndir leita frekar til VG en Samfylkingar, þar sem mikil gagnrýni á Ingibjörgu Sólrúnu hefur verið innan raða beggja flokka. Steingrímur las ekki rétt í þessa stöðu.

Ég get líka sagt þér eftir mjög áreiðanlegum heimildum að á miðvikudaginn eftir kosningar, var EKKERT í spilunum sem benti til þess að Samfylkingin og Sjálfsstæðisflokkurinn færu í stjórnarmyndunarviðræður - EKKERT.

Það að Ingibjörg Sólrún hafi ekki ráðist gegn Geir í umræðuþáttunum er rétt hjá þér. Enda spilaði hún mjög passíft í þeim þáttum, réðist ekki harkalega gegn neinum.

Miðað við stöðuna eftir kosningar komu að mínu mati 2 kostir til greina. R-lista stjórn og svo það mynstur sem nú er verið að reyna. Steingrímur J gerði fyrri kostinn að engu þannig að eina rökrétta var að reyna þann seinni.

VG hafa sprengt álíka möguleika áður. Fyrst Reykjavíkurlistann, svo í Sambandi Sveitafélaga og svo nú í þessum stjórnarmyndunarviðræðum. Ég spyr mig hvert er erindi VG í stjórnmálum?

Eggert Hjelm Herbertsson, 20.5.2007 kl. 11:45

8 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Mér er nær að halda að VG eigi ekkert erindi í stjórnmálum Eggert. Það verður allavega ekki þeim að þakka ef einhver hænufet verða stigin til að lagfæra stöðuna.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 21.5.2007 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband