Leita í fréttum mbl.is

Þeir átu alltaf svona töflur áður enn þeir ávörpuðu lýðinn

polis.jpgÞað er sko ekkert gamanmál, drengir mín, að éta töflur, merktar Adólfi Hitler og félögum. Haft er fyrir satt, að Hitlér sálugi og hans menn hafi brutt svona pillur ofaní sig í gríð og erg, ekki síst áður en þeir héldu ræður fyrir múginn. Þeim Hitléri og Göbbelsi þókti einmitt takast best upp í ræðustólnum þegar þeir höfðu skolað niður svo mikið af þessu nasistastöffi að froðufelldu framaní lýðinn og létu eins og vitstola menn, alveg eins og pilturinn á Suðurnesjunum.

Hvort suðurnesjaveinninn át hakakrosshressinguna, til að verða eins og Hitlér og Gobbels, hefi ég ekki nokkra hugmynd um, tel það ólíklegt, enda vóru fyrrnefndir kompánar þess eðlis, að einugis sturlað fólk fær velþóknun á þeim. Ekki liggur heldur fyrir, að ólánssvínin, sem selja ungmennum þennan óþverra, séu að reyna að búa til nasista með eiturbyrlan sinni.

Sem betur fer, áttu Suðurnesjamenn hauk í horni við hið uppáfallandi tilfelli, en það er vitaskuld Stjörnulögreglustjórinn Stones, (ex Stjörnusýslumaðurinn Stones) en hann reyndist virkilegur bjarvættur þegar drengurinn var orðinn óður og ekki annað sýn en að hann myndi leggja gjörvallt byggðarlagið, frá Hafnarfirði og útá Reykjanesstá, í eina rjúkandi rúst. Ekki þarf að því að spurja, að Stjörnulögreglustjórinn mætti sjálfur á vettvang, í lúðrasveitarbúningnum sínum, og með handjárnin, sem hann lagði umsvifalaust á hinn tryllta svein og hafði hann að svo búnu á brott með sér.


mbl.is Féll í gólfið, kastaði upp og froðufelldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband