Leita í fréttum mbl.is

Sóðaráð höfð eftir ölvuðum sæmdarhjónum

eldur5Þessi þjóðráð sem koma fram í greininni eru samin af frú Ingveldi og Kolbeini manni hennar, þau voru bæði mjög drukkin þegar þau sömdu ráðin. Sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn eiga enginn börn, nema hvað Kolbeinn á launson með skuggalegri kerlingarpútu sem átti að vera fyrir laungu komin úr barneign þegar hann barnaði hana, af þeim sökum hafa þau hvorki vísindalega útreikninga né tala af eigin reynslu um ,,kynlíf án þess að vekja krakkana." Og börn hafa, af skiljanlegum ástæðum, aldrei stigið fæti innfyrir dyr þeirra sæmdarhjóna enda er heimilislíf þar á bæ ekki við hæfi barna.

Alveg er sjálfsagt að geta þess að frú Ingveldur stóð Kolbein eiginmann sinn að verki, greip hann glóðvolgann eins og segir í greininni, þegar hann barnaði hina öldruðu kerlingarafmán. Auðvitað sparkaði frú Ingveldur þeirri gömlu út með hæfilega vel völdum heillaóskum, en Kolbein fór hún með inná baðherbergi og þó honum hátt og lágt uppúr Ajax gófsápu uns hann ljómaði eins og sólin og tunglið. Frú Ingveldur lét og ekki þar við sitja heldur bar rúmbælið, sem Kolbeinn hafði brúkað til að gera sér glatt í geði með kérlingarskrukkunni, ásamt með sængurfötum öllum útá lóð og brenndi allt gallaríið til kaldra kola. Nágannar þeirra sögu að lyktin af reyknum hefði hoðaleg, ísmeygileg og haft áhrif á innkirtlastarfsemi þeirra. Meðfylgjandi mynd var tekin af rúmbrennunni.

Það er sannast sagna mjög óviðeigandi af Smartlandi Mörtu Máríu birta vafasaman klámpistil eftir drukkin hjón undir yfirskriftinni: ,,Svona stundar þú kynlíf, án þess að vekja krakkana." Þvílík sóðaskrif sem hafa ekki neitt með raunveruleikann að gera og því minna upplýsinga- eða fræðslugildi hafa einungis þær afleiðingar að ýta þeim mun meir undir óæskilega kynferðisóra og öfuguggahátt. Af þeim sökum ætti Marta Máría í Smartlandi ef henni er vant um virðingu sína að fjarlægja fyrrnefnda grein hið snarasta af síðunni sinni og fleygja henni á eldinn eins og frú Ingveldur geri við rúmbælið og sængurfötin hér um árið.


mbl.is Svona stundar þú kynlíf, án þess að vekja krakkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband