Leita í fréttum mbl.is

Og þeir tróðu honum innum klósettgluggann

x17Uppá síðkastið hafa allmargir einstaklingar boðað brotthvarf sitt úr stjórnmálum. Nær undantekningarlaust eru þessi brotthvörf mikið fagnararefni, þó að eftir sitji ókræsileg minning í hugum þolenda, einna líkust vondum draumi, javfnvel martröð. Það er til dæmis lítil eftirsjón af Sóley Tomm, Illuga Gunnars, Vigdísi Hauks og Gvöndi Steingríms, svo einhverjir séu nefndir af handahófi.

En svo eru önnur eintök sem hóta því að sitja sem fastast þrátt fyrir að almenningur hafi óþokka á þeim, í sumum tilfellum megnan óþokka, en það helgast af því að viðkomandi eru óþokkar og óféti í sjón og reynd. Við þessháttar gerpum á fólk aðeins eitt svar: að kjósa þá ekki. Því miður er fjöldinn allur af fólki, sem er svo skyni skroppið, að það vílar ekki fyrir sér, kosningar eftir kosningar, að kjósa skepnur af fyrstu gráðu til Alþingis og flokka sem líkjast meira skipulögðum glæpasamtökum en uppbyggilegum þjóðþrifafélögum. Ég hefi og heldur aldrei skilið kvartið og kveinið í liðinu sem kýs yfir sig og þjóðina ýmislega ódáma úr auðvaldinu miðju, svikula, lýgna og illgjarna sjálfsdýrkara.

kol30_1225089.jpgMörgum er minnisstætt þegar frú Ingveldur lagði hnúa sína, harða og kalda sem stál, á trýnið á einu ráðherrasvíninu, sem lagði leið sína að heimili hennar eitt föstudagskvöld fyrir nokkrum misserum. Ráðherraafmánin tókst á loft þegar hnefi frú Ingveldar hitti trantinn á honum fyrir og slengdis garmurinn á miðstöðvarofn þar í stofunni og dauðrotaðist. Hann hafði unnið sér til óhelgis að smeygja skítugri lúkunni niður í pils frú Ingveldar að aftanverðu og pota í rassskoru hennar af slefandi losta og brenglaðri náttúru. Ráðherrann lá uppundir tvær klukkustundir í öngviti og þegar hann rankaði við sér komst hann að því sér til undrunar að hann var staddur í náðhúsi í framandi íbúð, að sjálfsögðu berrassaður, og yfir honum stóðu hjón með hatursglampa í augum, ennfremur þrír lögregluþjónar, sem hjónin höfðu pantað um leið og þau heyrðu skruðningana á klósettinu. Þeir höfðu sem sagt farið með ráðherrann, þeir Kolbeinn Kolbeinsson, Indriði Handreður og Brynjar Vondalykt, að beiðni frú Ingveldar, og troðið honum innum klósettglugga í þarnæstu götu. En áður en þeir hófust handa með að mismuna skepnunni í ókunnugt hús í óþökk húsráðenda, létu þeir hana liggja á götunni við hlið birfreiðarinnar sem þeir óku henni í. Það kostaði ráðherraskrímslið mikla fyrirhöfn að koma í veg fyrir að sagan af honum bærist í fjölmiðla og málið væri með öllu látið niður falla.


mbl.is „Ég get gert allt sem mig langar til“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband