Leita í fréttum mbl.is

Illur fyrirboði

kol22Um helgina lá leið þeirra Brynjars Vondulyktar og Óla Apakattar norðrí Laufskálarétt. Á eftir bárust þeir með merunum til Sauðárkróks því þeir vildu dansa. Eftir dansinn lentu þeir svo í illvígum bardaga við heimamenn, sem vildu ólmir koma þeim félögum á kné og vel það. Að lokum stóðu þeir einir uppi þeir Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur annarsvegar og gifturíki kaupfélagsstjórinn á Sauðárkróki og smásveinn hans, Gunnsi Braggi, hinvegar og var þá barist með grjóti. Í leiknum miðjum, skaut kaupfélagsstjórinn gifturíki meðalstórum hnullungi að andskotum sínum, en missti marks og hæfði glugga í Frammarafjósinu og brau hann mélinu smærra. Þykir þetta illur fyrirboði. 

Að sjálfsögðu voru Vondalyktin og Apakötturinn færðir í öruggt skjól, en kaupfélagsstjórinn gifturíki skipaði lögregluþjónum og smásveini sínum að laga gluggan undir eins ella skyldu fá þvílíka yfirhalningu að þeir gleymdu henni aldrei fyrir utan að geta ekki setið á afturendanum í mánuð á eftir. 

Strax eftir rúðubrotið var Kolbeini Kolbeinssyni gert aðvart um atburðinn, en hann lá þá á eldhúsgólfinu heima hjá sér og gat ekki staðið upp vegna ölvunarástands síns og misþyrmingja frú Ingveldar á honum. En Máría Borgargagn lá í öngviti undir elhúsborðinu í afar óviðkunnanlegri stellingu, en frú Ingveldur hafði einmitt komið að henni og Kolbeini uppvið eldavélina þar sem þau voru að iðja vissa hluti sem frú Ingveldur gat með aungvu móti fellt sig við þá í augnablikinu. Um hádegi í dag komu svo Brynjar Vondalykt og Apakötturinn úr norðanförinni og steðjuðu beint í heimsókn til frú Ingveldar og Kolbeins. Var þá allt með kyrrum kjörum á því heimili, Borgargagnið raknað úr rotinu og Kolbeinn skriðinn í bæli sitt og sleikti sár sín eins og óhamingjusamt og grálúsugt hundskvikindi.


mbl.is Alvarleg líkamsárás á Sauðárkróki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Svakalegt embarassed.........

Níels A. Ársælsson., 26.9.2016 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband