Leita í fréttum mbl.is

Andi Hriflu-Jónasar ræður ríkjum á Wintrisvöllum

x21Sjáiði snigilinn; hann sleit framkvæmdastjórnarfundi Framsóknar í fússi og sagði fundarmönnum að éta mykju fara til Andskotans. Svona eiga sýslumenn að vera. Og gamla Framsóknarmaddaman varð svo ofsaglöð í kör sinni þegar hún frétti af snöfurmannlegum tiltektum piltsins að hún lét hafa eftir sér, að litli Wintris væri sannlega Hriflu-Jónas endurborinn. Svo muldraði hún víst uppúr sér einkennilegum athugasemdir um Sigurð Inga, sem ekki eru eftir hafandi. Þær vóru, að því er heimildir segja, svo ljótar, að þeir er á hlýddu læstu sig inni af skelfingu.

Auðvitað er Sigmundur Dávíð svo góðhjartaður, að hann vill ekki fyrir nokkurn mun íþyngja sálarlífi ábyrgra framsóknarmanna á flokksþinginu með því að leyfa Sigurði Inga að tuldra yfir þingheimi með sinni draugslegu rödd eitthvert reginkjaftæði og tilhæfulausar dylgjur um betri menn og málefni þeirra. Því að Sygmoendur Wintris von Panama er réttlátur og hófstilltur heimsmeistari og hann ræður hverjir fá að halda ræður í Framsóknarfjósinu.

Eftir að Sigmundur hafði slitið fundi og rekið fundarmenn á dyr funduðu þeir lengi saman þeir Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, Alfredó Sölunefndareigandi og gifturíki kaupfélagsstjórinn úr Skagafirði. Það sem um var rætt á þeim fundi er að sjálfsögðu trúnaðarmál, en víst er að þar var ekki töluð vitleysan. Þó er ekki ólíklegt, að þremenningarnir hafi verið að leggja á ráðin um það hvernig best verði að haga brottrekstri Sigurðar Inga, Eyglóar og prestssonarins að norðan útúr Framsóknarfjósinu. En álitið er að sú athöfn fari fram á morgun, sunnudaginn 2. október, á þann hátt, að dýralækninum og hans hyski verði einfaldlega mismunað útum taðgatið á Framsóknarfjósinu og beint ofaní Fjóshauginn, ,,og komi hvorugt upp síðan" eins og segir í Egilssögu um lok viðskipta þeirra Skallagríms og Brákar kerlingar.  


mbl.is Sleit fundinum án niðurstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband