Leita í fréttum mbl.is

Hvurnig ætla þeir að útskýra merkingarnar á dömubindunum og eyrnapinnunum?

ing15Nú nú, þetta beljaði skólpið óhreinsað á fjörunar í Reykjavík uns vinstrimeirihlutinn tók sig til og setti upp hreinsunarbúnað og fékk bágt fyrir hjá sjálfstæðismönnum, sem uppnefndu Ingibjörgu Sólrúnu, sem þá var borgarstjóri, og kölluðu hana Klósett-Sollu og Skólpröra-Sollu og fleira í þeim anda. Nú bregðast sömu sjálfstæðismenn við með sjónlausum ofsa að því að hreinsunarbúnaðurinn bilaði um stundarsakir og ætla að gera þessa bilun að aðalkosningamáli Sjálfstæðisflokksins við næstu borgarstjórnarkosningar. Á þessar aðfarir horfir agndofa almenningur og hugsar með sér hversvegna í andskotanum sé ekki búið að sturta þessum Sjálfstæðisflokki niður og láta hann fara eina bunu gegnum skólphreinsibúnaðinn. Því er til að svara, að bilunin í hreinsibúnaðinum varð vegna þess að örlítill hluti af Sjálfstæðisflokknum slysaðist niður í klóakkerfi borgarinnar og braut allt og bramlaði í hreinsibúnaðinum.

Frú Ingveldur hefir ásamt með vinkonu sinni, Máríu Borgargagni, stundað sjósund bæði fyrir og eftir hreinsibúnað fráveitna og aldrei orðið meint af. Og þá 17 daga sem búnaðurinn var í skralli eftir að hafa svelgst á Sjálfstæðisflokknum fóru þær stöllur daglega og stundum þrisvar á dag í sjóinn og syntu og svömluðu í klóakblönduðum sjónum og hafa aldrei verðið hraustari til líkama og sálar, eiginlega ofhraustar ef eitthvað er. Þeim kemur því mjög á óvart að einhver nafnlaus pampía sé að fjargviðrast út af dálítilli bilun í hreinsibúnaði og hverja hana til að skammast sín fyrir framhleypnina og vitleysuna.

,,Af misjöfnu þrífast börnin best" segir í gömlum fræðum og þetta veit hjörðin í Sjálfstæðisflokknum, sem nú er ærð af klóakhysteríu. Það er aungvu líkara en að það brúki sjálft aldrei klósett, sé með sjálfvirkan hreinsibúnað innan í sér, sem kemur í veg fyrir allt sem heitir hægðastand og hlandfarir. En hvurnig ætla þessir veslings sjálfstæðismenn að útkýra það, að bömubindin, eyrnapinnarnir og blautþurkurnar, sem fundist hafa á fjörum eftir bilunina á hreinsibúnaðinum eru öll merkt XD? Það væri gaman á sjá þá útskýringu. Ég gæti best trúað að sjálfstæðismennina reki í vörurnar þegar gengið verður á þá með þetta veigamikla atriði og reyni að ljúga sig út úr því með því að segja að Rússar eða Muslimar hafi komið þessum merktu dömubindum og eyrnapinnum fyrir til að koma óorði á Sjálfstæðisflokkinn. Og hananú. 


mbl.is „Það var rosalega mikill klósettpappír“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband