Leita í fréttum mbl.is

Jón þumlungur og bandarísk stjórnvöld

draugar1.jpgÞað er ekki nýtt í veraldarsögunni að andlega bilaðir menn kvarti undan draugagangi og ásóknum. Skemmst er minnast séra Jón þumlungs í Ísafjarardjúpi, sem kvaðst hafa misst heilsuna vegna djöfla og andskota sem feðgar tveir við Djúpið hefðu magnað á sig. Jóni þumlungi tóks með harðfylgi að fá feðgana brennda á báli, en því miður batnaði séra Jóni ekki par við brennuna, svo hann heimtaði að dóttir föursins sem brendur var væri borin á bálið líka. Hinsvegar reyndist dóttirin ósamvinnuþýð við veraldleg og geistleg yfirvöld þar vestra svo að allt fór í handaskolum, því hún hafði munninn fyrir neðan nefið og tætti Þumlunginn í sundur eins og ullarhnoðra og slapp við bál, brennu og aðrar kárínur.

Nú verður ekki betur séð en séra Jón þumlungur hafi gert sér hægt um vik og gengið aftur í sendinefnd Bandaríkjamanna á Kúbu. Vér höfum heyrt ófagrar sögur af óráðvönum og forhertum drykkjröftum sem fóru á kreik eftir að þeir vóru dauðir og hófust handa við að drekka áfengi í gegnum einhverja blessaða sakleysingja og gerðu þá snarbrjálaða. Hitt er fátíðara að ein sannarlega löngudauð prestsskepna og þumlungur geri sér lítið fyrir og gangi aftur í heilli sendinefnd í öðru landi með þeim ósköpum að sendinefndin era orðin vita-heyrnarlaus og kolgeggjuð. Þetta er svo dularfullt, að aungvu er við að jafna en því þegar íslenskur draugur hóf að ríða húsum á prestssetri nokkru í Svíþjóð snemma á síðustu öld.

Vissulega eru bandarísk stjórnvöld sérfræðingar í að koma af stað draugagangi hér og þar í heiminum, allt eftir hvurnig vindur blæs í það og það sinnið. Einnig eru stjórnvöld þessi grunuð um að umgangast sannleikann á heldur vafasaman hátt og jafnvel fleygja honum út í hafsauga ef hann er til trafala fyrir hugsjónir þeirra. Liggur nú beinast við að halda, að bandarísk stjórnvöld telji sig þrfa alveg nauðsynlega að gera Kúbverja grunsamlega og efna til illinda við þá, alveg eins og Jón þumlungur lék gegn feðgunum við Djúp forðum. Löngu eftir að séra Jón þumlungur var dauður gáfu sál- og géðvísindamenn út þá yfirlýsingu, að Jón hafi sannarlega verið geggjaður í lifanda lífi, haldin alvarlegum géðsjúkdómi. Hinsvegar bólar ekkert á því að sálar- og géðvísindafrömuðir gefi út vottorð um géðheilsu og menningarstig bandarískra stjórnvalda, hvernig sem á því stendur. 


mbl.is 16 diplómatar fórnarlömb hljóðárása á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband