Leita í fréttum mbl.is

Molbúar og Bakkabræður ásamt Títlum og Borgargögnum

xb1_1257291.jpgÞað er vel skiljanlegt að Halldór Auðar Svansson nenni ekki að vera í borgarstjórn lengur og bjóði sig ekki fram við næstu kosningar. Fyrir utan að Halldór er stækur framsóknarmaður, þá er félagsskapurinn í borgarstjórn ekki þess eðlis að hann sé eftirsóknarverður. Vænta má að Píratar sjái fram úr þessu máli með einhverjum hætti og óhætt að segja að lukkuriddararnir bíði í dulítið langir ahalarófu eftir að taka sæti Dóra karlsins. Í borgrarstórn situr nú alleiðinlegarsta fólk flokka sinna, svo sljótt og vitahugsjónalaust að lengra verður vart komist í þeim efnum.

En fremsit meðal jafningja, er þá á aungvann hallað, í borgarstjórn Reykjavíkur eru tvímælalaust flugvallartítlurnar úr Framsókn. Það eru borgarfulltrúar í lagi og svo skuggalegar að jafnvel gamla Framsóknarmaddaman, sem hefst við í flatsæng sinn í Framsóknarfjósinu, blygðar sín fyrir þær, og kallar hún þó ekki allt ömmu sína. Það skrifast víst á reikning Kolbeins Kolbeinssonar framsóknarmanns og Máríu Borgargagns að flugvallartítlurnar skipuðu yfirleitt efstu sæti Framsóknar í Reykjavík við síðustu borgarstjórnarkosningar. Og að hluta til ber frú Ingveldur líka ábyrgð á hinum hlálegu framsóknardömum þó að hún sé innsti koppur í búri Sjálfstæðisflokksins. Í dag keppast Kolbeinn, frú Ingveldur og Borgargagnið við að þvo höndur sínar af flugvallarköppunum atarna og fullyrða framan í hvurn mann að þau þekki þær ekki, hafi aldrei heyrt á þær minnst.

Og þó að flugvallarvinkonurnar í borgarstjórn séu óborganlega út úr kortinu eru hinir borgarfulltrúarnir lítið skárri, svo tilgerðarlegir og molbúalegir sem þeir eru. Hafa margir velt fyrir sér hvurnig í ósköpunum það hafi getað gerst á í 15 manna borgarstjórn hafi einungis valist eintómar persónur af sama kalíberi og Molbúar og Bakkabræður. Svarið liggur ekki í augum uppi, en geta má sér þess til, að flokkseigendafélögin, sem standa að framboðunum sem fengur borgarfulltrúa kjörna, séu svo firrt og galin að þeim sé andskotans sama um hvaða labbakúta þau bjóða borgarbúum upp á að kjósa, aðalatriðið sé að frambjóðendurnir séu nógu handgengin og auðsveip helstu höfðingjum flokkseigendafélaganna.


mbl.is Halldór hættir eftir kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband