Leita í fréttum mbl.is

Nú fer í hönd illur mánuður

fall_1233324.jpgÞað er vægast sagt stóreinkennilegt að Lilja Alfredos sé sorgmædd yfir brotthlaupi Sigmundar Dávíðs; nær væri henni að fangna fjarveru hans, nema henni langi so ósköp mikið til að fylgja honum út á eyðimörkina. Sannleikurinn er nefnilega sá, að hvur einast flokkur í víðri veröld væri guðslifandisfeginn að vera laus við aðra eins erkiskelmira og Sigmund þennan og fylgisveina hans. Annars tekur því varla að tala um leyfarnar af Framsóknarflokknum, hvað þá exemflokkinn hans Sigmundar, þetta er allt saman að niðurlotum komið, erindislaust og ærusprungið.

Þá var ekki glæsilegra um að litast í Silfrinu hans Egils í morgun. Það fyrsta er við blasti í þeim þætti voru smettin á tveimur lönguuppþornuðum samfylkingareignum sem vissu greinilega ekki sitt rjúkandi ráð fremur en venjulega. Andspænis krataeignunum sátu Mogga-Styrmir og við hil honum Gunnar Smári, sem fékk að fljóta með af því sósíalistflokkur hans var svo kurteis að bjóða ekki fram. Og mitt á milli í þessari dálaglegu kös sat sjálfur Egill eins og lukkutröll kapítalismans og glotti þvers og kruss. Það eins sem þessi samkoma hafði að segja var að hún hefði ekki hugmynd um hvað ætti að kjósa í lok þessa mánaðar og jafnframt var þeim með öllu ókunnugt um fyrir hvað flokkarnis sem bjóða fram standa. Satt að segja var bæði kostulegt og sorglegt að vera vitni að því að annar eins snillingahópur skuli, frammi fyrir alþjóð, standa jafn nöturlega á gati og raun bar vitni; það var auðséð á öllu að þetta fólk vissi eki sitt rjúkandi ráð fremur en gamla Framsóknarmaddaman og kálfarnir hennar.

En eitt er ljóst: Það versta við kosningar, að í aðdraganda þeirra draga fjölmiðlar í gríð og erg fram leiðinlega og kjánalega stjórnmálafræðinga fram í dagsljósið til að segja það sem allir vita áður. Þetta stjórnmálafræðingabull er sem sé ekkifréttamennska í ofur-gæðaflokki. Og stjórnmálafræðingarnir, já, - þeir eru háskalega leiðinlegir, hlutdrægir í fræðum sínum, minna gjarna á páfagauka sem japla á sömu þulunni kosningar eftir kosningar og að áheyendum liggur við sturlun. Ekki hefi ég hugmynd um hvað gera skal við stjórnmálafræðinga og þá fréttasnápa sem gefa þeim ótakmarkað tækifæri til að belgja sig út í fjölmiðlum. Í gamla daga hefði þetta lið sjálfsagt verið dæmt til skógar, en eftir Sturlungaöld til vistar í Rasphúsinu í Kaupinhöfn. Í dag eru því miður engin úrræði til fyrir sona stjórnmálafræðinga; þeir eru sem maður segir utanveltu í kerfinu, öllum til ama og alls-aungvum til gagns og því síður gamans.  


mbl.is Sorgmædd yfir brotthvarfi Sigmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband