Leita í fréttum mbl.is

Yfirnáttúrlega leiðinlegir ráðherrar á siðferðisrófinu: Helmingurinn lygi, hitt allt eintóm svik

gubbUndanfarið hefir Ríkissjónvarpið boðið upp á mikið magn drottningarviðtala við ráðherra íslensku ríkisstjórnarinnar. Þessi ósköp eru svo sláandi, að við liggur, að læðist að grunur um vísvitandi sviðsetningu í áróðursskyni. Annað eins hefir nú gerst. Verst við þetta offramboð á ráðherrum á ríkisfjölmiðlinum er ekki offramboðið eitt og sér, heldur hitt hvað þessar ráðherrablækur eru skelfilega leiðinlegar og óáheyrilegar; og manni dettur ósjálfrátt í hug ljóðlína eftir skáldið Megas, svo hljóðandi: ,,Helmingurinn lygi, hitt allt eintóm svik." Og reyndar er þetta ráðherrafólk yfirnáttúrlega leiðinlegt í sinni bullandi ruglandi og útúrsnúningum.

Slæm, á leiðindaskalanum, er frú Andersen, það vissum við fyrir, en verri er þó Katrín nokkur Jakobsdóttir, sem fyrir hæðni örlaganna er orðin forsætisráðherra! Ef ég væri spurður hvort mér sýndist Katrín þessi vera heiðarlegur stjórnmálamaður, mundi ég hiklaust svara því neitandi ásamt athugasemd þess efnis, að mér hafi í þokkabót aldrei sýnst Katrín vera stjórnmálamaður. Og ég gæti svo sem vel frætt viðmælanda minn á því, að ég hafi aungvar efasemdir um að Katrín sé hreinlega óheiðarlegur stjónmálamaður, enda er hún alin upp við fótskör einhverra óheiðarlegustu pólitísku loddara, sem sögur fara af á Íslandi í seinni tíð.

Og þegar við yfirnáttúrleg leiðindi ráðherra bætist undarlegur mökkur af spillingarmálum í öllum regnbogans litum, sem umvefur þessi grey, þá liggur við að maður óski þess, að stjórnmál verði með öllu lögð niður og stjórmálaskoffín og pólitískir sjúklingar verði sendir í endurhæfingu, til að freista þess að gera þessum einstaklingum fært að hafast við úti í samfélaginu án þess að valda því skaða. En Ríkisútvarpið getur þó gert alþýðu manna á Íslandi þann greiða, að minnka til muna drottningarviðtöl við afspyrnuleiðinlega, ábyrgðarlausa og óáreiðanlega ráðherra og helst að hætta þeim alveg. Og mín vegna, þætti Ríkisútvarpið stíga skrefið til fulls og siga hundum á ráðherrana í hvert sinn sem þeir nálgast útvarpshúsið.


mbl.is Taldi sig starfa eftir núgildandi lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

En Jóhannes, hvað er svona ofurleiðinlegt við Kötu??

Svona fyrir utan væntingar þínar sem bæði byggjast á lífsviðhorfum og þeim aldri að hafa náð að upplifa skemmtilega stjórnmálamenn.

Hvorki tíðarandinn eða nútíminn er á ábyrgð Katrínar.

Svo er Steingrímur skemmtilegur, eða var það allavega.

Reyndar fullur, en það var aukaatriði.

Þekki marga fulla, og suma mjög fulla, og þeir voru ekkert skemmtilegir.

Tek annars undir margt af því sem þú segir í þessum pistli þínum, og þjóðin hefi gott af því að lesa hann.

Það er hennar tjón.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.1.2018 kl. 23:00

2 Smámynd: Aztec

Jóhannes, ég er sammála þér að forsætisráðherfan Katrín, þessi öfgafemínisti og öfgamarxisti er ekki upp á marga fiska. Hún kemur þó ágætlega út miðað við restina af ráðherrunum sem eru aumingjar upp til hópa, alveg eins og Katrín sjálf.

En skrefið verður aldrei stigið til fulls fyrr en RÚV verður lagt niður. Þetta er lélegasta sjónvarpsstöð á byggðu bóli og þótt víðar væri leitað.

Það á að selja þetta óþverrabákn hæstbjóðanda, segja upp öllum starfsmönnum, og afhenda Landsspítalanum/Borgarspítalanum húsið við Efstaleiti. Þannig er hægt að leysa húsnæðisvanda spítalanna á einu bretti.

Skýrar get ég ekki sagt þetta og tek ég reyndar grynnra í árinni en mér liggur hugur.

Aztec, 5.1.2018 kl. 03:13

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ómar Geirsson. Hvort manni finnst einstaklingur leiðinlegur eða ekki byggist á smekk, sem orðið hefur til hjá hverjum og einum á lífsleiðinni. Ég fór að fylgjast með Katrínu þeirri, sem nú er forsætisráðherra, áður en hún varð varaformaður VG. Er þar skemmst frá að segja, að aldrei hef ég heyrt nokkuð bitastætt frá þeirri manneskju; hún hefur virkað á mig eins og keisarinn sem frá er sagt í sögunni um nýju fötin keisarans. Og aldrei hef ég getað fundið á tali hennar eða látbragði, að hún sé vinstrisinni, allrasíst sósíalisti. Mál hennar er tilgerðarlegt og ber þess merki, að henni er mjög umhugað að segja ekkert sem móðgað getur æðri máttarvöld í VG.

Jóhannes Ragnarsson, 5.1.2018 kl. 17:25

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Já, það gustar allavega ekki um hana.

En kíkti á innslag mitt og sá að ég hnykkti ekki á að það væri tjón fyrir þjóðina að lesa ekki þennan pistil.

Hann er allavega ekki leiðinlegur.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.1.2018 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband